Ægir - 01.01.2013, Side 30
30
Fyrirtækið Stólpi-Gámar ehf. í
Klettagörðum í Reykjavík hef-
ur til sölu eða leigu 20 og 40
feta frystigáma fyrir sjávarút-
veginn og segir Hilmar Hákon-
arson að margir nýti sér þá
þjónustu að leigja gáma til
skemmri tíma. Hann segir að
markaðurinn hafi tekið vel við
þessari þjónustu en með því
að leigja frystigámana geti
fyrirtækin mætt toppum í
starfseminni og leyst tíma-
bundin geymsluvandræði með
einföldum hætti.
„Í stað þess að fjárfesta í
frystigámum geta fyrirtækin
leigt þá af okkur en við flytj-
um þá að sjálfsögðu á stað-
inn og tökum til baka að lok-
inni notkun fyrir vægt verð.
Þetta hefur mælst afar vel fyr-
ir,“ segir Hilmar Hákonarson,
sölustjóri fyrirtækisins.
Stólpi Gámar hafa um ára-
bil annast viðgerðir á vöru-
flutningagámum og einnig
keypt laskaða gáma og gert
upp til endursölu. Fyrirtækið
býður til sölu og leigu flutn-
ings- og geymslugáma í öll-
um stærðum og gerðum,
bæði notaða og nýja, s.s.
þurrgáma, einangraða gáma,
frystigáma og tankgáma. Þá
er fyrirtækið einnig með fjöl-
margar stærðir af gámum og
gámahúsum til sölu og leigu
sem geta nýst sem geymsla
undir lager, fyrir árstíða-
bundnar vörur, búslóðir og
margt fleira. Stólpi-Gámar er
samstarfsaðili Con-
tainex hér á
landi.
„Við hjá
Stólpa-
Gámum
eigum
ávallt á lag-
er tilbúin
gámahús til
ýmissa
nota, t.d.
sem við-
bótar gisti-
rými fyrir
verktaka,
ferðarþjón-
ustu, skrif-
stofur, kaffi-
stofur og margt
fleira. Einnig býður fyrirtækið
WC einingar sem koma með
öllum tækjum og lögnum og
eru tilbúin til notkunar.“ Að
sögn Hilmars er aðalkostur-
inn við gámahúsin sá að þau
koma algerlega tilbúin til
notkunar og er ekkert annað
eftir en að tengja þau við
vatn og rafmagn. Hægt er að
raða saman mörgum gámum
og mynda þar með stærri
rými, einnig er hægt að stafla
þeim upp og spara þar með
pláss – möguleikarnir eru
nánast ótæmandi.
Stólpi ehf. er gamalgróið
fyrirtæki sem hóf starfsemi
sína 1974. Stólpi ehf. er til
húsa að Klettagörðum 5 í
Reykjavík en þar er fyrirtækið
með gámaviðgerðir, járn-
smiðju og trésmiðju í 875 m2
húsnæði.
Stólpi-Gámar ehf.:
Frysti-
gámar
og gáma-
hús
Hilmar Hákonarson sölustjóri við frystigáma á athafnasvæði fyrirtækisins við
Klettagarða í Reykjavík.
Þ J Ó N U S T A