Franskir dagar - 01.07.2005, Blaðsíða 20
1
JCenderíisganga að kvöldlagi
Fyrr á árum var það til siðs að taka sér
kvöldgöngu, hitta fólk og blanda geði. Stoppa,
spjalla um landsins gagn og nauðsynjar og njóta
líðandi stundar. Nú á tímum asa og erils gefa fáir
sér tíma til að rölta úti í rólegheitunum og vera
ekki að fylgja eftir einhverri fyrirfram ákveðinni
dagskrá, sem oftast er svo ströng að erfitt reynist
að halda tímaáætlun. Dagskrá þessarar göngu,
né heldur leiðin sem farin verður er ekki gefin
upp nú heldur munu stjórnendur hennar hafa
sína hentisemi um tilhögun eftir því sem þurfa
þykir þegar þar að kemur. Það eina sem látið
verður uppi á þessum tímapunkti er að gangan
er ekki hugsuð til fróðleiks, ekki sem líkamsrækt
og alls ekki sem neins konar óbyggðaferð eða
fjallaklifur. Aðeins kvöldrölt í skemmtilegum
félagsskap, ef menn óska, með smá nesti til að
losa um málbeinið, og það verður farin leið sem
sjaldan er gengin nú til dags, en um slóðir sem margir áttu erindi um áður fyrr. Farið verður frá Ráðhúsinu kl. 21.30. á fimmtudagskvöld.
ej.
í tilefni þess að í ár eru Franskir dagar haldnir
hátíðlegir í tíunda skiptið, ætla nokkrir vaskir
Fáskrúðsfirðingar að hjóla frá Reykjavík til
Fáskrúðsfjarðar. Hópurinn leggur af stað að morgni
15. júlí og áætlar að komast á áfangastað um kl.
21:00 föstudagskvöldið 22. júlí.
I' stað hefðbundinnar hjólreiðakeppni í ár, býður
þessi vaski hópur Fáskrúðsfirðingum, sem og
öðrum gestum Franskra daga, á öllum aldri að
hjóla með sér síðasta spölinn, þ.e. frá Stöðvarfirði
til Fáskrúðsfjarðar.
Ráðgert er að leggja af stað frá Brekkunni á
Stöðvarfirði kl. 19:00 á föstudagskvöldinu en þeir
sem vilja hjóla styttra geta hitt hópinn á leiðinni.
Þátttakendur undir 12 ára aldri þurfa að vera í fylgd
með fullorðnum (yfir 18 ára). Allir þátttakendur fá
afhent viðurkenningarskjal á áfangastað.
20