Ægir - 01.06.2012, Síða 19
19
F I S K M A R K A Ð I R
„Framboðið á fiski hjá okkur
hefur verið mjög gott hjá að
undanförnu. Það er alltaf líf-
legt framan af mánuðunum í
strandveiðinni en síðan fylla
menn skammtinn og verða að
bíða eftir næsta tímabili. En
við sjáum það líka að margar
útgerðir stærri skipa eru bún-
ar eða komnar mjög langt
með kvótann og komnar í
sumarfrí. Í sumum tilfellum
hafa stærri skip sem lagt hafa
upp hjá okkur skipt yfir á
makríl. Mér sýnist margt
benda til að sumarið verði
frekar rólegt hjá okkur,“ segir
Örn Smárason hjá Fiskmark-
aði Íslands við Reykjavíkur-
höfn.
Mikil umræða var um afla-
meðferð á strandveiðibátun-
um þegar því kerfi var komið
á fót en mikil áhersla hefur
verið lögð á fræðslu til
strandveiðimanna um gildi
þess fyrir gæði hráefnisins að
ísa á réttan hátt. Örn segir
gæði strandveiðiaflans sann-
arlega hafa batnað mikið frá
því í upphafi kerfisins. „Það
komu margir inn í strand-
veiðina sem ekki höfðu áður
verið á sjó eða menn sem
höfðu ekki verið lengi í
þessu. Eðlilega tekur það
sinn tíma að slípa þetta til en
mér sýnist þetta atriði á réttri
leið. Hjá okkar markaði hefur
þetta verið í góðu lagi og
ekkert undan aflameðferðinni
að kvarta,“ segir Örn.
Stöðugleiki í verðinu
Nokkur stærri skip landa
reglulega hjá Fiskmarkaði Ís-
lands í Reykjavík, samanber
Vestfjarðatogarann Stefni ÍS
frá júlí og fram í janúar.
Sömuleiðis landar Hornafjarð-
arbáturinn Steinunn öðrum
tegundum er þorski inn á
markaðinn og nýverið byrjaði
ísfisktogarinn Frosti á Greni-
vík að landa hjá markaðnum.
„Það eru í sjálfu sér ekki
mörg stærri skip sem landa
hjá okkur en munar vissulega
mikið um hvert þeirra,“ segir
Örn.
Líkt og hjá öðrum mörk-
uðum var verðuppsveifla
fyrstu dagana eftir sjómanna-
daginn sem Örn segir að
hluta hafa skýrst af því að
floti stærri skipa lét ekki strax
úr höfn. Verðuppsveifla á
þessum tíma hafi hins vegar
alltaf orðið. „Verðið hefur
hins vegar haldist gott og
stöðugt síðustu misseri og
einna helst að það hreyfist til
ef koma langvinnir brælukafl-
ar. Gæftirnar að undanförnu
hafa verið góðar og því litlar
sveiflur orðið í fiskframboð-
inu inn á markaðina.“
Fyrirsjáanleg skerðing á
ýsukvóta mun koma illa við
fiskmarkaðina, segir Örn.
„Ýsan er fiskur sem er að
mjög stórum hluta seldur á
fiskmörkðunum og gefur
auga leið að þegar aflinn
dregst mikið saman á þessari
tegund þá kemur það fram
hjá okkur. Engin spurning
um það,“ segir hann en þó
ýsan eigi í vök að verjast
verður ekki það sama sagt
um þorskinn. Meira af hon-
um og meðalþunginn eykst.
„Þorskurinn sem við fáum
hér inn á markaðinn er að
vísu ekki mjög stór, enda af
smærri bátum hér skammt
undan landi. En heilt yfir eru
þorskurinn jafnt og þétt að
þyngjast.“
Fiskmarkaður Íslands við Reykjavíkurhöfn:
Minni ýsuveiði kemur
við fiskmarkaðina
Örn Smárason. Meðalþyngd á þorskinum eykst jafnt og þétt.
Fiskiskip í Reykjavíkurhöfn.