Víkurfréttir - 05.09.2013, Page 14
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR14
Georg V. Hannah fagnar um þessar mundir 45 ára afmæli fyrirtækis síns, Úra- og skartgripaverslunar Georgs V. Hannah, sem frá upphafi hefur verið staðsett að
Hafnargötu 49 í Keflavík.
Georg er lærður úrsmiður og opnaði verslunina fyrst í maí 1968. Þá voru þrjú fyrirtæki í
húsinu. Auk Georgs var þar hraðhreinsun og herrafataverslun. Hreinsunin hætti fljótlega og
rakarastofa opnaði í staðinn. Síðar gekk illa að leigja út plássið í húsinu og þá ákvað Georg að
nýta það undir sína verslun með úr, klukkur, skartgripi og gjafavöru ýmiskonar og í raun hafi
ekki veitt af öllu plássinu.
Á þessum 45 árum frá því að Georg opnaði hefur orðið mikil breyting í faginu hjá honum sem
úrsmiði. Öll úr voru mekkanísk áður fyrr. Flest voru þau frá Sviss og sannkölluð gæðaúr. Síðar
komu quarts-úr og tölvuúr og þá varð mikil breyting. Hann segir að það hafi verið skemmti-
legra að eiga við mekkanísku úrin í gamla daga.
Georg hefur alla tíð verslað með úr, klukkur, skartgripi og gjafavöru. Fyrstu árin seldi hann
einnig gæruskinn í mörgum litum sem voru vinsæl á heimilum fólks í þá tíð. Hann segir að
kaninn hafi mikið keypt gærurnar. Á fyrstu árum verslunarinnar hafi hermenn af Vellinum
einnig verið stór viðskiptahópur og það hafi verið mikið öðruvísi þegar Varnarliðið var til
staðar í Keflavík.
Úra- og skartgripaverslun Georgs V. Hannah hefur alla tíð verið fjölskyldufyrirtæki. Eygló
Geirdal hefur staðið við hlið bóndans alla tíð og þá hafa börn þeirra einnig tekið þátt í
starfseminni. Nú starfar einn af þremur sonum þeirra hjóna, Eggert Hannah, sem gullsmiður
í versluninni og hefur verið í því fagi í tvo áratugi. Annar sonur þeirra, Rúnar, er lærður úr-
smiður en starfar ekki við iðnina. Þá segist Georg hafa verið heppinn með starfsfólk og það
hafi unnið lengi við verslunina. Nú starfar Vordís Heimisdóttir í afgreiðslu og hefur verið um
árabil.
Í tilefni af afmæli verslunarinnar verða ýmis tilboð og afslættir í boði nú um Ljósanæturhelg-
ina. Í boði verða afslættir af vörum frá 25-45%.
Úra- og skartgripaverslun Georgs V. Hannah 45 ára:
Gærurnar voru
vinsælar hjá Kananum
Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkurHjólastillingarDekkjaverkstæði Bremsuklossar Peruskipti
JEPPADEKK
Fitjabraut 12, Njarðvík
☎ 421 1399
www.solning.is
SUMARSKOÐUN
SUMARSKOÐUN
SÓLNINGAR
AÐEINS KR.
1.990*
*INNIFALIN ÁFYLLING Á
RÚÐUVÖKVA OG VÍXLUN
Á DEKKJUM
Komdu við hjá Sólningu og láttu okkur
kanna hvort bílinn sé tilbúinn í sumarfríið. Í
sumarskoðun Sólningar þá skoðum við:
■ Bremsuklossa og bremsudiska
■ Ljósabúnað
■ Fjöðrunarbúnað
■ Mælum loftþrýsting og könnum
ástand hjólbarða
■ Könnum olíu
■ Skoðum rúðuþurrkur
■ Athugum kerrutengi
■ Mælum rafgeyma