Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.09.2013, Síða 36

Víkurfréttir - 05.09.2013, Síða 36
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR36 mjög skemmtilegt að hljóta þau. Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ verðlaun hérna. Þetta er mikill heiður,“ segir Davíð. Alltaf vesen á þessum Könum Hlutverk fyrirliða í sundinu er mikilvægt en þeir taka jafnan þátt í því að skipuleggja ferðir liðsins. „Það er alltaf eitthvað vesen á þessum Könum og okkar hlutverk er að halda öllum hægum. Við erum líka milliliðir milli þjálfara og liðsmanna. Ef liðið er óánægt með eitthvað þá erum það við sem þurfum að tala við þjálfarana. Þetta er stórt hlutverk og það er mikil ábyrgð á okkur.“ Davíð átti alls ekki von á því að verða fyrirliði liðsins en þeir eru kjörnir af sundmönn- unum sjálfum. Það er því ljóst af því að dæma að Davíð er í miklum metum meðal félaga sinna. Félögunum fannst Ísland alveg geðveikt Davíð hefur eignast marga vini í sundliðinu og þeir koma margir hverjir frá hinum ýmsu heims- hornum. Það liggur fyrir að krakk- arnir í liðinu ætli að heimsækja hvor aðra. Davíð ferðast í Banda- ríkjunum með vinum sínum þegar tími gefst til og eins hafa liðsfélagar hans heimsótt Ísland. „Ég fór með þau í sumarbústað og um Suður- landið. Við enduðum í Jökulsárlóni og þeim fannst Ísland alveg geð- veikt. Þetta er mjög skemmtilegt. Nú hefur maður ákveðin tengsl við fólk víða um heiminn og á víða heimangengt.“ Þar á meðal í Frakk- landi, Ástralíu, Rúmeníu, Kanada og Kólumbíu svo fátt eitt sé nefnt. Nú þegar er Davíð kominn með B.S gráðu í hönnun og nú tekur við að sérhæfa sig í arkitektúr. Davíð segist ekki getað útilokað að hann verði í Bandaríkjunum eftir að námi lýkur ef góð vinna er í boði. Hann segir að markaðurinn fyrir arkitekta á Íslandi sé frekar lítill og kannski erfiðara að komast þar að. Þegar Davíð útskrifaðist var ekki mikill tími til þess að fagna. Hann fór í brúðkaup hjá félaga sínum en svo var haldið til Íslands þar sem þátttaka í Smáþjóðaleikunum var á döfinni. Davíð var nokkuð sáttur við árangur á leikunum og þá sérstaklega með Íslandsmet í boðsundi. „Ég var ekki alveg nógu sáttur með baksundin mín,“ segir Davíð en þau hafa hingað til verið hans sterkasta hlið. Geggjuð reynsla en vanda skal valið Það liggur fyrir að Davíð fær ekki skólastyrk alla sína skólagöngu og hann íhugar nú hvert stefnan verði tekin. Hann býst jafnvel við því að leggja sundið á hilluna að ári loknu. „Það er gaman að æfa og keppa en það er ekki hægt að gera þetta endalaust. Þetta kemur allt í ljós eftir næsta ár.“ Davíð segir það vera komið í hálfgerða tísku hjá sundfólki að fara til Bandaríkjanna til náms. „Heima er ekki verið að reyna að samræma íþróttir og háskólanám. Annað hvort velur maður skólann eða þá íþróttina sína. Ég mæli hiklaust með þessu en þá má ekki velja hvað sem er. Maður verður að vanda valið þegar kemur að skóla.“ „Þetta er geggjuð reynsla. Maður fær ekki mörg svona tækifæri á lífsleiðinni,“ segir Davíð. Hann viðurkennir að hann fái stundum heimþrá en þó var hann alltaf ákveðinn í að kýla á þetta. „Það er ómetanlegt að kynnast nýrri menn- ingu og nýju fólki. Þetta er ótrúlega gaman en maður veit að þetta tekur enda. Þá er líklegt að maður endi heima að lokum.“ KÆRU ÍS-LENDINGAR FÖSTUDAGUR: Kótilettur í raspi með öllu tilheyrandi eða jafnvel heit svið með rófustöppu og kartöumús.... Hvað er hægt að hafa það þjóðlegra? Nema kannski að fá sér eitt glas af íííískaldri mysu með. Opnunartími frá 11:00 - 14:00 og 17:00 - 20:00 alla virka daga. Gleðilega Ljósanæturhelgi.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.