Franskir dagar - 01.07.2012, Blaðsíða 22
FrANSKIR DAGAR - LeS JOURS FRANfAIS
Texti og myndir: Albert Eirtksson
Þær fluttu flestar austur aftur í kringum aldamótin að loknu námi og settust að
í Garðaholtinu. I góðlátlegu gríni segjast þær fljótlega hafa uppgötvað að þær
höfðu ekki fengið boð um að vera í neinum saumaklúbbum svo að þær tóku
saman ráð sín og stofnuðu sinn eigin. Fyrst var hist hálfs mánaðarlega en núna
koma þær saman einu sinni í mánuði.
Hafdís Pdlsdóttir, Eyrún EUsdóttir, Oddrún Pálsdóttir með Vigdísi Huld Vilbergsdóttur ífanginu, Svava Magnúsdóttir og Tania Li
Mellado. Eiginmönnunum hefur aldrei verið boðið að vera með en peir stofnuðu Risk spilahóp og hittast reglulega og spila.
Sú sem heldur saumaklúbbinn sér um veitingar. Þœr viðurkenna að p<cr sitji stundum lengiframefiir, en
vilja taka fram að jecr sitji alls ekki eins lengi og saumak/úbburinn sem var t blaðinu ífyrra.
Upphaflega voru þær sjö sem
stofnuðu klúbbinn og segja stoltar
frá því að samtals eigi þær 21 barn.
Þær tvær sem vantar, eru fluttar
annað, Hildur Hlín Sigurjóns-
dóttir og Helga Snædal.
Hefð er komin á svonefndan kjóla-
hitting fyrir hjónaballið, þá eru
kjólar mátaðir og álit fengið hjá
hinum. Þetta fyrirkomulag mælist
sérstaklega vel fyrir og þær vilja
ekki fyrir nokkurn mun sleppa
kjólahittingnum.
Eins og gengur hjá ungum konum
er nokkuð rætt um meðgöngu,
barnauppeldi og kúkableyjur, segja
• 22
þær glaðhlakkalega og bæta við að
alltaf hafi einhver þeirra verið ólétt,
þar til síðasta vetur.
Desperate housewives kom oft við
sögu og þær segja auðvelt að sjá
smá hluta af sjálfum sér í skvís-
unum og viðurkenna auðmjúkar
að þeim hafi stundum vöknað um
augun við að lifa sig inn í efni þátt-
anna í umræðum saumaklúbbsins.
Aðspurðar segjast þær vera mjög
duglegar að prjóna og sauma.
Tania segist geta sannað það
með nýprjónaðri ermi sem sé....
hummmm........ sem sé einhvers
staðar!