Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.09.2013, Síða 27

Víkurfréttir - 05.09.2013, Síða 27
leikara. „Ég var í hljómsveit sem var að leita sér að píanóleikara. Ég sagðist vita um einn slíkan,“ en þá átti hann við Nancy vinkonu sína sem hafði lært á píanó frá unga aldri. Þau fóru svo að eyða meiri tíma saman eftir að hún gekk til liðs við hljómsveitina enda þurfti Guðmundur að taka að sér að kenna henni lögin sem sveitin spilaði. Honum leiddist það hreint ekki neitt. „Í dag erum við gift og hæstánægð með lífið,“ segir Guð- mundur og brosir. Þau eignuðust son saman fyrir rúmu ári síðan en sá heitir Ethan. Nancy er fædd og uppalin í Tævan en hún flutt- ist til Bandaríkjanna um tvítugt til þess að stunda nám. Þau Guð- mundur fengu tækifæri til þess að búa í Sjanghæ í Kína fyrir rúmum tveimur árum en Guðmundur kunni vel við sig í Asíu. Hann segir að ekki hafi þurft mikið til þess að sannfæra hann til þess að flytja en ungur smitaðist hann af ferða- bakteríunni. Hann tók sér frí frá vinnu sinni en Nancy bauðst gott starf í Kína. „Svona tækifæri kemur ekki á hverjum degi og við sjáum svo sannarlega ekki eftir þessari ákvörðun.“ Guðmundur hóf að starfa sjálfstætt í Kína og fljótlega hafði hann næg verkefni á sínum snærum. Guðmundur talaði ekki tungumál innfæddra en hann segir það ekki hafa verið svo stórt vanda- mál. „Það er alveg merkilegt hvað maður kemst langt á því að benda bara og brosa,“ segir Guðmundur og bætir því við að á jákvæðninni farir þú langt. Mætast á miðri leið Guðmundur kynntist í Asíu betur bakgrunni Nancy konu sinnar en Kína og Tævan eru að mörgu leyti mjög svipuð lönd að sögn Guð- mundar. Í Sjanghæ búa 22 milljónir en þrátt fyrir það segir Guðmundur að borgin sé hrein og falleg. „Það er magnað að koma frá Keflavík til Seattle þar sem milljón manns búa, og svo þaðan til Sjanghæ þar sem allar þessar milljónir búa, það er alveg hreint ótrúlegt.“ Guðmundur er nú aftur kominn til Seattle þar sem þau hjónin festu nýlega kaup á notalegu húsi þar sem þau hyggjast ala upp son sinn. Guðmundur segir margt vera líkt með Seattle og Ís- landi en veðrið sé þó nokkuð skárra í Seattle. „Borgin er ekki of stór og ekki of lítil. Hún er nokkuð örugg ef svo mætti segja og hér er gott andrúmsloft. Þetta er góður staður til þess að vera með fjölskyldu. Þar sem að konan mín er frá Tævan og ég frá Íslandi þá mætti segja að þetta sé staður í miðjunni. Við mætumst eiginlega á miðri leið í heiminum.“ Ástandið ekki spennandi á Íslandi „Það var aldrei planið að vera hérna að eilífu en það fór bara þannig. Fjölskyldan dregur mann heim annað slagið en það er ekki alveg nóg. Mér finnst ástandið á Íslandi ekki það spennandi að maður vilji virkilega fara heim. Hvað varðar þann starfsvettvang sem við erum á þá er ekki um auðugan garð að gresja. Heimurinn er líka alltaf að minnka og ég held að ég hafi aldrei verið eins vel tengdur við umheiminn og Ísland eins og í dag, með Skype og allt það. Ég held svei mér þá að maður væri varla í svona góðu sambandi við fjölskylduna ef maður byggi í Keflavík,“ segir Guð- mundur kíminn. En er framtíðin í Seattle? „Mig langar að fara þangað sem hitinn er meiri en Nancy er ekki hrifinn af því. Ég held þó að framtíðin sé hérna í Seattle en það er spennandi að ala strákinn okkar upp hérna. Framtíðin erum við þrjú, hvar sem við endum. Við verðum þó hérna í Ameríku þangað til annað kemur í ljós,“ segir Guð- mundur að lokum og hlær. LJÓSANÆTURTILBOÐ 05. – 08. SEPTEMBER OSTBORGARI 90 gr hamborgari með káli, tómötum, rauðlauk, osti og sósu 745 kr. FÖSTUDAGA – LAUGARDAGA OPIÐ 24 TÍMA SUNNUDAGA OPIÐ 00.00 – 23.30 N1 AÐALSTÖÐIN REYKJANESBÆ | 421 4800 KJÚKLINGABORGARI með káli, tómötum, rauðlauk og sinnepssósu 895 kr. Miðborg Seattle séð frá Queen Anne hverfinu. Tyggjóveggurinn við Pike Place markaðinn er jafn vin- sæll og hann er sóðalegur. Fjölskyldan á Skagit túlipa hátíðinni. Eiginkonan Nancy og sonurinn Ethan ásamt Guðmundi.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.