Ægir - 01.04.2011, Qupperneq 38
38
og gera hann skiljanlegri al-
menningi. Og rödd okkar sjó-
manna þarf að heyrast betur.“
Sjómannadagshátíðin
nauðsynleg
Í hönd fer sjómannadagur en
hann hefur verið haldinn há-
tíðlegur allar götur frá árinu
1938. Vestmannaeyingar
héldu þennan dag hátíðlegan
í fyrsta skipti árið 1940 og
síðan hafa verið hæðir og
lægðir í hátíðarhöldunum.
Stefán var í hópi sjómanna í
Eyjum sem tók völdin í sínar
hendur fyrir nokkrum árum
þegar stefndi í óefni með
þessa hátíð. Dagskrá sjó-
mannadagshelgarinnar var rif-
in upp á nýjan leik, nýir
róðrabátar keyptir, dagskrá
skipulögð og með ýmsum
hætti blásið lífi í hátíðina.
„Við sáum að ekki var
hægt að ætlast til þess að ein-
hverjir aðrir gerðu þetta fyrir
okkur heldur væri það fyrst
og fremst undir okkur sjálfum
komið að hátíð okkar sjó-
manna væri með þeim hætti
sem við vildum sjá. Sjó-
mannadagurinn er mikilvæg-
ur snertiflötur þar sem við
skemmtum okkur saman,
með fjölskyldum okkar og
öllum almenningi. Vest-
mannaeyjar eru ein af stærri
verstöðvum landsins og hér
eigum við að vera í forystu
um að minna okkur öll á
hvað það er sem hefur skap-
að grunninn fyrir því þjóð-
félagi sem við búum í dag,“
segir Stefán og bætir við að
einn af mikilvægum þáttum
sjómannadagsins sé umræða
um öryggismál sjómanna.
Aldrei sé of mikið rætt um
þau mál og sjómannadagur-
inn sé tækifæri til að minna á
þau.
Ríður út milli túra
Vestmannaeyjar eru sjaldan
nefndar þegar rætt er um
hestamennsku á Íslandi en
Stefán er í hópi dugmikilla
hestamanna í Eyjum og sinnir
því áhugamáli hvernær sem
tækifæri gefast frá sjómennsk-
unni.
„Hér vorum við fimm aðil-
ar með 17 hesta á húsi í vetur
en hér í Eyjum eru nokkrir
tugir hrossa. Við erum að
byggja upp sameiginlega að-
stöðu á Dalabúinu, sem áður
var kúabú en það kemur
mörgum á óvart hversu marg-
ar og fjölbreyttar reiðleiðir
eru hér í Vestmannaeyjum.
Hingað kemur fólk ofan af
landi til að ríða út og hver
veit nema við sjáum Vest-
mannaeyja getið oftar á
hestamannamótum í framtíð-
inni. Þetta kemur allt saman,“
segir hesta- og stýrimaðurinn
Stefán Birgisson.
S J Ó M E N N S K A N
Stýrimaðurinn Stefán í brúnni á Drangavík. „Það er þorskur og karfi um allan sjó,“
segir hann.
Fjölmennt við höfnina á sjómannadaginn.Stefán með félögum sínum í sjómannadagsráðinu í Vestmannaeyjum. Þessi hópur
gerði átak í að vekja hátíðarhöldin til lífs á ný í Eyjum.
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Akureyri - Fiskitangi
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
www.isfell.is
Dragnótatógin, sem
þú getur treyst!
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Maritech hefur verið leiðandi í þróun hugbúnaðarlausna
fyrir sjávarútveginn um árabil. Lausnir Maritech spanna alla
virðiskeðjuna frá skeldi og veiðum til sölu og dreingar.
WiseDynamics lausnir veita ölbreytta möguleika
á að fylgjast með og greina upplýsingar fyrir
stjórnendur í rauntíma. Um er að ræða:
Wise stjórnendasýn, Wise greiningartól, Wise BI teninga, Wise skýrslur, Wise farsímalausn og Wise samningaker.
Gæðastjórnun, Fiskeldi, Útgerð og kvóta,
Vinnslu, Birgðir og vöruhús og Sölu og útutning.
WiseDynamics
stjórnendalausnir
Nýjustu upplýsingar eru forsenda réttra ákvarðana
WiseFish
lausnin innifelur:
Dynamics NAV í áskrift: Eigðu eða leigðu kerð, kynntu þér hagkvæmar lausnir Maritech.
Borgartún 26 » 105 Reykjavík
Hafnarstræ 102 » 600 Akureyri
Sími: 545 3200 » Fax: 545 3201
sala@maritech.is » www.maritech.is
- tryggir þér samkeppnisforskot
Sjávarútvegslausnir