Ægir - 01.02.2010, Qupperneq 28
28
V E I Ð A R F Æ R I O G V E I Ð I T Æ K N I
„Við fögnum 50 ára afmæli í
ár. Fyrirtækið var á sínum
tíma ein fyrsta netagerðin hér
á Suðurnesjum og við höfum í
gegnum tíðina fylgt eftir þróun
í útgerð hér á svæðinu,“ segir
Óli J. Færseth, framkvæmda-
stjóri Netaverkstæðis Suður-
nesja ehf. í Njarðvík.
Fyrirtækið var formlega
stofnað haustið 1961 af tveim-
ur norðanmönnum, Siglfirð-
ingnum Andreas Færseth og
Ólafsfirðingnum Brynjari Vil-
mundarsyni. Þeir ráku fyrir-
tækið saman til ársins 1979
og hélt þá Andreas rekstrin-
um áfram til ársins 1996 að
fyrirtækinu var breytt í einka-
hlutafélag og sonur hans, Óli
J. Færseth tók við stjórnar-
taumunum.
Hófst á vertíðarárunum
„Stofnendurnir tveir komu
hingað suður á nesin á vertíð,
eins og regla var á þessum
árum. Þetta voru mikil upp-
gangsár og þeir hófu þjónust-
una í litlum skúrum en hún
vatt svo hratt upp á sig að
þeir byggðu mjög fljótlega
2000 fermetra hús sem við er-
um enn í hér við Brekkustíg
í Njarðvík. Lengi vel var þetta
eina netagerðin hér á svæð-
inu,“ segir Óli.
Hátt í 40 starfsmenn þegar
mest var
Netaverkstæði Suðurnesja
þjónustar fyrst og fremst
næsta umhverfi sitt og snúast
verkefnin að stærstum hluta
um togveiðarfæri og snurvoð-
ir. Stærsti viðskiptavinur fyrir-
tækisins er útgerðarfyrirtækið
Nesfiskur í Garði og auk þess
margar minni útgerðir.
„Þegar mestur uppgangur
var hér á svæðinu voru tæp-
lega 40 manns í vinnu hér í
netagerðinni. Þá voru öflug
útgerðarfyrirtæki í uppsjávar-
veiðum hér og mikil vinna
við loðnu- og síldarnætur en
eftir að þær útgerðir fóru
héðan hafa togveiðarfærin
verið okkar aðal verkefni. Í
dag erum við fimm starfs-
menn hjá Netaverkstæði Suð-
urnesja og gengur vel. Við
njótum þess að hafa ekki far-
ið geyst á undanförnum árum
í uppbyggingu eða fjárfesting-
um,“ segir Óli en handan göt-
unnar hefur fyrirtækið þó
fjárfest í viðbótarhúsnæði þar
sem öll víraþjónusta er hýst.
Erum nokkurs konar útgerðar-
samfélag
Óli segir að uppgangstími
hafi verið í útgerð að undan-
förnu og því verið nóg að
gera. „Við veitum alla þá
hefðbundnu þjónustu sem út-
gerðin þarf vegna veiðar-
færanna, þ.e. uppsetningu og
viðgerðir á trollum, snurvoð-
um og þorskanetum, rekstur
veiðafæraverslunar og víra-
verkstæðis. Sömuleiðis fell-
ingu á þorska-, skötusels- og
grásleppunetum. Síðan leigj-
um við líka frá okkur hús-
næði þar sem trillukarlar og
minni útgerðaraðilar hafa að-
stöðu fyrir veiðarfæri og ann-
an búnað viðkomandi útgerð-
inni. Við eru því í sjálfu sér
nokkurs konar útgerðarsam-
félag. Þessi þróun er bara í
samræmi við það sem fylgt
hefur þessu fyrirtæki alla tíð,
þ.e. að aðlaga sig þróun í út-
gerðarháttum á svæðinu frá
einum tíma til annars. Á því
byggist þetta,“ segir Óli J.
Færseth, framkvæmdastjóri
Netaverkstæðis Suðurnesja
ehf. í Njarðvík.
Víraþjónusta er hluti af starfsemi Netaverkstæðis Suðurnesja. Netagerðarmennirnir í uppsetningu á trolli.
Netaverkstæði Suðurnesja ein fyrsta netagerðin sem stofnuð var á Suðurnesjum:
Fimmtíu ára afmæli í ár
Víraþjónusta er hluti af starfsemi Netaverkstæðis Suðurnesja.