Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Blaðsíða 6

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Blaðsíða 6
Skilyrði eru fyrir hendi til þess að semja og gefa út slíkt rit. Enginn mun neita því, að þörf væri á slíku verki, sein hér hefur verið lýst. ViS eigum íslandi þá skuld enn ógoldna, að fá samið og útgefið heildarrit um land, þjóð og sögu, þar sem við getum séð í glöggu yfirliti hin náttúrlegu skilyrði okkar, örlög og afrek þjóðarinnar, verkleg og menningarleg. Rit, þar sem aldirnar í sögu íslands skipa sér hver af annarri, rit, þar sem þjóðin gerir upp við sjálfa sig eigið líf sitt. Hins vegar eig- um við mikið efni i sögu, bókmenntasögu, landslýsingu o. s. frv., mikinn lærdóm og rannsóknir. Það er þegar orðið svo vel í hendur búið, að samning þessa verks er framkvæmanleg. Það er nægilegum kröftum á að skipa lil þess að leysa það vel af liendi. í stuttu máli: Það eiga að vera skiiyrði til að fá loks samið vandað heildarrit um ísland. Hið nýja stórvirki, sem við ætlum Máli og1 menningu að leysa. af hendi, er útgáfa á þessu riti. Útgáfa eins og þessi, sem vanda verður til eftir fremstu kröft- um, er við eigum með þjóðinni, til þess að vinna að slíku verki, tekur auðvitað langan undirbúning og kostar stórfé. Sá timi, sem enn er til ársins 1943, á samt að vera nægilegur til undirbún- ings, vegna þess live vel er i liendur húið. Það eiga að vera öruggir möguleikar til þess að Ijúka verkinu fyrir þann tíma, jafn vönduðu og við eigum kost á að vinna það i hráð. Og Mál og menning er sú stofnun í landinu, sem hefur öll skilyrði til að koma i framkvæmd útgáfu þess og gera það jafnframt að þjóðareign, að því verðmæti, sem það getur hezt haft. Útgáfan og framkvæmd hennar. Pimm binda rit í stóru broti, 200 arkir að stærð, minnst 125 króna virði. Viljum við þá í stuttu máli skýra fyrir félagsmönnum, hvern- ig við hugsum okkur útgáfuna og framkvæmd hennar. Við áætlum ritið 5 bindi i sama broti og „Vatnajökull“, 40 arkir hvert bindi, það er alls 200 arkir í fjögurra blaða broti eða 1000 blaðsiðúr. Til þess að gefa mönnum hugmynd um stærð verksins er rétt að miða við „Vatnajökul“, bók, sem félagsmenn eiga. Við gerum i þessu riti ráð fyrir stærri og drýgri leturfleti á hvorri blaðsíðu. Ritið í heild samsvarar því að minnsta kosti 12 bindum af „Vatnajökli". Af þessu fá menn um leið góða hug- mynd um það, hve mikið þetta verk myndi kosta miðað við venjulegt bókaverð. „Vatnajökull" er mjög ódýr á 10 krónur óbundinn. Eftir því ætti þetta ril að kosta 120 krónur. En nú er á það að lita, að liér er ufn frumsamið verk að ræða, sem 44

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.