Fréttablaðið - 16.09.2015, Side 42
| 10 16. september 2015 | miðvikudagur
Uppbygging í Helgafellslandi
Teikningar skoðaðar Nánast allar fjölbýlishúsalóðir í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ eru seldar og segir Haraldur Sverrisson, bæjar-
stjóri Mosfellsbæjar, að mikil uppbygging sé fram undan. Hann tók fyrstu skóflustunguna að tveimur fjölbýlishúsum, með 55 íbúðum, sem
verktakafyrirtækið MótX reisir í hverfinu og sést hér virða fyrir sér teikningar að húsinu ásamt verktökunum.
Hin hliðin
Þetta gátum við!
Guðrún Högnadóttir
framkvæmdastjóri hjá
Franklin Covey
Þegar miðlar heims nærast á slæmum
fréttum og samtöl okkar sækja í hálf
tóma glasið kann okkur að finnast
verkefni dagsins óyfirstígan
leg. Hörmungarnar fyrir botni
Miðjarðarhafs eru allt í einu
orðnar daglegur hluti af evr
ópskum veruleika; vantrú
fjöldans á íslensk stjórn
mál birtist ítrekað í könn
unum og kjörsókn; að
ógleymdri biðinni endalausu
eftir sumrinu sem sveik suma.
Aftur.
Hvernig eigum við að hafa
áhrif á gang mála þegar verk
efnin eru þetta yfirþyrm
andi? Stöndum við vanmátt
ug frammi fyrir áskorunum dagsins?
En höfum við virkilega þetta lítil
áhrif? Hugsum aðeins til baka.
Vissir þú að á aðeins 45 árum tókst
heimsbyggðinni að lengja meðallífald
ur úr 48 árum í 66 ár? Þetta tókst okkur
með betri lífskjörum, framförum í heil
brigðisfræðum og öðrum lýðheilsu
fræðilegum verkefnum samkvæmt
CDC.
Vissir þú að á aðeins 25 árum tókst
okkur að minnka ungbarnadauða um
helming eða úr 91 í 41 barn sem deyr
fyrir 5 ára afmælið sitt fyrir hver 1.000
sem fæðast. The World Bank metur það
svo að við höfum bjargað lífi 48 millj
óna barna um heim allan frá aldamótum
m.a. með bættum sýkingavörnum, heil
brigðisþjónustu, næringu og aðgangi að
hreinu vatni.
Frá 1990 tókst okkur að lækka um
helming tíðni alvarlegrar fátæktar.
Fyrsta þróunarmarkmið Sameinuðu
þjóðanna er einmitt að enda birtingar
mynd fátæktar alls staðar, enda lifir
enn einn af hverjum fimm íbúum í þró
unarlöndum af minna en 160 krónum
daglega.
Hér heima tókst okkur á nokkrum
áratugum að útrýma berklum, draga
verulega úr reykingum, minnka svo
um munar fordóma gagnvart samkyn
hneigðum, virða betur framlag beggja
kynja, efla menntun, rækta heims
klassa íþróttamenn og tónlistarmenn,
færa okkur á methraða frá því að vera
algjörlega háð náttúruauðlindum, og
stíga öldur efnahags ólgusjós þannig að
eftir er tekið. Hverju gætum við áorkað
á næstu fimm árum?
Með samstilltu átaki flytjum við fjöll.
Og sem betur fer erum við alltaf með
auga á næsta fjalli sem við þurfum að
klífa saman: umhverfismálin, heims
friður, útrýma fordómum, tryggja enn
meiri jöfnuð og tækifæri fyrir alla.
Lykilatriði í öllum framförum er að
læra og upplýsa. Að halda fast í þá mynd
af heimi sem við viljum búa í. Einsetj
um okkur breytingar góðs. Við berum
öll ábyrgð á góðum heimilum, góðum
vinnustöðum, góðum heimi.
Og mundu svo að sólin leynist í hjarta
þínu.
Almannatenglar eru sérfræð
ingar í samskiptum og ráðleggja
fólki, fyrirtækjum og stofnunum
hvernig best er að koma skila
boðum á framfæri til almennings
og hagaðila. Einn angi af þeirri
þjónustu er krísustjórnun.
Fyrstu viðbrögð skipta öllu
Áföll geta verið af ýmsum toga,
hvort sem þau eru af völdum
óhappa, mannlegra mistaka
eða náttúruhamfara. Fagleg og
fumlaus viðbrögð strax í upp
hafi skipta sköpum um farveg
umræðunnar í kjölfarið en við
horf almennings mótast að miklu
leyti af fyrstu viðbrögðum þess
sem í hlut á. Þögn, útúrsnúning
ur, önugheit eða misvísandi upp
lýsingar geta valdið skaða, jafn
vel óbætanlegum.
viðbragðsáætlun er
mikilvæg
Enginn gulltryggir sig gegn
óhöppum í lífinu en það er vissu
lega hægt að vera vel undirbúinn,
með viðbragðsáætlun tiltæka. Í
góðri viðbragðsáætlun er að
finna ítarlegan lista yfir helstu
ógnir eða hættur sem að steðja
og hver viðbrögðin ættu að vera.
Fámennt en öflugt áfallateymi
kemur að mótun viðbragðsáætl
unar, þekkir hana vel og tekur
til starfa þegar krísur dynja yfir.
Allar boðleiðir þurfa að vera
skýrar og vel útfærðar, hvort
sem þær tengjast upplýsinga
flæði innanhúss eða út á við. Upp
lýsingaflæðið þarf að vera vel
skipulagt og samræmt. Hvern
ig skal miðla upplýsingum? Eiga
þær erindi við alla eða varða þær
einungis fáa? Hver er talsmaður
fyrirtækisins?
sannleikurinn er
sagna bestur
Talsmaður þarf að vera vanur því
að koma fram í fjölmiðlum eða
hafa hlotið leiðsögn til að takast
á við það verkefni. Sannleikurinn
er að sjálfsögðu sagna bestur en
hvernig á að koma honum á fram
færi? Hvernig á að haga upplýs
ingum svo þær nái sem best til
almennings eða hagaðila?
Mörgum hættir til að fara í of
nákvæmar lýsingar og ná ekki
að skilja kjarnann frá hisminu.
Fjölmiðlar hafa hvorki tíma né
getu til að fjalla um málið í löngu
máli en vilja fremur kjarngóð og
meitluð skilaboð svo að fréttin
og innihald hennar skili sér sem
best til almennings.
ekki bíða eFtir að
sprengjan Falli
Sé niðurstaða greiningar sú að
málið eigi erindi við almenn
ing er ávallt best að hafa frum
kvæði að því að upplýsa um
málavexti. Slíkt stuðlar að trú
verðugleika og trausti og gefur
færi á að útskýra hvað hefur
gerst og hvernig unnið sé að
úrbótum.
Þá borgar sig ekki að reyna að
fela eða flýja vandann, „flótti“
skaðar viðkomandi fólk og
fyrir tæki. Öllum geta orðið á
mistök og þegar áföll dynja yfir
er ekki öll nótt úti. Viðbrögð
við áföllum geta á hinn bóginn
skipt höfuðmáli í því hvort orð
spor fyrirtækis, samtaka eða
stofnana skaðist verulega til
skemmri eða lengri tíma eða
hvort takist að snúa vörn í sókn
með skipulögðum viðbrögðum,
heiðarlegum útskýringum og
skýrum skilaboðum.
Góð viðbragðsáætlun er lykilatriði
Bryndís Níelsen,
almannatengslaráðgjafi
hjá Athygli
Allar boðleiðir
þurfa að vera
skýrar og vel útfærð-
ar, hvort sem þær
tengjast upplýsinga-
flæði innanhúss eða
út á við. Upplýsinga-
flæðið þarf að vera
vel skipulagt.
Í
nokkur ár hefur verið heimild í fjárlögum til að einka-
væða allt að 30 prósenta hlut ríkisins í Landsbankanum.
Ríkissjóður heldur á tæplega 99 prósenta hlut í bankan-
um á móti einu prósenti starfsmanna.
Í fjárlagafrumvarpi ársins 2016 kemur fram að
stefnt sé að sölu á 30 prósenta hlut í Landsbankanum
á næsta ári og að þessi einkavæðing geti sparað ríkissjóði
17,4 milljarða króna í vaxtagjöld á árunum 2016 til 2019.
Annar ríkisstjórnarflokkurinn, Framsóknarflokkurinn,
samþykkti á síðasta landsþingi ályktun um að Landsbank-
inn verði „samfélagsbanki“ í eigu ríkisins. Sé þessi álykt-
un lesin sést að þarna er verið að tala um að bankinn verði
fyrir fólkið og í þjónustu fólksins. Þegar
ályktun efnahags- og viðskiptanefndar
Sjálfstæðisflokksins frá síðasta lands-
fundi f lokksins er lesin kemur í ljós að
þar er ekki stafkrókur um einkavæð-
ingu Landsbankans. Þegar sjálfstæðis-
stefnan, sem var samin við stofnun
Sjálfstæðisflokksins árið 1929, er lesin
eftir orðanna hljóðan er ekki hægt að
draga þá ályktun að það gangi gegn
stefnu Sjálfstæðisflokksins að ríkið eigi
fjármálafyrirtæki, hvort sem það er
tímabundið eða til lengri tíma.
Undir venjulegum kringumstæðum
er það á skjön við ríkjandi hugmynd-
ir á Vesturlöndum að ríkissjóður eigi
og reki fjármálafyrirtæki. Á Íslandi,
330.000 manna eyríki í Norður-Atlants-
hafi, sjö árum eftir fordæmalaust alls-
herjar banka- og gjaldeyrishrun eru
hins vegar ekki venjulegar kringum-
stæður í þeim skilningi. Einhver kynni
að spyrja hvar eigi þá að draga línuna?
Á ríkið að reka olíudreifingarfyrirtæki
og f lugfélög af því þau eru þjóðhagslega
mikilvæg fyrirtæki? Auðvitað ekki.
Fjármálamarkaðurinn er hins vegar sérstaks eðlis og um
hann gilda önnur lögmál vegna þeirra óvenjulegu aðstæðna
sem hér ríkja. Þrír bankar fara með 90 prósenta markaðshlut-
deild á fjármálamarkaði. Tveir þessara banka eru í eigu slita-
búa sem eru svo í eigu erlendra vogunarsjóða. Það er alvar-
legur fákeppnismarkaður á íslenskum fjármálamarkaði og
almenningur hefur ekkert val um það hvort hann eigi í við-
skiptum við banka eða ekki. Öll laun eru greidd inn á banka-
reikninga og meginþorri allra bankaviðskipta eru rafræn.
Helstu rökin fyrir því að selja Landsbankann eru á þá leið
að ríkissjóður verði að endurheimta það fé sem sett var í
endurreisn bankakerfisins. Nú er það svo að Landsbankinn
hefur greitt ríkissjóði samtals rúmlega 54 milljarða króna í
arð fyrir rekstrarárin 2012, 2013 og 2014. Þess má geta að
upphafleg kostnaðaráætlun vegna byggingar nýs Landspít-
ala hljóðaði upp á 85 milljarða króna.
Kannski hugsa sumir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að
það sé alveg agalegt að ríkið eigi banka. Það megi ekki
spyrjast út að þeir hafi haldið óbreyttu eignarhaldi á þess-
um banka, hægrimennirnir sjálfir!
Ég er ekki rödd annars en sjálfs mín en ég þykist vita og
er raunar nokkuð viss í minni sök að meginþorri almenn-
ings hefur engan áhuga á frjálshyggjukreddum.
Að framansögðu virtu er ekkert sem kallar á einkavæð-
ingu Landsbankans á þessum tímapunkti. Líkur eru á því
að enginn græði á því nema þeir fjárfestar sem kaupa bank-
ann sem munu hagnast vegna sífellt hærri þjónustugjalda
sem almenningur greiðir.
Því má spyrja, hvað liggur á?
Það er ekki skynsamlegt að einkavæða Landsbankann „af því bara“:
Hvað liggur á?
Markaðshornið
Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@stod2.is
Það er alvar-
legur fákeppnis-
markaður á
íslenskum fjár-
málamarkaði
og almenningur
hefur ekkert val
um það hvort
það eigi í við-
skiptum við
banka eða ekki.
1
6
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
4
6
-2
3
3
0
1
6
4
6
-2
1
F
4
1
6
4
6
-2
0
B
8
1
6
4
6
-1
F
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K