Ægir - 01.01.2008, Page 9
9
V E S T M A N N A E Y J A R
opinberir sem einkaaðilar -
hafa rembst eins og rjúpan
við staurinn við að tortryggja
útgerðarmenn. Lögð hefur
verið áhersla á að viðhalda
ógeðfeldri mynd arðræningja
og kvótabraskara. Þessi nei-
kvæða ímynd hefur síðan stutt
Alþingi í að beita sértækum
skatti og álögum á þessa at-
vinnugrein sem við á lands-
byggðinni lifum á. Þannig er
staðan nú því miður sú að við
íbúar í Suðurkjördæmi leggj-
um í dag rúmlega 1,1 milljarð
(rúmlega eitt þúsund og eitt
hundrað milljónir) til vegna
svokallaðra potta, línumis-
mununar og sértækra skatta.
Skýrasta dæmið um þessa
ósanngirni er sennilega að
35% íbúa landsins greiða 85%
skattsins sem kallaður er auð-
lindagjald. Hafa þarf hugfast
að árásir á útvegsmenn eru
árásir á atvinnulífið í Vest-
mannaeyjum og víðar á lands-
byggðinni. Sérstakar álögur á
sjávarútveginn eru álögur á
okkur íbúa þessara bæj-
arfélaga þar sem sjávarútvegur
er stundaður. Við íbúar Vest-
mannaeyja skiljum og finnum
á eigin buddu að velgengni
sjávarútvegsfyrirtækja er vel-
gengni samfélagsins alls og
erum því til í að leggjast á eitt
með útgerðamönnum til að
efla hag sjávarútvegsins. Sum-
um virðist þó vera fyrirmunað
að skilja þennan þráð milli
bæjarfélagsins, íbúa og at-
vinnulífsins og láta sem at-
vinnulífið starfi í tómarúmi. Á
þessum peningi eru svo tvær
hliðar. Það dugar ekki að
samfélagið standi bara með
atvinnulífinu því atvinnulífið
þarf einnig að styðja samfé-
lagið. Annars slitnar þráð-
urinn. Þetta hafa útgerð-
armenn og aðrir aðilar í at-
vinnulífi okkar Eyjamanna
haft í heiðri og engum hefur
dulist hversu mikil samfélags-
leg vitund útgerðarmanna í
Eyjum er.“
Stórgjafir til Heilbrigðisstofn-
unar Vestmannaeyja
Eins og að framan greinir var
Bjarni Sighvatsson sérstaklega
heiðraður fyrir framlag hans í
gegnum tíðina til samfélagsins
í Eyjum. Það er ekki að
ástæðulausu því lengi hefur
hann lagt ríka hönd á plóg í
ýmsum málum í Eyjum. Undir
lok desember var hann í for-
svari fyrir höfðinglegri gjöf til
sjúkrahússins í Vestmannaeyj-
um. Bjarni fékk til liðs við sig
útvegsmenn og fiskvinnslufyr-
irtæki í Eyjum sem og Kven-
félagið Líkn og afhenti Heil-
brigðisstofnuninni í Vest-
mannaeyjum 32 sjúkrarúm að
verðmæti 9 milljónir króna og
tæki fyrir tæpar 29 milljónir
króna.
Bjarni varð 75 ára á liðnu
ári og upplýsti Sighvatur, son-
ur Bjarna, við afhendingu
gjafarinnar á Heilbrigðisstofn-
uninni að börn hans hafi látið
sér detta í hug að gefa föður
þeirra golfsett á þessum tíma-
mótum. Bjarni vildi hins vegar
frekar að þau keyptu rúm fyr-
ir sjúkrahúsið. Það var og gert
og gott betur því í það heila
voru 32 sjúkrarúm keypt,
hvert þeirra að andvirði um
300 þúsund krónur, samtals
því um 9 milljónir króna, sem
fyrr segir.
Gunnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofn-
unar Vestmannaeyja, sagði að
slíkar gjafir til stofnunarinnar,
bæði rúmin og tækjabúnaður,
væru ómetanlegar og í raun
gerði slíkur höfðingsskapur
stofnuninni kleift að halda úti
sjúkraþjónustu, að öðrum
kosti væri einungis unnt að
halda úti öldrunarþjónustu.
Tækjabúnaðurinn sem var
gefinn að þessu sinni var fyrst
og fremst sérstök blöndunar-
tæki fyrir krabbameinssjúk-
linga, en aðeins tvö sjúkrahús
á landinu hafa slíkan búnað,
Landspítalinn og Sjúkrahúsið
á Akureyri
Útvegsbændurnir Bjarni Sighvatsson (t.v.) og Leifur Ársælsson voru sérstaklega heiðraðir fyrir framlag þeirra til samfélagsins í
Eyjum. Myndir: Óskar P. Friðriksson/Vestmannaeyjum.
Bjarni Sighvatsson stóð ásamt fleirum fyrir veglegri gjöf til Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja. Hér er hann með Drífu Kristjánsdóttur, formanni Kvenfélagsins
Líknar, sem eins og margoft áður, kom með myndarlegum hætti að þessari gjöf.
Margrét Lára Viðarsdóttir, Íþróttamaður ársins og Eyjakona, dótturdóttir Bjarna
Sighvatssonar, var sérstaklega heiðruð af Eyjamönnum fyrir útnefninguna. Eyja-
menn eru að vonum stoltir af sínum öfluga fulltrúa.