Frjáls verslun - 01.02.2008, Síða 130
130 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
Maður neyðist til að vera ástfanginn
áður en maður giftist. En svo þegar
maður er giftur getur maður bara setið
og lesið í bók.
Ef maður rekst á konu úti á götu og
segir „afsakið“ og konan segir „það
gerir ekkert til“, þá getur vel verið að
þau fari að búa saman.
Anna, 7 ára
Munurinn á kóngi og forsætisráðherra er
sá að kóngurinn er sonur pabba síns, en
það er forsætisráðherrann ekki.
Að vera í fullu starfi þýðir það að
maðurinn drekkur of mikið öl á meðan
hann er í vinnunni.
Danskur drengur.
Í gamla daga voru tannlæknar
hræðilegir. Þeir notuðu naglbít og
drógu fullt af tönnum úr fólki. Líka
vísdómsjaxlana. Þess vegna vissi fólk
ekki svo mikið þá.
spakmæli
Það er Guð sem á sólina. Hann
slekkur á henni á nóttunni til að spara
rafmagnið.
Nicole, 5 ára
Þegar maður deyr er maður settur ofan
í jörðina og svo segir presturinn: „Af
jörðu ertu kominn og þar skaltu vera.“
Svo hellir hann mold úr fötu yfir hausinn
á manni.
Hans Petter, 9 ára
Mamma Guðs heitir Guðmóðir. Hún
er móðir allra barnabarnanna hans:
Mósesar, Jesú og jólasveinsins.
Henrik André, 7 ára
Það er bara kvennastarf að vera engill.
Anna, 9 ára
Strákar eru ekkert líkir englum. Ekki
einu sinni þegar þeir brosa.
Cornelia, 7 ára
Ég ætla ekki að fara til himna þegar ég
dey. Ég ætla bara að vera heima.
Chi, 9 ára
Ef einhver segir „ég elska þig“ við
gamla konu verður hún reið því að hún
er orðin leið á að heyra það.
Lisa Therese, 7 ára
Ást er það þegar stelpur setja á sig
ilmvatn og strákarnir setja á sig
rakspíra og svo fara þau út að labba og
þefa hvort af öðru.
Ást er það þegar fólk vill sitja á aftasta
bekk í bíó.
Þegar amma fékk gigt gat hún
ekki lengur beygt sig til að lakka
táneglurnar. Afi gerir það þá fyrir hana
þó að hann hafi sjálfur gigt í höndunum.
Það er ást.
Þegar maður er skírður er sett svolítið
vatn á höfuðið svo að hárið fari að vaxa.
Anders, 6 ára
Það sem mér líkar best við afa er að
hann er bara hann sjálfur en þykist ekki
vera einhver venjuleg manneskja.
Pétur, 6 ára
Spakleg orð barna um trúmál, ást og fleira.
umsjón: páll bjarnason
Það er guð sem á sólina ...