Ægir - 01.01.2013, Side 38
að hugsa þær fyrir þarfir
strandveiðiflotans. Hröð kæl-
ing er mikilvæg í öllu ferlinu,
allt frá móttökunni og niður í
lest skipanna. Við vitum af
reynslunni að kælingin hefur
allt að segja fyrir gæði aflans
og hún er aðal atriðið þegar
upp er staðið. Íslendingar
eiga í harðri samkeppni á
ferskfiskmörkuðum erlendis
við tvífrystan fisk og í þeirri
samkeppni skiptir hver dagur
í lengri hillulíftíma öllu máli.
Að mínu mati er vitundin hér
á landi um þessi mál mjög að
aukast en samt sem áður er
fjárfestingin of lítil. Hún þarf
að aukast og styrkja þar með
samkeppnishæfni okkar á
mörkuðum. Aukin gæði og
hærra verð þurfa að haldast í
hendur,“ segir Þorsteinn.
Bæði fyrir skip og landvinnslur
Fljótandi ísinn, sem fram-
leiddar eru með vélum Thor
Ice, hefur breytilegan hita í
upphafi eftir því hversu
þykkur hann er. Hitastigið er
jafnan á bilinu mínus tvær til
þrjár gráður í upphafi. Vél-
búnaðinum er komið fyrir á
vinnsluþilfari togaranna og er
ísinn framleiddur úr sjó. Eins
og áður segir er algengt að
ísinn sé notaður til að kæla
aflann niður strax í móttöku á
vinnsluþilfari. Breytilegt er
síðan eftir aðstæðum hvernig
ísinn er notaður í vinnsluferl-
inu til að tryggja að hráefnið
haldist jafnan í sem bestri
kælingu.
„Í þeim tilfellum þegar við
setjum vélarnar upp fyrir
landvinnslu erum við með
búnaðinn í gámum við land-
vinnsluhúsin. Okkar ís-krapa-
strokkar hafa verið settir í slík
kerfi hérlendis og m.a. í upp-
sjávarvinnslu Ísfélags Vest-
mannaeyja þar sem mjög
góður árangur er af notkun
fljótandi íss. Kæling ehf. bjó
þau kerfi til með ískrapa-
strokkum frá Thor Ice. Það
eru víða möguleikar til að
koma þessum kerfum fyrir
enda af hinu góða að geta
tryggt kælingu hráefnisins á
öllum stigum vinnslunnar,“
segir Þorsteinn.
Thor Ice hefur frá upphafi
annast þróun, framleiðslu á
ískrapastrokkum vélanna og
markaðssetningu búnaðarins
en frá árinu 2006 hefur Kæl-
ing hf. verið samstarfsaðili
fyrirtækisins á Íslandi í smíð-
um og uppsetningu.
„Ég hef fulla trú á að
markaðurinn hér heima eigi
eftir að taka talsvert við sér á
næstunni. Það mæli ég af
auknum áhuga á hráefnis-
gæðum sem er lykilatriði í
framleiðslu á samkeppnisfær-
ari afurðum á neytendamark-
aði,“ segir Þorsteinn Víg-
lundsson.
Hér sést ískrapakerfi frá Thor Ice ehf. í stórum gámi við landvinnslu í Skotlandi. Þetta er vistvænt ammoníakkerfi sem framleiðir 300 tonn af ískrapa á sólarhring. Þróun
á þessu kerfi var styrkt af Tækniþróunarsjóði.
Þ J Ó N U S T A
38