Ægir

Volume

Ægir - 01.06.2012, Page 16

Ægir - 01.06.2012, Page 16
16 H A F N I R Yfir 80 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur 81 skemmtiferðarskip hefur viðdvöl í hjá Faxaflóahöfnum í Reykjavík þetta sumarið. Fyrsta skipið kom upp úr miðjum maí og það síðasta leggst að bryggju þann 29. september. Stærsta skipið er Celebrity Eclipse, tæplega 122 þúsund tonn, en það kemur til landsins í tvígang í sumar. Um og yfir 100 þúsund manns koma með þessum skipum til höfuðborgarinnar. Tæpar 300 milljónir í grunn- net hafna Fjárveitingar ríkisins til hafna innan hins svokallaða grunn- nets nema 290 milljónum í ár, samkvæmt samgönguáætlun 2011-2014 sem Alþingi sam- þykkti í þinglok í vor. Áætlunin er hluti af og innan ramma stefnumótandi samgönguáætl- unar 2011–2022 þar sem mörkuð er stefna og markmið fyrir allar greinar samgangna næstu tólf árin. Samgöngu- áætlunin 2011-2014 skiptir höfnum niður eftir þremur kjör- dæmum og af þeim fær Norð- austurkjördæmi mest, rúmar 161,7 milljónir. Sú upphæð fer að miklu leyti í hafnarfram- kvæmdir í Norðurþingi eða 60,7 milljónir. Til hafnarmann- virkja á Akureyri renna 36,3 milljónir og 22,9 milljónir í hafnarframkvæmdir á Djúpa- vogi. Samtals renna 107 millj- ónir í hafnarframkvæmdir í Suðurkjördæmi og þar af fara um 57 milljónir til Grindavíkur. Alls fara 19,6 milljónir til Norð- vesturkjördæmis. Hafnir fyrir utan grunnetið fá 62,1 milljón og sú fjárhæð fer óskipt til sveitarfélaga í Norðvesturkjör- dæmi. Metfjöldi skemmtiferðaskipa á Ísafirði 32 skemmtiferðaskip hafa boð- að komu sína í Ísafjarðardjúp sumarið 2012. Um metfjölda er að ræða ef borið er saman við fyrri ár. Algengt er að far- þegar heimsæki Vigur í heim- sókn sinni á Ísafirði, fari um bæinn eða næsta nágrenni. Hafnarvörður í 63 ár Nú í sumar lét Ragnar Guð- mundsson af starfi hafnarvarð- ar á Brjánslæk. Því starfi hefur hann gegnt frá árinu 1949 eða í 63 ár. Reiknað er með að í sumar verði farþegar og áhafnir skemmtiferðaskipa sem koma til Akureyrar um 100 þúsund talsins. Þar af eru farþegar 70 þúsund. Skipin verða 65 tals- ins og eru samanlagt um 2,6 milljónir brúttótonna að stærð en aukning í brúttótonnum milli ára er 36%. Spá um þró- un í skemmtiferðaskipaþjón- ustunni á Akureyri á næstu ár- um gerir ráð fyrir jöfnum stíg- anda og að árið 2021 komi 150 þúsund farþegar á ári til bæjarins með skipunum. Pétur Ólafsson, markaðsstjóri Akur- eyrarhafnar, segir mikil áhrif af þessum skipakomum fyrir samfélagið og ekki síður hvað tekjur hafnarinnar áhrærir. Skipin að stækka Farþegafjölgun er 36% milli frá síðasta ári en að sögn Pét- urs er þróunin hröð í þá átt að skipin stækka. Sem hvað best má sjá á því að bókanir fyrir sumarið 2013 hafa nú þegar náð rúmlega brúttó- tonnafjölda ársins í ár en skipin eru 15 færri á bak við tölu ársins 2013 en í ár. „Stóru skipin eru hag- kvæmari fyrir félögin, þau horfa í olíueyðsluna og til að mynda sjáum við að skipin sigla hægar en áður til að spara olíu. Akureyrarhöfn er vel undir það búin að taka á móti bæði stækkandi skipum og verulega auknum fjölda farþega en vissulega mun þessi þróun reyna á ýmsa innviði hér í samfélaginu hvað varðar þjónustu við skemmtiferðaskipin. Þar má nefna t.d. bílakost vegna skoðunarferða, leiðsögu- menn, framboð í verslunum og þjónustu, opnunartíma þannig mætti áfram telja,“ segir Pétur en segja má að umtalsverðar breytingar hafi orðið í skemmtiferðaskipa- þjónustunni á síðustu 12-15 árum. Á þeim tíma hefur fest sig í sessi það mynstur sem er í dag, þ.e. að um 65% af far- þegum skipanna nýti sér skipulagðar hópferðir bæði í Mývatnssveit, að Goðafossi, í Laufás, Eyjafjarðarsveit og innanbæjar á Akureyri. Skoðunarferðirnar eru lykilatriði „Þetta hlutfall í skipulagðar skoðunarferðir, sem raunar er svipað og í Reykjavík, er mun hærra en gengur og gerist á viðkomustöðum skemmti- ferðaskipanna. En um leið eru þessar ferðir lykilatriði í áhuga skipafélaganna á að hafa hér viðkomu því þau hafa beinar tekjur af þessum þjónustukaupum farþeganna. Áhugi skipafélaganna á Akur- eyri er einmitt vegna skipu- lögðu skoðunarferðanna,“ segir Pétur en þjóðerni far- þeganna í sumar eru um og yfir sjötíu. Farþegar skemmtiferða- skipanna skilja eftir mikla fjár- muni í Akureyri og nærsveit- um og áætlar Pétur að í ár nemi þær á níunda hundrað milljónum þegar með eru taldar tekjur af hafnargjöldum sem nema röskum 100 millj- ónum króna. „Skemmtiferðaskipin eru því hlekkur í ferðaþjónustu, verslun og hafnarstarfsemi sem skiptir sem skiptir svæð- ið okkar mjög miklu máli,“ segir Pétur. Skemmtiferðaskipin skilja mikið eftir Hátt hlutfall farþega skemmtiferðaskipanna sem hafa viðdvöl á Akureyri nýtir sér skipulagðar skoðunarferðir. Sá hópur far- þega er einnig fjölmennur sem fær sér gönguferð um bæinn, lítur inn í verslanir og á veitingastaði.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.