Víkurfréttir - 17.04.2008, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 17. APRÍL 2008 21STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Ný vatns ból voru tek in
í notk un með við höfn í
Vogum á föstudag. Vatnsból
sveitarfélagsins voru færð
þar sem þau lentu inni á mið-
bæjarskipulagi við breytt
aðalskipulag. Ný dælustöð
var sett upp og stofnlögn frá
henni.
Dælustöðin fullnægir vatns-
þörf Voga en meðalnotkun
er nú um 6,5 l/s og hámarks-
notkun um 20 l/s. Gert er ráð
fyrir að árið 2016 verði með-
alnotkun um 16 l/s. Heildar-
kostnaður við verkefnið nam
rúmum 68 milljónum króna.
Er það mál manna að gæði
vatnsins séu betri í nýju vatns-
bólunum.
Ný vatnsból í Vogum
Fulltrúar ungu kynslóðarinnar í Vogum, þau Einar Sindri Ein-
arsson og Sóley Ósk Hafsteinsdóttir, skrúfuðu frá krananum
og hleyptu vatni á lögnina þegar nýja dælustöðin var formlega
tekin í notkun. VF-mynd: elg
Barnakórastarf hefur verið
í mikilli uppsveiflu á Suður-
nesjum nú að undanförnu.
Af því tilefni hafa kórstjórar
tek ið hönd um sam an og
standa fyrir kóramóti sem
haldið verður í Gerðaskóla í
Garði 19. og 20. apríl.
Þátttakendur í mótinu eru
rúmlega 100 syngjandi glaðir
krakkar úr Barnakór Garðs,
Barnakór Holtaskóla, Barna-
kór Heiðarskóla, Barnakór
Keflavíkurkirkju og Barnakór
KFUM og K í Reykjanesbæ.
Gerðaskóli og Íþróttamiðstöð
Garðs hafa boðið upp á hús-
næðisaðstöðu til að halda
mótið og Menningarráð Suð-
urnesja hefur styrkt verkefnið
fjárhagslega. Auk sundferða,
leikja og skemmtanna, mun
söngurinn að sjálfsögðu spila
stórt hlutverk á mótinu. Há-
punktur mótsins verða tón-
leikar í Íþróttamiðstöðinni
Garði, sunnudaginn 20. apríl
kl. 14 og eru allir velkomnir.
Hver kór syngur út af fyrir sig
en einnig syngja þau saman
í rúmlega 100 manna barna-
kór söngva sem þau hafa
lært á mótinu. Þeir sem að
mótinu standa vona að það
verði börnunum hvatning
jafnt sem skemmtun að vinna
með öðrum kórum. Einnig
vilja þeir vekja athygli á barna-
menningu á svæðinu og því
uppeldis- og tónlistarstarfi
sem fram fer í kórunum.
KÓRAMÓT
barnakóra á Suðurnesjum