Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Page 11

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Page 11
vitund um það, að hinir fátækustu í félaginu, sem mest verða að léggja á sig til að eignast verkið, hafa ef til vill mestu áiiægj- una af því, er þeim berst það í hendur. Okkur er það ljóst, að fyrir þá fátækustu er hér um dálitil útgjöld að ræða, þó alls ekki tilfinnanleg, og í staðinn fá þeir verk, meira og glæsi- legra en þá hefur nokkurn tíma dreymt um að eignast, og leggja jafnframt sinn skerf í menningarlegt þjóðarafrek. Einungis með fulltingi hinna mörgu er þetta verk framkvæmanlegt. Svona verk er ekki unnið nema í trausti á fólkið og með skilningi al- mennings. Og við eigum í Máli og menningu þá reynslu af þjóð- inni, að henni má treysta til hinna stærstu menningarlegu af- reka. En nú sem aldrei fyrr þarf það að verða metnaðarmál hvers einasta félagsmanns, að framkvæmd þessarar útgáfu megi sem bezt takast. Ekkert annað félag eða stofnun gæti gefið út slikt verk án stórfellds opinbers styrks og samt miklu dýrara. Hér eru það samtök fólksins, er skipað hafa sér í þúsundum í Mál og menningu, sem með léttu móti geta leyst þetta verk af hendi og setja í það sinn metnað að framkvæma það ein og óstudd af opinberu fé. Og félagsmenn eru ekki að vinna hér ein- göngu fyrir sjálfa sig, heldur hafa þeir með samtökum sínum tekizt á hendur að vinna menningarhlutverk fyrir alla þjóðina. Það er ekki verið að kasta peningum í fáfenglegt verk, hér er verið að vinna menningarstórvirki, hér er verið að vernda minj- ar þjóðarinnar, glæða þjóðartilfinninguna, leggja grundvöll að dýpri skilningi á landi og þjóð. Mál. og menning, hin voldugu samtök fólksins, gengur hér fram fyrir skjöldu og ákveður að gefa þjóðinni allri á 25 ára afmæli fullveldisins, á 100 ára afmæli endurreisnar alþingis, á hinu örlagarika ári 1943, verðuga minn- ingargjöf. Við heitum á félagsmenn, alla sem einn, að veita máli okkar öflugt fulltingi. Reykjavik, 17. júní 1939. Stjórn Máls og menningar. Halldór Kiljan Laxness. Sigurður Thorlacius. Halldór Stefánsson. Eiríkur Magnússon. Kristinn E. Andrésson. 49

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.