Franskir dagar - 01.07.2012, Blaðsíða 14
Franskir dagar - Les jours FRANfAIS
Sögustaðir og skáld:
Frönsk menningararfleifð
í túlkun rithöfunda
4?
Franska sendiráðinu og Alliance fran^aise
hefur áskotnast rétturinn að sýningu sem kall-
ast Sögustaðir og skáld: Frönsk menningar-
arfleifð í túlkun rithöfimda, gefin út af Centre
des monuments nationaux. Stofnunin, sem hefúr
umsjón með sögulegum frönskum minjum,bað
100 rithöfúnda að rita texta um sögustað eða
söguminjar í Frakklandi. Hvert viðfangsefni
er nálgast á tvennan hátt: annars vegar fá þeir
frjálsar hendur og tjá sig skáldlega um staðinn
eða hlutinn, og hins vegar er það söguleg um-
fjöllun.
Þetta er því í senn ferðalag um Frakkland
gegnum menningarlegar minjar og ferðalag á
vængjum skáldanna. Martin Page býður í hríf-
andi ferð um reistu steinana í Carnac. Bærinn
Puy-en-Velay veitti Juliu Kristeva innblástur.
Pierre Assouline skrifar um bæinn Champs-
sur-Marne. Daniéle Sallenave fræðir okkur um
Savoye-húsið eftir arkítektana Le Corbusier og
Pierre Jeanneret.
Hér á Islandi báðum við íslenska frönskumæl-
andi rithöfunda, leikara, þýðendur og háskóla-
fólk að velja sér einn af sögustöðunum og þýða
textann eftir franska rithöfúndinn.
Sýninguna verður fýrst hægt að sjá á Frönskum
dögum, hún verður opnuð laugardaginn 28. júlí
klukkan 10:00 í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar
af sendiherra Frakklands, Marc Bouteiller.
Franskir dagar 2011 ý
LANDVÉLAR
• 14