Franskir dagar - 01.07.2012, Síða 26

Franskir dagar - 01.07.2012, Síða 26
FrANSKIR DAGAR - LeS JOURS FRANfAIS Texti: Albert Eiríksson Taka tunnu, tóma tunnu, SALT! Með stjörnur í augunum sögðu Guðný Þor- valdsdóttir, Sjöfn Traustadóttir, Sigurbjörg Helgadóttir og Skúli Oskarsson okkur Birni Jóhannssyni ffá síldarárunum á Fáskrúðsfirði. Um tíma var saltað þar á fjórum plönum með um fjörutíu síldarplássum á hverju. Fyrstu árin var saltað á sumrin en seinna var saltað fram undir aðventu. Sannkallað gullæði rann á bæjarbúa sem kunnu nú vart aura sinna tal. Einbýlishús voru byggð, fólk keypti sér bíla og fata- og hús- gagnamarkaðir voru reglulega í félagsheimilinu. I gríni segja þau að það hafi varla hvarflað að prestinum að messa og helst þurfti að sæta lagi til að jarða fólk þegar bræla var. Ein af fýrstu síldarminningunum þeirra er þegar Vestmannaeyingurinn Binni í Gröf sigldi inn fjörðinn á Gullborginni á fögrum lognværum sumardegi. Báturinn var fúllhlaðinn og stirndi á silfur hafsins á dekkinu. Þau byrjuðu öll að salta innan við fermingu. Nokkuð algengt var að börn byrjuðu 11 til 12 ára að salta. Síldinni var þá hent niður í tunnuna síðan lágu krakkarnir á tunnunni, vógu þar salt til að ná niður til að raða síldinni. Guðný Þorvaldsdóttir, Sigurbjörg Helgadóttir, Sjöjh Traustadóttir og Skúli Óskarsson iReykjavtk íjúní2012. Mynd: Albert Eiríksson. Söltunarstöðvarnar á Fáskrúðsfirði vom að mestu mannaðar heimamönnum. Þegar von var á síld fóru menn um bæinn og ræstu út. Skúli fór stundum hús úr húsi og ræsti og rifjar upp að dragúldin andlit hafi stundum komið út í glugga og stelpurnar hafi ekki allar verið fallegar þá, Síldarsöltun enda lítið sofið. Vaktirnar gátu verið langar, mjög langar og fýrir kom að örþreyttir menn sofnuðu á planinu á löngum vöktum. „Stundum stungum við hausnum undir kalda vatnsbunu til að halda okkur vakandi,”segir Skúli og bætirvið sposkur að þeir sem tóku fiillar síldar- tunnur hafi verið iðnastir \áð að taka tunnur frá sætustu stelpunum, þær hafi aldrei þurft að bíða. „Ofan á hverja tunnu var settur hringur og ofan í hann meiri síld sem seig niður næstu daga. Hver tunna þurfti að ná ákveðinni þyngd. Þetta voru kallaðir kúfar. Kúfurinn stóð þangað til næsta bræla hófst,” segir Sigurbjörg. Þegar söltuninni lauk var umsaltað. Fyrst var síldin flokkuð í fytsta, annan og þriðja flokk og síðan raðað aftur í tunnurnar. Oft var mesta fjörið í umsöltuninni og konurnar viðurkenna kankvísar að hafa oftar en einu sinni og oftar en tvisvar sett laxerolíu í kaffibrúsana hjá strákunum. Einnig rifja þær upp að í einni umsöltuninni hafi stígvél komið upp. Skúli er fljótur að grípa það og segir hlægjandi: „Ha! fannst stígvéhð mitt?“ I brælum var síldin pækluð, tappinn var sleginn úr og settur saltpækih í. Þessu fylgdi umstöflun og tveir og tveir lyftu tunnum saman. I pækl- ingunni lenti Skúh stundum á móti Ragnari í Víkurgerði, sem var heljarmenni að afli. Þar fékk hann sína eldskírn í aflraunum. „Mikið helvíti er nú strákurinn seigur,” sagði Ragnar eitt sinn um Skúla. A planinu hjá Agli Guðlaugssyni var útikamar fram af bryggjunni. Ein stúlka að sunnan, sem giftist pilti úr sveitinni, kom austur og ætlaði heldur betur að auðgast í síldinni. Hún fann kamrinum allt til foráttu og lét hafa eftir sér að 26

x

Franskir dagar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.