Ægir - 01.04.2011, Blaðsíða 44
44
S I G L I N G A T Æ K N I
„Þróunin er sú að Furuno tæk-
in og Maxsea vinna alltaf bet-
ur og betur saman. Með sí-
auknum gagnaflutningsmögu-
leikum úti á sjó opnast ný
tækifæri og það er Furuno að
nýta sér vel með samvinnu við
Maxsea,“ segir Sveinn K.
Sveinsson, sölustjóri hjá
Brimrúnu en fyrirtækið hefur
nú yfirtekið sölu og þjónustu
hér á landi við Maxsea sigl-
ingaforritið. Þetta gerist í
kjölfar þess að Furuno, sem
Brimrún er umboðsaðili fyrir,
eignaðist hlut í Maxsea hug-
búnaðarframleiðandanum.
Fyrir skömmu kom á markað
ný útgáfa af Maxsea sem
nefnist Time Zero og voru þrír
af starfsmönnum Brimrúnar
nýverið á námskeiði hjá Max-
sea í Frakklandi, í uppsetn-
ingu og notendamöguleikum
bæði á nýjum Time Zero og
eldri hugbúnaði Maxsea.
Loftmyndir, kort og þrívídd -
allt í senn
Maxsea hefur verið í notkun í
íslenskum skipum í á þriðja
áratug en Time Zero er ný
kynslóð hugbúnaðarins.
Hann þykir í senn einfaldur,
hraðvirkur í notkun, sameinar
sjókort, loftmyndir og þrí-
víddarupplýsingar. Sveinn
segir samskipti milli Furuno-
tækjanna og Maxsea greið og
auðveld.
„Mesta breytingin við Max-
sea Time Zero er að ekki er
lengur unnið með skrár held-
ur í gagnagrunni sem léttir
mikið alla vinnslu tölvunnar.
Ef notandi vill áfram geta
kallað fram upplýsingar eftir
skráarnöfnum er það hægt.
Gagnagrunnurinn býður upp
á fleiri leiðir til að velja það
sem á að birta á skjánum en
eldri útgáfur hugbúnaðarins
gerðu. Time Zero kemur í
fjórum útgáfum og í þremur
þeirra er hægt að yfirfæra
radarmynd frá Furuno ratsjá
og vinna með hana í Maxsea
korti með fullri stjórn á radar-
myndinni. Þannig er til dæm-
is hægt að skipta skjánum í
tvennt með radar annars veg-
ar og leiðarrita hinsvegar en
einnig er hægt að leggja rad-
armynd yfir sjókort. Í fiskiút-
gáfunni af Maxsea er mögu-
leiki að vera með tvo skjái og
vinna með þá eins og um tvo
leiðarrita væri að ræða, al-
gjörlega óháða hvorum öðr-
um. Þannig er hægt að vinna
með tvívídd, þrívídd, radar,
dýptarmæli og fleira. Af
þessu má sjá hversu mikla
möguleika Furuno Maxsea
TZ skapar. Þá er einnig hægt
að flytja gögn úr eldri Maxsea
og Olex inn í Time Zero.
Í grunninn byggir tæknin í
siglingatækjum á því sama og
á árum áður. Byltingin felst á
hinn bóginn í hraðanum,
vinnslu upplýsinga, mynd-
rænni framsetningu þeirra
fyrir notandann og mörgu
öðru sem miðar að því að
skipstjórnandinn hafi sem
besta yfirsýn á það sem hann
er að gera og hafi þær upp-
lýsingar sem næst sér sem
henta í hvert sinn. Við höfum
frábæra reynslu af Furuno
sem framleiðanda í fiskileitar-
og siglingatækjum og þegar
Maxsea og Furuno leggja
saman þekkingu sína verður
til sterk eining hjálpartækja
fyrir skipstjórnendur.“
Fellur vel að NavNet 3D
Í tækjalínu Furuno er NavNet
3D búnaðurinn, sem er full-
komlega samþætt kerfi þar
sem hægt er að tengja saman
mörg jaðartæki sem staðsett
eru á ýmsum stöðum í skip-
Brimrún er umboðsaðili fyrir Maxsea siglingahugbúnaðinn:
Nýjar víddir með
Maxsea Time Zero
Þrír af starfsmönnum Brimrúnar fóru nýverið á námskeið hjá Maxsea í Frakklandi. Hér eru tveir þeirra ásamt starfsmönnum Maxsea við höfuðstöðvar fyrirtækisins. Frá
vinstri: Eiríkur Þórarinsson, verkstjóri hjá Brimrún, næst kemur Ronan Golhen framkvæmdarstjóri tæknisviðs Maxsea, þá Hörður Vilberg Harðarson, tæknimaður Brimrún-
ar og lengst til hægri er leiðbeinandinn á námskeiðinu, Thierry Callede frá Maxsea.