Ægir - 01.01.2008, Síða 35
35
Á undanförnum árum hafa
ýmsar tilraunir verið gerðar til
að lengja flutningatíma fersk-
vöru – þ.e. að matvælin haldi
ferskleika sínum. Þetta á við
um fisk, kjöt o.fl. Nýverið
gerði Kælismiðjan Frost sam-
starfssamning við alþjóðlega
stórfyrirtækið FMC Food Tech,
sem hefur unnið um nokkurt
skeið að athyglisverðum til-
ranum með undirkælingu á
ferskvöru. Þessi aðferðafræði
hefur gefið góða raun og
lengt líftíma ferskvörunnar
um allt frá 5 til 14 daga.
Að sögn Gunnars Larsen,
framkvæmdastjóra Kælismiðj-
unnar Frosts, hefur evrópski
verslunarrisinn Carrefour
prófað þessa aðferð við kæl-
ingu ferskvöru með góðum
árangri. Einnig hefur hún gef-
ið ágæta raun í Noregi, t.d.
við flutning á laxi á markaði
á meginlandi Evrópu og sama
gildir um innlandsmarkaðinn
í kjöti þar í landi.
„Þessi aðferð gengur út á
að yfirborð ferskvörunnar er
fryst hratt og þannig nást
ekki að byggjast upp stórir
ískristallar. Vökvamyndunin
verður þannig minni en ella í
ferskvörunni. Geymsluþol
vörunnar eykst og flutnings-
kostnaðurinn lækkar því
þetta getur sparað töluverðan
kostnað t.d. varðandi ísmott-
ur,“ segir Gunnar og bætir
við að Kæli smiðjan Frost
komi til með að kynna þessa
kæliaðferð fyrir matvælafram-
leiðendum hér á landi, bæði
í kjöti og fiski.
Mörg stór verk – hér á landi
og í Færeyjum
Í mörg horn hefur verið að
líta fyrir starfsmenn Kæl-
ismiðjunnar Frosts á síðustu
vikum og mánuðum. Nýverið
var lokið við uppsetningu og
frágang nýrrar frystigeymslu
fyrir Vestmanna Fiskavirki í
Færeyjum, sem er fyrst og
fremst hugsuð fyrir ufsa og
gulllax. Þá hafa þeir Frost-
menn nýverið lokið við upp-
setningu frysti- og kæli-
geymslu fyrir Nathan og Ol-
sen í Reykjavík og þessa dag-
ana er unnið að uppsetningu
kælikerfis fyrir nýtt fisk-
vinnsluhús Blátúns í Hafn-
arfirði. Framundan er m.a.
uppsetning kæli- og frysti-
kerfa fyrir nýja verslun Hag-
kaupa í Garðabæ.
Gunnar Larsen segir að
um þessar mundir séu tæp-
lega 30 starfsmenn hjá Kæli-
smiðjunni Frosti. Hann segir
að hér á árum áður hafi sjáv-
arútvegurinn verið afgerandi
þáttur í rekstri fyrirtækisins,
en hlutfallslegt vægi hans hafi
minnkað og sé nú um helm-
ingur af veltu.
K Æ L I N G
Gunnar Larsen hefur lengi verið tengdur sjávarútveginum.
Hann er tæknifræðingur að mennt, frá KT í Kaupmannahöfn
árið 1984. Að námi loknu starfaði hann í tvö ár hjá Maritime
Hydraulics í Kristiansand í Noregi við hönnun búnaðar fyrir
olíuborpalla.
Frá árinu 1986 til 1990 var hann tæknifræðingur í Slipp-
stöðinni á Akureyri en færði sig þá yfir til Útgerðarfélags Ak-
ureyringa þar sem starfaði í fimmtán ár undir merkjum ÚA
og síðar Brims. Fyrst sem tæknistjóri í sjö ár en síðan fram-
leiðslustjóri í átta ár. Árið 2005 var Gunnar síðan ráðinn
framkvæmdastjóri Kælismiðjunnar Frosts.
„Ég hafði ekki kynnst þessum kæliheimi áður en ég hóf
hér störf nema sem viðskiptavinur. Vissulega er mikil sérhæf-
ing í þessu og hjá okkur starfa margir starfsmenn sem hafa
unnið í þessu til fjölda ára. Við erum bæði með starfsstöð
hér á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu og verkefnin eru
um allt land,“ segir Gunnar Larsen.
Nokkuð sérhæfður heimur
Gunnar Larsen, framkvæmdastjóri Kælismiðjunnar Frosts.
Kælismiðjan Frost hefur gert samstarfssamning við FMC Food Tech:
Tilraun með undirkælingu
ferskvöru gefur góða raun