Ægir - 01.01.2008, Side 11
11
engum öðrum sögum fer af
loðnuafla í nýlegri útgerð-
arsögu Grýtubakkahrepps við
austanverðan Eyjafjörð. Í sjáv-
arháttakönnun Lúðvíks Kristj-
ánssonar ber lítið á loðnu
annars staðar en í Skaftafells-
sýslu, þar sem hún var hirt
rekin á fjöru, oftast á hverju
ári, og étin ýmist soðin eða
hert. Þá segir að loðnu hafi
oft rekið á fjörur í Rang-
árvallasýslu, og nokkra vitn-
isburði nefnir Lúðvík um að
loðnu hafi verið ausið með
trogum upp í báta eða hún
veidd í pokaháfa. Engar
heimildir hef ég um að loðna
hafi nokkru sinni farið á
markað svo að hún kemur
hvergi inn í þessa rannsókn,
enda hefur afli af henni sjálf-
sagt aldrei verið svo mikill að
hann skipti máli í svo grófu
yfirliti sem hér er gert. Eins er
um fleiri fisktegundir sem
voru veiddar til heimaneyslu,
svo sem hrognkelsi. sem voru
veidd víðs vegar við landið.”
Lífsbjörgin
Gunnar velti fyrir sér þeirri
spurningu hversu mörgum
sjávarútvegurinn hafi fram-
fleytt hér á öldum áður. „Ef
talið væri hve margir þeirra
karla sem höfðu atvinnu af
sjómennsku að meira eða
minna leyti voru kvæntir, hve
mörg börn þeir áttu og hve
mörg hjú þeir réðu í vinnu
kæmi sennilega í ljós að þeir
skoruðu þar lægra en meðal-
Íslendingurinn. Hlutfallslega
margir sjómenn hafa sjálfsagt
verið einhleypir vinnumenn
sem voru sendir í verið á ver-
tíð, sömuleiðis lausamenn eft-
ir að lausamennska fór að
tíðkast að ráði. Aftur á móti
er vafamál hvort ástæða er til
að telja þannig. Konum hefur
atvinna sjómanna veitt vinnu
nokkurn veginn í sama mæli
og að verulegu leyti á sama
hátt og sveitabúskapur. Kon-
ur unnu við fiskverkun og
margs konar þjónustu við sjó-
menn, matargerð og klæða-
gerð nokkurn veginn eins og
konur í sveitum.“
Að öllu samanlögðu áætl-
aði Gunnar Karlsson að sjáv-
arútvegurinn hafi framfleytt
um 30% þjóðarinnar fram til
1890, en síðan hafi þessi tala
lækkað hlutfallslega. Að sama
skapi minnkaði hlutur land-
búnaðarins í framfærslu
landsmanna þegar leið á 19.
öld og verið þá um 50%.
Samfara því að hlutur sjáv-
arútvegs og landbúnaður
minnkaði hlutfallslega varð
vöxtur í öðrum greinum eins
og iðnaði og þjónustu.
Botnfiskafli á Íslandsmiðum árið 1906 skipt hlutfallslega eftir þjóðerni veiðiskipa.
S A G A N