Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
K
yn
n
in
G
Guðmundur Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri Varðar.
Vörður tryggingar hefur að
markmiði að bjóða viðskiptavinum
viðeigandi vátryggingavernd á
samkeppnishæfu verði og leggur
áherslu á einföld og þægileg
vátryggingarviðskipti og
persónulega þjónustu.
Komnir langt á stuttum tíma
örður tryggingar hf. hvílir á gömlum merg en rætur
félagsins liggja aftur til ársins 1926. Þáttaskil urðu á
starfsemi félagsins um miðjan nóvember 2006 þegar
SP-Fjármögnun, Landsbankinn og og Byr sparisjóður
keyptu fyrirtækið. Framkvæmdastjóri Varðar er Guð-
mundur Jóhann Jónsson:
„Í gegnum tíðina hefur nýjum tryggingafélögum
reynst erfitt að ná varanlegri fótfestu á markaðnum. Vörður tryggingar
hf. hafði náð lengra hvað varðar umfang og fjölda viðskiptavina
heldur en önnur félög sem hafa reynt sig við markaðinn, en núverandi
eignarhald tryggir örugga fótfestu. Félagið hefur stækkað ört með til-
komu nýrra eigenda og horfur eru á að sá vöxtur haldi áfram.“
Þegar spurt er hvað aðgreinir Vörð frá öðrum félögum segir Guð-
mundur að það sé erfitt fyrir tryggingarfélag á hinum smáa íslenska mark-
aði að greina sig frá öðrum félögum: „Við erum með það ofarlega í
huga að gera hlutina með einföldum hætti og sem aðgengilegasta fyrir
viðskiptavininn en Vörður selur allar tegundir vátrygginga fyrir ein-
staklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Viðskiptavinir félagsins eru um 20
þúsund svo að grunnurinn er góður en við viljum ná betri dreifingu á
viðskiptamannahópinn og þjóna þeim á sem flestan máta. Það er hagur
viðskiptavinarins að hafa allt á einum stað, þá eru kjörin best og hag-
kvæmust.
Guðmundur segir að það hafi verið að nokkru leyti nýtt upphaf
að koma í nýtt og glæsilegt húsnæði í skemmtilegu hverfi: „Boltinn
fór að rúlla fyrir alvöru þegar við fluttum í Borgartúnið og í framhald-
inu jókst sala trygginga stöðugt. Við erum farnir að huga betur að
vöruþróun bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki og búnir að endur-
manna starfsemina töluvert. Starfsmannafjöldinn hefur tvöfaldast á einu
ári og í dag starfa um fimmtíu manns hjá fyrirtækinu.
Fólk þarf að hafa ástæðu til að tryggja hjá okkur og við þurfum að
vera samkeppnishæfir á hvaða sviði sem er. Í desember síðastliðnum
fékk Vörður líftryggingar hf. starfsleyfi, og erum við byrjaðir að selja
líf- og sjúkdómatryggingar, þannig að nú geta viðskiptavinir sótt alla
tryggingaþjónustu til félagsins.“
Vörður tryggingar hf.