Víkurfréttir - 17.04.2008, Blaðsíða 20
20 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 16. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
Sigurlaug Reynisdóttir,
Melavegi 1a,
Njarðvík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans,
laugardaginn 12. apríl, síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju,
föstudaginn 18. apríl, kl. 14:00.
Sturla Eðvarðsson,
Erla María Sturludóttir, Jónas Guðni Sævarsson,
Svava Rún Sturludóttir.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Bryndís Gróa Jónsdóttir,
Melteig 22,
Keflavík,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 10. apríl.
Jarðsett verður frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði,
þriðjudaginn 22. apríl, kl. 13:00.
Emil Ágústsson,
Ingileif Emilsdóttir, Snorri Eyjólfsson,
Anna María Emilsdóttir, Árni Hannesson,
Ægir Emilsson, Sóley Ragnarsdóttir,
Sigríður Þórunn Emilsdóttir,
Valdimar Ágúst Emilsson, Ágústa Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Verslunin Palóma í Grindavík hefur tekið
miklum breytingum. Linda María Gunn-
arsdóttir tók við versluninni þann 18. mars
og tók hana í gegn. Verslunin heitir núna
Palóma - föt og skart, en Linda hefur hafið
sölu á skartgripum í versluninni.
Hún er ekki ókunn skartinu en áður en hún
tók við Palómu vann hún í skartgripaverslun
í Reykjanesbæ í 17 ár. Auk skartsins hyggst
Linda bjóða upp á meira af tískuvöru í verslun-
inni. Það kennir ýmissa grasa hjá nýja eiganda
Palómu en þar er einnig hægt að fá m.a. íþrótta-
vörur, fatnað á börn, skó og töskur. ,,Hér verða
enn föt frá Erlu, fyrrum eiganda verslunarinnar
svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi“ segir Linda sem er mjög ánægð með við-
tökurnar sem hún hefur fengið.
Nýr eigandi Palómu
Grindavík: