Franskir dagar - 01.07.2015, Síða 37
Texti og myndir: Albert Eiríksson
Heimildir:
Arbók F.í. 1955. Stefán Einarsson
Arbók F.í. 2002. Hjörleifur Guttormsson
Múlaping27. Freysteinn Sigurðsson
Ppðj\ski> ckg&p ® [esjoups |paj\gai§
Það er bæði gaman og fróðlegt að velta fyrir sér
tilkomu og uppruna nafnsins Fáskrúðsfjörður.
Varla er hægt að segja að einhver þeirra sé rétt-
ari en önnur, þó geta allir verið sammála um að
nafnið á firðinum er tengt eynni Skrúð í fjarðar-
mynninu.
Þegar fólk nálgast Fáskrúðsfjörð landleið eða
af hafi í björtu veðri verður eyjan Skrúður það
fyrsta sem augað nemur þar sem hún rís frá haf-
fleti tignarleg og litrík. Það er ekki að undra að
fjörðurinn inn af sæki nafn til hennar. I kirkjuskrá
Páls Jónssonar prests á Kolfreyjustað, sem gerð
var um aldamótin 1200, kemur fram að fjörðurinn
hafi heitið til forna Skrúðsfjörður.
Ef til vill hefur Skrúðurinn áður fyrr heitið Fá-
skrúð eða Fáskrúður, samkvæmt Páli Vídalín
lögmanni í skýringum yfir fornyrði Lögbókar.
Fyrrihluti nafnsins er þá ef til vill nafnorðið Fá
-glans eða gljái- og er þá vísað til sjávarlöðurs við
eyjuna. Eitt örnefni með þessum fyrri lið er Fá-
skrúðsey, sem ekki hefur verið staðsett en gæti átt
við um Skrúð. Páll Vítalín nefnir í áðurnefnum
skýringum skerið Fáskrúð fyrir Vatnsnestanga í
Húnavatnssýslu.
Fáskrúðsfjörður eða Frá-skrúðsfjörður finnst
sem ritháttur nokkuð jöfnum höndum á 19. öld.
I Austfjarðalýsingu skráðri um 1856 af Gutt-
ormi Pálssyni presti í Vallanesi 1775-1860 og
áður lengi á Hólmum í Reyðarfirði ritar hann
eingöngu Fráskrúðsfjörður. Ólafiir Indriðason
prestur á Kolfreyjustað 1796-1861 notar hins
vegar Fá-ritháttinn í sóknarlýsingu frá 1841 en
getur eftirfarandi: „Hann skrifast af mörgum
Fráskrúðsfjörður en í Landnámu nefnist hann
hinsveginn og mun það réttara þótt óljósara þyki
hvörsu það er tilkomið...” Hér sem oft endranær
falla menn fyrir Landnámu-rithætti.
Ólafur segir enn fremur: „í Skrúð er fuglager, sem
heldur honum grænum vetur sem sumar. Mun
nafnið af því dregið. Hins vegar hefur mér komið
til hugar, að Fáskrúðsfjörður gjaldi Skrúðsins og
hafi verið svo nefndur af landnámsmanni, sem
ef til vill kom í fjörðinn snemma vors eða um
vetur og þótti strendur hans folar og fáskrúðugar
í samanburði við grænan Skrúðinn. Er þó langt
frá því, að Fáskrúðsfjörður sé fáskrúðugri en aðrir
firðir austanlands, og dalirnir upp af honum eru
bæði grösugir og skógi vaxnir.
Nafnið Fáskrúðsfjörður gæti allt eins verið af
gelískum uppruna, auðskilið og viðeigandi, nefni-
lega Fa-sruth (Fa-srúþ). Fa er eins konar stað-
aratviksorð og merkir við eða innan við, struth
þýðir straumur eða röst. Fasruth (Fasrúþ) þýddi
þá “við röstina”. Þarf þá litlu að breyta til að fá
Fáskrúð og Fáskrúðsfjörð, en Skrúðurinn héti
að réttu Straumey."
Sandfell'frá Kolfreyjustað,fremsterHraunagerði.
37