Fréttablaðið - 16.09.2015, Side 46

Fréttablaðið - 16.09.2015, Side 46
| SMÁAUGLÝSINGAR | 16. september 2015 MIÐVIKUDAGUR20 fasteigniratvinna Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. september 2015, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 7. september 2015 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. september 2015, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkis- sjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrir- vara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. september 2015 Tollstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum St:kk:vík :h:. ó:k:: :fti: :ð :áð: v::t :ó:k í b:it:i: :: á :t:::::töðv:: :í::: í Grindavík Sandgerði. Upplýsingar gefur: ::::::: :::::: : :::::::: BEITNINGARFÓLK ÓSKAST Húsvörður – StaðarhaldariHúsfélagið að Löngulínu 2 í Garðabæ vill ráða húsvörð - staðarhaldara í hlutastarf (30-35%) auk nokkurra auka verka eftir samkomulagi. Verkefni staðarhaldara eru almenn þrif á sameign, umhirða um lóð, bílastæði og bílageymslu auk minniháttar viðhalds og endurbóta. Staðarhaldari þarf að vera laghentur og útsjónarsamur og hafa auga fyrir því sem betur má fara. Í húsinu eru 48 íbúðir í þremur stigagöngum ásamt bílageymslu. Skriflegar umsóknir berist: Eignaumsjón hf. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík eða starfsumsokn@eignaumsjon.is Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2015. ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17. Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali. Miðvangur 2 - Hafnarfirði. 6-7 herbergja endaíbúð. Mjög falleg 156,4 fm. 6-7 herbergja endaíbúð á 2. hæð með frábæru útsýni í nýlega viðgerðu og klæddu fjölbýlishúsi við Miðvang í Hafnarfirði. Íbúðinni fylgir til viðbótar um 50 fm. gluggalaust rými í kjallara með fullri lofthæð. Samtals um 206,0 fm. í heildina. Stórt eldhús með miklum innréttingum. Samliggjandi stofur og 4 herbergi. Skjólsælar svalir til suðurs. Verð 37,9 millj. Staðsetning er afar góð við opið svæði og örstutt frá skólum og annarri þjónustu. Íbúð merkt 0201. Verið velkomin. Eignin verður til sýnis frá kl. 17.15 – 17.45 OPIÐ HÚS - með þér alla leið - 569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is Óskar R. Harðarson hdl. og löggiltur fasteignasali Nánari upplýsingar veitir Svan G. Guðlaugsson sölufulltrúi og nemi til löggildingar fasteignasala sími: 697 9300 svan@miklaborg.is Skrifstofuhúsnæði á besta stað í miðbænum Um er að ræða tvær hæðir og ris samtals 240 fm Möguleiki að leigja húsið út í tvennu lagi Húsnæðið er nýlega uppgert á vandaðan máta Ægisgata 26 Til leigu HOFTEIG 20, jarðhæð Furugerði v. Álmgerði • Sími 588-2030 • Fax 588-2033 Lögg.fast. Sigríður Gunnlaugsdóttir Um er að ræða sérhæð á besta stað í Teigahverfinu, - jarðhæð í fjögurra íbúða húsi við rólega götu. Íbúðin er 106,7 fm. Gengið er inn í anddyri á vesturhlið hússins, innan af því er rúmgott hol og inn af holi eru tvö stór svefnherbergi, geymsla, baðherbergi, rúmgott eldhús og góð, björt stofa þar sem útgengt er á hellulagða verönd og þaðan út í fallegan gróinn garð. Í eldhúsi er viðarinnrétting, gaseldavél og uppþvottavél. Baðherbergi er flísalagt og í því er stór flísalagður sturtuklefi. Sólveig tekur á móti gestum klukkan hálf fjögur sunnudaginn 16. september. OP IÐ HÚ S OPIÐ HÚS - SUNNUDAG MILLI 15.30 OG 16.00 LINNETSSTÍGUR 2 - HAFNARFIRÐI Grensásveg 50, 108 Rvk • Sími 588-2030 • borgir@borgir.is Lögg.fast. Sigríður Gunnlaugsdóttir OPIÐ HÚS í DAG MIÐVIKUDAG KL. 17.30 TIL 18.00 Borgir s. 588-2030 kynna : Opið Hús - íbúð 302: Flott þriggja herbergja ca 100 fm íbúð á þriðju hæð í miðbænum á horni Strandgötu og Linnetsstígs. Sér inngangur af svölum. Bílskýli – lyfta frá bílakjallara. Þvottahús og geymsla innan íbúðar og einnig geymsla innaf bílastæði. Horft af suður svölum yfir Thorsplanið sem er miðtorg Hafnarfjarðar. Komið og skoðið fallega eign á sérstökum stað. Sölumaður Borga á staðnum s. 896-8030. OPI Ð H ÚS tilkynningar Er verið að leita að þér? radum.is SMIÐIR - VERKAMENN - MÚRARAR HANDAFL EHF s. 777 2 333 Erum með vana smiði, verkamenn, múrara og pípara sem eru klárir í mikla vinnu. 1 6 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 4 5 -F B B 0 1 6 4 5 -F A 7 4 1 6 4 5 -F 9 3 8 1 6 4 5 -F 7 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.