Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.09.2013, Qupperneq 38

Víkurfréttir - 05.09.2013, Qupperneq 38
fimmtudagurinn 5. september 2013 • VÍKURFRÉTTIR38 20% Ljósanæturafsláttur miðvikudag til sunnudags Opnunartími Miðvikudaginn Fimmtudaginn 11:00 - 22:00 Föstudaginn Sunnudaginn 13:00 - 17:00 Gæðaflísar á sanngjörnu verði Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi 7, Rvk - Reykjanesbæ - Akureyri - Vestmannaeyjum NÝKOMNARÍTALSKAR FLÍSAR Fy r s t a L j ó s a -n ó tt i n l í ð u r mér seint úr minni. Þá var ég einmitt b l a ð a m a ð u r á Víkurfréttum og fylgdist vel með ö l l u m u n d i r - búningi hátíðarinnar og síðan þeim skemmtunum sem í boði voru. Hápunktur hátíðarinnar var þegar Bergið var upplýst og þegar flugeldunum var skotið á loft. Bæjarbúar komu saman og skemmtu sér. Hvetjandi fyrir listafólk Síðan þá hefur þessi skemmtilega bæjarhátíð þróast og stækkað mikið. Hún er orðin ein af föstu punktunum í bæjarlífinu og margir skipuleggja tíma sinn út frá hve- nær Ljósahátíð verður haldin. Ég held ég hafi einungis misst tvisvar sinnum af hátíðinni frá upphafi. Í mínum huga hefur hún sannað gildi sitt fyrir löngu síðan. Hún hvetur listafólk til að setja sér mark- mið; framleiða muni til að selja eða halda jafnvel sýningu. Fólk sem hefði verið hikandi að brjótast út úr skelinni með sína listsköpun en tekur fyrstu skrefin á heimavelli því tilefnið er til staðar. Hátíðin hefur því auðgað menningarlíf svæðis- ins. Maður er manns gaman Ungir sem aldnir fá sitt hlutverk. Stórfjölskyldur hittast og vinahópar, brottfluttir Suðurnesjamenn nota tækifærið og heimsækja heimahag- ana. Hátíðin treystir því vina- og fjölskyldubönd og eykur samhug á meðal bæjarbúa og gesta. Mig langar líka til að nefna mikil- vægi Ljósanætur út frá markaðs- setningu svæðisins. Við Suður- nesjamenn höfum árum saman unnið að því að fá fólk til að staldra við. Ljósanótt er orðið vel þekkt vörumerki og styður við uppbygg- ingu verslunar og þjónustu sem og ferðamennsku á svæðinu, sem er mjög gott mál. Heiti hátíðarinnar og tímasetning er líka vel heppnað. Það er nefni- lega svo gott að klára sumarið saman og ganga með ljós í hjarta inn í veturinn. Ég hlakka til að taka þátt í þess- ari stórkostlegu hátíð með minni fjölskyldu. Gleðilega hátíð kæru bæjarbúar og við sjáumst í bænum á Ljósanótt! Silja Dögg Gunnarsdóttir, varabæjarfulltrúi og þingmaður Framsóknarflokks Með ljós í hjarta inn í veturinn Loks er komið að því að hulunni verði svipt af vatnstanknum í Vatnsholtinu í Keflavík sem hefur verið inn- pakkaður í plast og striga í allt sumar. Það eru Toyistar, alþjóðlegur listahópur 28 lista- manna, þar af þriggja íslenskra sem búsettir eru í Reykjanesbæ, sem hafa breytt vatnstank- inum í útilistaverk. Hópur- inn vinnur við að endurbæta gömul mannvirki og breyta þeim í listaverk og hefur unnið við svipuð verkefni víða. Þarna tengjast myndlist og um- hverfisvernd á skemmtilegan hátt sem örugglega vekur áhuga ferðamanna um leið og staður- inn fær nýtt gildi fyrir okkur bæjarbúa. Einnig tengist þetta verkefni Toyistanna öðrum svipuðum verkefnum í öðrum löndum og þannig gæti orðið til einhvers konar leiðangur milli staðanna og Reykjanesbær orðið einn af áfangastöðunum á þeirri vegferð. Tankurinn er algjörlega einstakt verk í íslenskum veru- leika en um leið hluti af alþjóð- legri keðju umhverfislistaverka og gerir Ísland enn þekktara en áður fyrir jákvæðni í garð um- hverfisverndar. Vatnstankur verður listaverk Verkið afhjúpað á Vatnsholti kl. 18:00 á föstudag „Áframhald“ í Listsafni Reykjanesbæjar Fimmtudaginn 5. septem-ber kl.18:00 opnar Gunn- hildur Þórðardóttir sýninguna „Áframhald“ í Listsafni Reykja- nesbæjar í Duushúsum. Sýn- ingin er liður í dagskrá Ljós- anætur. Titill sýningarinnar vísar í áfram- haldandi þróun á verkum Gunn- hildar frá síðustu sýningu og til þeirra efna sem verkin eru gerð úr, enda sjálfbærni ofarlega í huga hennar. Á sýningunni eru tví- víð og þrívíð verk sem ýmist eru unnin úr fundnum hlutum eða tilfallandi afskurði, t.a.m. timbri, bárujárni og textíl. Gunnhildur sækir innblástur til bernskuár- anna í Keflavík, hluti tengda sjó- mennsku og náttúru og mann- virki á Reykjanesinu. Hluti sýningarinnar er innsetning sem sérstaklega er ætluð yngri gestum safnsins en þeim býðst að setjast niður, skoða rýmið og skapa. Á sýningartímabilinu verður boðið upp á listsmiðjur og leiðsagnir fyrir skóla en einnig verða viðburðir um helgar. Sýningin stendur til 27. október en safnið er opið virka daga kl.12.00 -17.00 og um helgar kl. 13.00-17.00. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Sjá nánar um sýninguna á vef- síðu Listasafn Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/listasafn og á vefsíðu Ljósanætur www. ljosanott.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.