Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Qupperneq 16

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Qupperneq 16
kemur í IV. og V. bindi), heldur verður reynt að skýra frá- þeim verkum einum, sem enn eru svo lifandi, að almenningur ætti að lesa þau eða a. m. k. vita nánari deili á þeim. Bókmenntirnar eru þó ekki einu minjarnar um hagleik og snilli íslendinga. Frá fyrri tímum eru til ýmiss konar lista- verk, trésmíðar, málmsmíðar,' vefnaður, myndir _ og skraut- list (t. d. i liandritum). Fornar bækur hafa lika sitt ytra horð,. prentun og hand, sem gerir þær að minjagripum, auk efnis- ins. Á siðustu tímum hefur þjóðin eignazt nýjar listir, málara- list, mótlist, tónlist og liúsagerðarlist. Öllu þessu verður reynt að gera nokkur skil, hæði með ritgerðum og myndum. En íslendingar hafa tekið fleira í arf en land og lausa aura, hækur og aðrar minjar. Þeir eru sjálfir einn hluti arfsins, og hver kynslóð ber í skapferli sínu, lífsskoðun og hugsunarhætti inargvísleg merki eftir örlög, menningu og lifskjör þjóðarinn- ar á liðnum öldum. Tvö síðustu hindi þess verks, sem hér er um rætt, munu verða tilraun til þess að sýna, hvernig saga og menning þjóðarinnar hafa mótað hana, gert liana það sem hún nú er og leitt hana á þær krossgötur, sem hún nú stend- ur á. Um þetta rit, sem mun verða kallað fslenzk menning, á' eg einna erfiðast með að tala, þó að eg viti mest um efni þess, því að þetta er hókin, sem getið var um i upphafi þessarar greinar, að eg hefði lengi liaft i smiðum. Efnisvalinu mun það ráða, hver atriði i örlögum þjóðarinnar á liðnum timum virð- ast hafa verið svo afdrifarík, að hún beri merki þeirra enn í dag. Því mun samhenginu i sögu íslendinga og menningu verða gefinn miklu meiri gaumur cn ýmsu þvi, sem fyrirferð- armest er í sögulegum heimildum, svo sem deilum og viga- ferlum. Eins mun ekki verða hirt um að lelja upp alla þá menn, sem mikið hefur borið á, heldur reynt að gera nánari grein fyrir þeim mönnum, sem annaðhvort eru sérkennilegir full- trúar fyrir viss þjóðareinkenni eða með dæmi sinn og starfr eru lifandi þætlir hinnar sögulegu arfleifðar. Um margt af þessu má visa til þess, sem fjallað er um í fyrri bindunum. En til þess að gera yfirlit sögunnar skýrara, munu ýmsir viðaukar verða látnir fylgja bókinni, þar á meðal greinargerð fyrir efna- hag þjóðarinnar fyrr og siðar, sem áður er getið um (með hlið- sjón af I. hindi og til viðbótar þvi, sem þar er sagt), — skýrsla um mannfjölda á ýmsum tímum, að svo miklu leyti sem unnt er að komast þar að sæmilega öruggum niðurstöðum, — og annáll um helztu atburði og merkismenn, sem hefur ekki þótt 54

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.