Fréttablaðið - 16.09.2015, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 16.09.2015, Blaðsíða 30
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, jonatan@365.is, s. 512 5446 Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson. Íbúð Sirrýjar í Kórahverfinu í Kópavogi er björt og fal-leg. Eldhúsið og stofan eru í opnu rými og þar finnst henni best að vera. Sirrý hannaði eld- húsið sjálf þegar hún flutti inn í íbúðina ásamt manni sínum fyrir um sex árum. „Mér finnst best hvað eldhúsið er stórt og rúmgott, borðplássið er mikið og svo hef ég þennan klassíska þríhyrning,“ segir Sirrý glað- lega og sýnir hvernig gott sé að hafa vinnuborð til beggja hliða og svo borðstofuborðið fyrir aftan. Henni líkar einnig vel hve innréttingarnar eru sterkbyggð- ar og auðveldar í þrifum. „Eins fannst mér skipta máli að borð- platan væri úr steini því þá get ég lagt allt heitt beint á borðið. Það er gott að þurfa ekki enda- laust að passa sig í eldhúsinu,“ segir hún. Smákökur á fjórum hæðum Sirrý ákvað að kaupa sér flott- asta ofninn frá AEG í eldhús- ið. „Ég sé ekkert eftir því. Ég var búin að eiga nokkra áður og fannst alltaf eitthvað vanta. En þessi er kraftmikill með góðan blástur þannig að ég get verið með fjórar hæðir af smá- kökum í einu,“ segir Sirrý sem sinnir vinnu sinni oft að heim- an. „Ég kann svo vel á ofninn minn þannig að ég nota hann til að baka fyrir blaðið,“ segir hún brosandi. Aldrei hugmyndasnauð Flestir glíma við það frá degi til dags að ákveða hvað eigi að vera í kvöldmatinn. Sirrý skortir hins vegar sjaldan nýjar hugmyndir. En er eitthvað sem henni þykir skemmtilegra að elda en annað? „Nei, en ég fer í gegnum viss tímabil, fæ dellu og nota mikið af einu hráefni í einhvern tíma. Ég er á dilltímabilinu núna,“ segir hún og bætir glettin við að ekki séu allir jafn hrifnir af dill- inu. „Fjölskyldan er hálfvegis að bíða eftir að þetta gangi yfir,“ segir hún og hlær hjartanlega. Græjukona í seinni tíð Sirrý segist ávallt hafa haft þá trú að það þyrfti ekki græjur til að elda góðan mat. „En svo eru þær farnar að laumast inn síðustu árin,“ segir hún glett- in. „Nýjasta ástin mín er ísvélin mín sem ég var búin að láta mig dreyma um lengi. Ég er búin að nota hana mikið en hef reyndar ekki enn komið með ís í vinnuna og samstarfskonur mínar kvarta mikið yfir því. Ísinn virðist bara eyðast upp hérna heima,“ segir hún og hlær. En hvað langar hana í næst? „Mig langar dálítið í stóran Le Creuset-pott. Ég á einn lítinn en þar sem ég á þrjú börn og fullt af barnabörnum er tími kominn á risa mömmupott.“ Er á dilltímabilinu Sigríður Björk Bragadóttir, ristjóri Gestgjafans, eyðir ótölulegum stundum í eldhúsinu sínu. Þar sinnir hún bæði aðaláhugamáli sínu eldamennskunni og vinnunni enda treystir hún best sínum eigin ofni þegar bakstur er annars vegar. Sirrý er ávallt með ferskar kryddjurtir tiltækar í eldhúsinu. Sirrý hefur safnað að sér glösum úr ýmsum áttum. Sirrý dvelur löngum stundum í eldhúsinu sínu enda kann hún afar vel við sig þar. MyNdir/GVA Sirrý hannaði eldhúsið sitt sjálf og lagði áherslu á borðpláss og notagildi. Sirrý á gott safn af ólífuolíum. Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 Kynning − auglýsingEldhús 16. September 2015 mIÐVIKUDAGUr2 1 6 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 4 5 -F B B 0 1 6 4 5 -F A 7 4 1 6 4 5 -F 9 3 8 1 6 4 5 -F 7 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.