Ægir - 01.04.2011, Blaðsíða 8
8
Strandmenningarhátíðin Sail
Húsavík verður haldin dagana
16.-23. júlí í sumar og markar
hún upphaf á norrænu sam-
starfi sem nær til einstak-
linga, félagasamtaka og
stofnana. Von er á fjölmörgum
erlendum gestum til Húsavíkur
í tilefni af hátíðinni, auk
margra skipa, eins og nafn
hátíðarinnar bendir til. Verk-
efnastjóri hátíðarinnar vonast
til að dagskrá hennar laði til
sín fjölmarga gesti, enda mun
hátíðin á margan hátt verða
mjög frábrugðin ýmis konar
bæjarhátíðum víðs vegar um
landið í sumar.
„Sail Húsavík er fyrsta
strandmenningarhátíðin hér á
landi með áherslu á siglingar
og norrænt samstarf. Hingað
munu koma mörg erlend skip
og bátar, allt frá stórum
skonnortum niður í smærri
báta. Þá taka íslenskar skútur
og bátar einnig þátt í dagskrá
hátíðarinnar. Þessi skip koma
gestir okkar til með að geta
skoðað og farið með í sigling-
ar,“ segir Vilborg Arna Gissur-
ardóttir, verkefnastjóri Sail
Húsavík.
Eins og áður segir mun há-
tíðin standa í heila viku en
síðari hluti hennar rennur
saman við Mærudaga á Húsa-
vík. Meðal dagskrárliða á Sail
Húsavík verða málþing, fyrir-
lestrar, margs konar námskeið
og sýningar. Að auki verður
markaðstorg alla daga þar
sem hægt er að kaupa bæði
mat og norrænt handverk.
„Hingað koma skip bæði
frá Skandinavíu, Færeyjum og
Þýskalandi. Þau munu hafa
viðkomu á Hjaltlandseyjum
og í Færeyjum á leið sinni
hingað og með þeim kemur
fólk sem stendur fyrir dag-
skrárliðum á hátíðinni, s.s.
sýningum, handverki og
fleiru. Hér verða t.d. sýningar
á bátasmíði, ýmis konar
handverki, sýningar sem
tengjast dúntekju, mat og svo
framvegis. Þessu til viðbótar
má nefna tónlist og dans en
undirtónn í allri dagskránni er
strandmenning og vert er að
undirstrika að dagskrárliðirnir
verða í bland frá Íslandi og
öðrum löndum,“ segir Vil-
borg.
Vettvangur leikinna og lærðra
Rithöfundurinn og siglinga-
kappinn Arved Fuchs er
verndari strandmenningar-
hátíðarinnar Sail Húsavík en
hann er vel þekktur fyrir rit-
störf, rannsóknir sínar og sigl-
ingar um heimsins höf. Á
ferðum sínum hefur hann
nokkrum sinnum haft viðdvöl
á Húsavík og m.a. rekið þar
náttúruskóla sem styrktur er
af Sameinuðu þjóðunum. Vil-
borg segir mikinn heiður og
lyftistöng fyrir hátíðina að
hún tengist nafni Arved
Fuchs.
„Tilgangur hátíðarinnar er
að vera vettvangur leikinna og
lærða til að hittast, fræðast,
miðla, læra og mynda tengsl.
Við viljum styðja uppbygg-
Activ, þriggja mastra skonnorta sem verður flaggskip Sail Húsavík.
Glæsilegar skútur og skip á fyrstu norrænu strandmenningarhátíðinni
sem haldin verður hér á landi í júlí:
Óður til strandmenningar á Sail Húsavík
F R É T T I R
Siglingarnar verða í forgrunni á þessari fyrstu samnorrænu strandmenningarhátíð.