Franskir dagar - 01.07.2005, Page 7

Franskir dagar - 01.07.2005, Page 7
Portrett af manni og konu Anna Hrefnudóttir sýnir akrýlmálverk á striga, teikningar og Ijóð. Anna er fædd og uppalin að Krossgerði við Berufjörð, en flutti til Stöðvarfjarðar síðasta vetur. Anna útskrifaðist úr grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla íslands 1992, auk þess hefur hún lokið kennsluréttindanámi í list- og verkgreinum við Kennaraháskóla íslands. Við opnun listsýninga á fimmtudagskvöldinu les konan Anna eigin Ijóð og maðurinn Garðar Harðar leikur undir á hljóðfæri. http://www.ismennt.is/not/annahref Anna Hrefnudóttir listakona við eitt verka sinna. Karin Bracq í ár erum við þess heiðurs aðnjótandi að geta boðið velkomna til okkar frönsku listakonuna Karin Bracq frá Gravelines, sem er vinabær Búðakauptúns í Frakklandi. Karin er þekkt í heimalandi sínu fyrir skemmtilegar myndir og skúlptúra sem hún vinnur m.a. úr pappamassa. Á þessari sýningu leyfir Karin okkur að skyggnast inn í skemmtilegan og líflegan hugmyndaheim þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Litagleði og skemmtileg form ráða rikjum i verkum Karinar Bracq. Njóttu dagsins Taktu flugið Aðeins fimm skref á Netinu og þú ferð á loft Það getur ekki verið auðveldara. Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem þú finnur ódýrustu fargjöldin og að auki frábær tilboð. Njóttu dagins, taktu flugið og smelltu þér á flugfelag.is FLUGFÉLAG ÍSLANDS Taktu flugið 7

x

Franskir dagar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.