Franskir dagar - 01.07.2005, Blaðsíða 4
Útgefandi: Ferða- og menningarmálanefnd Austurbyggðar
Ritstjóri og ábyrgðamaður: Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Framkvæmdarstjóri Franskra daga 2005:
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
1
Auglýsingar: Jóhanna Kr. Hauksdóttir, Hafdís Bára Bjarnadóttir
og Eiríkur Ólafsson
Höfundur ómerktra pistla: Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Hönnun umbrot og prentun: Héraðsprent ehf.
Fáskrúðsfirði 2005
Efnisyfirlit
Velkomin á Franska daga.............................3
Þakkir..............................................3
Singstar fyrir 12 ára og yngri......................4
Listsýningar í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar...........6
Ljósmyndamaraþon....................................8
Bella í Bæ..........................................10
Á Frönskum dögum, söngur............................12
Hinn eini sanni Raggi Bjarna........................14
Dagskrá Franskra daga...............................16-17
Litla þorpið og lífið...............................18
Kenderíisganga að kvöldlagi.........................20
Tour de Fáskrúðsfjörður.................................20
Heyvagnaakstur, varðeldur og brekkusöngur...............22
Fjöllistahópurinn Circus Atlantis.......................22
Hátíð á Hótel Bjargi....................................22
Minningarathöfn við Franska grafreitinn.................24
Tjaldmarkaður...........................................24
Jólahúsið Borg..........................................26
Dorgveiðikeppni.........................................26
Lífið er línudans.......................................26
Fransmenn á íslandi - franska safnið í Templaranum.....28
Singstar keppni fyrir 12 ára og yngri
Á föstudeginum kl. 17:30 verður boðið upp á Singstar keppni
fyrir 12 ára og yngri í gamla íþróttasalnum í Kærabæ. Skráning
hefst kl. 17:00 og hefst keppnin sjálf kl. 17:30. Þeir keppendur
sem lenda í 1. - 3. sæti taka svo lagið fyrir hátíðargesti á
útisviðinu á sunnudeginum. Foreldrar og aðrir áhorfendur eru
hjartanlega velkomnir.
Ágætu lesendur
Franskir dagar gefa nú út í annað skiptið í röð, veglegt
kynningarblað með fróðleiksmolum um Fáskrúðsfjörð og
ýmsa dagskrárliði hátíðarinnar. Ég vil þakka þeim Hafdísi
Báru og Jóhönnu fyrir mikla elju við auglýsingasöfnun og
þeim Alberti Eiríkssyni og Elísu Jónsdóttur fyrir metnaðarfull
greinaskrif. Þar að auki vil ég þakka öllum þeim sem komu
með einhverjum hætti að gerð blaðsins. Með von um
ánægjulega Franska daga. Upplýsingar um dagskrá og
annað tengt Frönskum dögum má einnig finna á
heimasíðunni http://www.austurbyggd.is
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Tjaldmarkaður
Fastur liður í hátíðarhöldum á Frönskum dögum er tjald-
markaðurinn. Þar er hægt að finna allt frá sælgæti upp í
vandað handverk af ýmsu tagi, bæði úr Austurbyggð og
annarsstaðar frá. Gestir Franskra daga eru eindregið hvattir
til að kíkja í tjaldið og skoða hvað þar er boðið upp á.
4