Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2008, Blaðsíða 23

Ægir - 01.01.2008, Blaðsíða 23
23 sem þær þyrftu þá ekki að stunda líkamlegt erfiði, held- ur noti kollinn. Þær tvær sem höfðu reynslu af því að vinna sem stýrimaður og skipstjóri sögðu báðar að það hafi aldrei verið erfitt að vera yf- irmenn karla. Önnur þeirra bendir á að sem yfirmaður karla, sem oft hafi verið miklu eldri en hún, hafi sér reynst best að hlusta á ráðleggingar og taka tillit til þeirra skoð- ana. Þeir séu sáttari við að hlusta á hennar ákvarðanir þegar þeim finnst hlustað á sig. En hver er þá ástæða þess að konur eru ekki skip- stjórar og stýrimenn í meira mæli? Nokkrar þeirra sem ég talaði við kenndu um áhuga- leysi kvenna á yfirmannsstöð- um, auk þess að ekki sé um margar yfirmannsstöður að ræða. Ein minntist á að fólk fari ekki í stýrimannaskólann, hvorki strákar né stelpur, nema þau hafi vísa stöðu eftir skólann,” segir Helga Katrín í skýrslu um rannsóknina. Fordómar Hún segir að þær konur sem hún ræddi við hefðu ekki orðið varar við fordóma að neinu marki. „Ein þeirra sagð- ist hafa orðið vör við það við- horf að konur á sjó lægju undir allri áhöfninni. Önnur talaði um að tíu ára starfs- reynsla sem stýrimaður hafi verið lítils metin þegar hún fór að sækja um atvinnu í landi. Hún sagðist fremur hafa orðið fyrir fordómum á landi heldur en á sjó. Sjókon- urnar minntust þó einnig á að það væri ekki síður að fólk léti í ljós jákvæðni gagnvart konum á sjó. Sú þeirra sem starfað hafði sem skipstjóri sagði að fólk léti oft í ljós þá skoðun að þeim fyndist óvenjulegt og frábært að hafa konu sem skipstjóra. Allar þeirra sögðu að fólki fyndist það bera vott um mikinn dugnað að vera kona á sjó.” Helga Katrín segir að eng- in engin þeirra kvenna sem hún hafi talað við hafi látið illa af því að vera eina eða ein af fáum konum um borð. Hins vegar hafi þær allar ver- ið á því að það væri nauð- synlegt að vera ekki of við- kvæm í þessari vinnu og að geta tekið gríni og goldið í sömu mynt væri mikilvægt. Ein þeirra lýsti ýmsum til- raunum áhafnarinnar til að stríða henni, og hún hafi þá ýmist hefnt sín eða séð við þeim á undan. Ekkert af þessu hafi verið illa meint, en hún sagði nauðsynlegt að hafa húmor fyrir þessu og taka það ekki inn á sig. S J Ó K O N U R Helga Katrín Tryggvadóttir, mannfræð- ingur, sem tók saman þessa skýrslu um hlutverk og stöðu sjókvenna. N Ý T T S K I P Þegar Ísfélag Vestmannaeyja hf. samdi 1. nóvember sl. við skipasmíðastöðina Asmar í Talcahuano í Chile um smíði á nýju uppsjávarskipi fylgdi með í kaupunum smíðaréttur á öðru uppsjávarskipi. Félagið hefur nú ákveðið að nýta sér þennan rétt og undirritaði smíðasamning fyrir skömmu. Samningurinn kveður á um að ASMAR annist smíði á nýju og fullkomnu uppsjávarskipi fyrir Ísfélagið sem verður afhent á fyrri hluta árs 2011. Skipið er hannað og teikn- að af Rolls Royce í Noregi, 71,1 metri að lengd og 14,40 metrar að breidd. Burðargeta skipsins verður rúmlega 2,000 tonn í 10 tönkum útbúnum öflugri RSW kælingu. Skipið verður útbúið til nóta- og flottrollsveiða og aðalvélin af gerðinni Bergen diesel, 4.500 kw eða 6.120 hestöfl. Þessi nýsmíði Ísfélags Vest- mannaeyja hf. er sjöunda skipið sem Asmar smíðar fyrir íslenska aðila. Uppsjávarskip- in Ingunn AK, Hákon ÞH og Huginn VE voru smíðuð hjá Asmar og hafa öll reynst vel. Auk þessara skipa var haf- rannsóknarskipið Árni Frið- riksson RE smíðað í stöðinni og nýlega hófst smíði á nýju varðskipi fyrir Landhelg- isgæsluna. Milligöngu um gerð smíða- samnings og smíðalýsingar hafði umboðsmaður Asmar á Íslandi, BP skip hf - Björgvin Ólafsson og Héðinn hf, um- boðsaðili fyrir Rolls Royes á Íslandi. Asmar smíðar annað skip fyrir Ísfélagið Ísfélag Vestmannaeyja hefur nú ákveðið að nýta sér kauprétt á öðru uppsjávarfiski frá Asmar í Chile.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.