Víkurfréttir - 05.09.2013, Blaðsíða 18
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR18
STAKUR MIÐI
1.300.KR
SKÓLARÚTAN
TIL REYKJAVÍKUR
LEIÐ SKÓLARÚTUNNAR FRÁ KEFLAVÍK TIL REYKJAVÍKUR
7:00 8:20
VANTAR ÞIG FAR Í BÆINN?
Allir eru velkomnir í skólarútuna, hvort sem þeir eru í
grunnskóla, framhaldsskóla, háskóla eða bara skóla lífsins.
k e x p r e s s . i s ı i n f o @ k e x p r e s s . i s ı t E L . 8 2 3 - 0 0 9 9
20 miða kort
12.000 kr.
Mánaðarkort
15.000 kr. pr. mán
Lágfargjaldarúta
BL
IK
AV
Ö
LL
U
R
ka
ff
it
á
r
st
a
pa
br
a
u
t
V
ER
ZL
Ó
M
H
M
R
H
Í
H
R
A
Ð
AL
G
AT
A
F
RE
KJ
AN
G
RÆ
N
ÁS
BR
AU
T
F
LU
G
VA
LL
AR
VE
G
U
R
Sumrinu er að l jú k a o g v i ð
Suðurnesjamenn
kveðjum það með
pompi og prakt
með því að koma
saman eins og ein
stór fjölskylda og
njóta lífsins fyrstu helgi sept-
embermánaðar á f jórtándu
Ljósanóttinni, menningar- og
fjölskylduhátíðinni okkar allra.
Ljósanótt markar upphaf hausts-
ins og allrar þeirrar rútínu sem
því fylgir. Grunnskólabörnin
eru í aðalhlutverki að vanda við
setningu hátíðarinnar ásamt elsta
árgangi leikskólanna og er það
alltaf jafn hátíðleg stund þegar
þau sleppa blöðrunum í öllum
regnbogans litum upp í loftið og
senda nágrönnum okkar nær og
fjær boð um það að Ljósanótt
sé hafin og allir eru velkomnir.
Blöðrurnar tákna líka hið litríka
fjölmenningatsamfélag sem við
búum í og að hér eigi allir til-
verurétt og að við gerum hlutina
saman. Okkar mikilsvirti bæjar-
listamaður Rúnar Júlíusson orti
og söng „það þarf fólk eins og
þig fyrir fólk eins og mig“. Þetta
eru orð að sönnu og Ljósanótt
er sannarlega lýsandi dæmi um
þessi fallegu orð. Ekki væri hægt
að halda svona metnaðarfulla
hátíð nema með tilkomu allra
þeirra fjölmörgu listamanna og
starfsfólki sem þeim fylgja ásamt
fyrirtækjunum, einstakling-
unum og félögunum sem styðja
við hátíðina með fjárframlögum,
sjálfboðavinnu og/eða almennri
vinnu og ekki má gleyma hinum
almenna bæjarbúa sem mætir á
viðburðina með gleðina að leiðar-
ljósi sama hvernig viðrar.
Dagskráin er í mótun og fastir dag-
skrárliðir komnir með tímasetn-
ingar, en alltaf koma spennandi
nýjungar sem vert er að fylgjast
með inni á vefnum okkar www.
ljosanott.is. Sem dæmi má nefna
er að nýtt hringtorg verður opnað,
stórt útilistaverk afhjúpað og á
föstudagskvöldinu prófum við að
breyta til og höldum bryggjuball
við smábátahöfnina í stað tónleika
á stóra sviðinu. Bæjarbúar voru
beðnir um að senda inn tillögu að
nafni á hátíðarsvæðið þar sem stóra
sviðið er og af tæplega hundrað
góðum tillögum varð fyrir valinu
nafnið Bakkalág sem er skemmti-
legur orðaleikur sem vísar í sjávar-
bakkann, lágina sem er landfylling
og þá hefð sem áður var að breiða
út og þurrka saltfisk á þessu svæði
sem síðan var seldur erlendis og
kallaðist þá gjarnan „bacalao“. Þótt
hátíðin hafi tekist mjög vel undan-
farin ár, er alltaf gaman að breyta til
og prófa eitthvað nýtt enda erum
við rík af fjölbreyttum hópi hæfi-
leikafólks sem lætur ekki sitt eftir
liggja til að tryggja þann gæða-
stuðul og það góða orðspor sem af
hátíðinni fer. Þessu góða orðspori
eigum við bæjarbúar að halda á
lofti og bjóða gestum með stolti
að koma og kynna sér málið af
eigin raun enda er eitthvað í boði
fyrir alla og langflestir viðburðirnir
eru gjaldfrjálsir. Árgangagangan
er besta dæmið um það, kostar
ekkert nema gleðina sem fylgir
því að hitta jafnaldra sína og rifja
upp góðar minningar ásamt því að
áforma nýjar.
Ljósanótt telst til stærstu fjöl-
skylduhátíða landsins og fer sífellt
stækkandi. Metnaðurinn til að gera
vel verður síst minni fyrir vikið og
er það einfaldlega aðdáunarvert
hversu mikið gæðaframboð er af
viðburðum sem prýða dagskránna.
Tónlistarhefðin hefur löngum
loðað við okkur hér suður með sjó
og nú kynnum við með stolti til
sögunnar nýtt slagorð Ljósanætur
„Við syngjum um lífið“ sem er til-
vísun í texta Keflvíkingsins Þor-
steins Eggertssonar og þótti slag-
orð þetta einkennandi fyrir okkar
samfélag og hátíðina sem slíka.
Við kjósum að lýsa upp myrkrið
og höfum jákvæðni og hamingju í
forgrunni með því að njóta lífsins
meðan kostur er og hvetjum aðra
til þess að gera slíkt hið sama og sjá
ljósið með okkur þann 5.-8. sept-
ember á Ljósanótt 2013.
Björk Þorsteinsdóttir
Formaður Menningarráðs
Reykjanesbæjar
Syngjum um lífið með
fólki eins og þér!
Opinn fundur Heklunnar og Íslandsstofu
haldinn 17. september
Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, stendur fyrir fundi 17. september sem verður öllum opinn. Um er að ræða kynningarfund á
starfsemi Íslandsstofu fyrir þá sem hyggja á útflutning eða markaðssetn-
ingu erlendis hvort sem starfsemin tengist sjávarútvegi, ferðaþjónustu,
hönnun, iðnaði, fjárfestingum o.s.frv.
Heklan hefur unnið að undirbúningi þessa fundar síðan í vor í samstarfi við
Íslandsstofu.
Pétur Gautur sýnir á Icelandair hótel í Keflavík
- Ljósanótt 5.-8. september 2013
Pétur Gautur verður með mál-verkasýningu á Icelandair
hótel í Keflavík á Ljósanótt. Sýn-
ingin opnar fimmtudaginn 5.
september kl. 19 og verður opin
alla helgina. Á laugardeginum 7.
september milli klukkan 15.00 og
17.00 mun Bílskúrsbandið The
Retros spila hressandi rokkslagara
frá sjöunda áratugnum eins og
Bítlana, Simon&Garfunkel, Cat
Stevens og Johnny Cash. Einnig fær
nýmeti eins og slagarar með Ásgeiri
Trausta að fljúga með.
Ný málverk verða á veggjum og allir
eru velkomnir.
Sýningin verður opin:
Fimmtudagur Kl. 19:00 - 23:00
Föstudagur Kl. 13:00 - 23:00
Laugardagur Kl. 11:00 - 23:00
Sunnudagur Kl. 12:00 - 17:00
Borga 35 kr. á íbúa
til Reykjanesfólkvangs
Stjórn Reykjanesfólkvangs hefur óskað eftir auknum fram-lögum frá aðildarsveitarfélögum.
Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkti ósk stjórnar Reykjanesfólkvangs um
að aðildarsveitarfélögin auki framlag sitt til rekstrar fólkvangsins úr 17 kr. á
íbúa í 35 kr. á hvern íbúa svo hægt verði að sinna landvörslu, verkstjórn sjálf-
boðaliða og stefnumörkun fyrir fólkvanginn á árinu 2013.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhags-
áætlun ársins að fjárhæð 65.000 kr. sem kemur til lækkunar á handbæru fé.