Ægir - 01.06.2012, Page 18
18
F I S K M A R K A Ð I R
„Þetta gengur nokkuð sinn
vanagang hjá okkur miðað við
árstíma. Reynslan síðustu ár
hefur verið sú að sumrin hafa
verið ágæt hér á fiskmarkaðn-
um enda margir minni bátar á
sjó á þeim árstíma. Hjá okkur
leggja upp allt frá minnstu
bátunum upp í stór skip - öll
flóran ef svo má segja,“ segir
Styrmir Jóhannsson hjá Fisk-
markaði Suðurnesja í Grinda-
vík. Samt sem áður eru vetrar-
mánuðirnir mun stærri en
sumartíminn í löndunum hjá
markaðnum enda segir Styrm-
ir að margar útgerðir kjósi að
stoppa yfir hásumartímann,
bæði vegna kvótastöðu og til
að gefa áhöfnum kærkomið
sumarfrí.
„Þorbjarnarskipin stoppa
yfirleitt yfir hásumarið og
byrja síðan aftur eftir verslun-
armannahelgina. Gjögursbát-
urinn Vörður landar alltaf
einu sinni í viku hjá okkur og
fleiri bátar eru í reglulegum
viðskiptum. Síðan eru Horna-
fjarðarbátarnir Þórir og Skinn-
ey á humri hér vesturfrá og
landa hjá okkur öðrum teg-
undum en þorski og humri
en þeim tegundum er keyrt
héðan austur á Hornafjörð til
vinnslu,“ segir Styrmir.
Kaupendur víða að
Aðspurður segir Styrmir að
viðskiptavinir FMS í Grinda-
vík séu um allt land en mikið
fer af aflanum af markaðnum
til ferskfiskvinnslufyrirtækj-
anna á höfuðborgarsvæðinu.
„Við höfum reyndar sterk fyr-
irtæki hér á Suðurnesjunum í
karfavinnslu og síðan eru að-
ilar sem kaupa hér afla sem
fluttur er út í gámum. Hann
fer þá gjarnan í til slægingar í
Keflavík þar sem gengið er
frá honum til útflutnings,“
segir hann en niðursveifla í
ýsustofninum sést glögglega í
lönduðum afla á fiskmark-
aðnum í Grindavík. Hvað þá
tegund varðar segir Styrmir
að aflinn sé í takti við þær
mælingar og þá ráðgjöf sem
Hafrannsóknastofnunin hafi
nýlega sett fram um ýsuna.
Hæst verð í vikubyrjun
Heilt yfir segir Styrmir að
verð hafi haldist gott á fisk-
markaðnum í sumar. „Við
sáum eins og venjulega upp-
sveiflu í verðinu dagana eftir
sjómannadaginn og síðan er
mynstrið þannig að verðið er
hæst í byrjun vikunnar en
lægra þegar líður nær helgi,“
segir Helgi.
Sextán bátar eru á strand-
veiði frá Grindavík og segir
Helgi að þeir hafi ekki gert
meira en svo að ná skammt-
inum. „Nei aflinn hjá þeim
hefur verið frekar lítill að
undanförnu og aðallega ufsi
núna. Hér er handfæraveiði
aðallega í maí og fram í miðj-
an júní. Eftir það fer verulega
að draga úr henni og þannig
hefur þetta verið í gegnum
árin.“
Löndun við Grindavíkurhöfn og fjöldi ferðamanna fylgist grannt með hvernig íslensku þjóðarverðmætin verða til.
Fiskmarkaður Suðurnesja í Grindavík:
Besta verðið fyrri
hluta vikunnar