Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Síða 4

Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Síða 4
Milan Kundera: Óbærilegur léttleiki tilverunnar Hvað gerir ungur læknir þegar fallega þjónustustúlkan S hótelinu úti á landi stendur allt í einu á tröppunum hjá honum í borginni með hafurtask sitt og er bara komin...? Tómas ákveður að hleypa hinni ástföngnu Teresu inn í líf sitt, en framhaldið er ekki á hans valdi - þau eru leiksoppar sögunnar, fómarlömb ytri afla eins og heimaland þeirra, Tékkóslóvakía. Örlög þess í greipum grannans í austri fléttast óviðráðanlega saman við öriög persóna bókarinnar. Samt er þetta engin harmsaga: Óbærilegur léttleiki tiluerunnar er full af óvæntri gamansemi og iýsir samhengi stjómmála, kynlífs og dauða með grátbroslegum hætti. Léttleiki frásagnarinnar og frelsi draumsins verður athvarf mannshugans andspænis óbærilegum lögmálum sögunnar. Milan Kundera er fæddur í Prag árið 1929. Hann hefur fengist við tónlist og kvikmyndir auk bókmennta, og hiotið fjölmargar viðurkenningar fyrir skáldverk sín. Árið 1975 fluttist hann til Frakklands, þar sem hann hefur búið síðan. Óbærilegur léttleiki tilverunnar kom fyrst út 1984 og hefur síðan verið þýdd á fjölmörg tungumál. Friðrik Rafnsson íslenskaði bókina sem er347 bls. Verð: 1590.-. Félagsverð: 1351.-. Mál og menning 4

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.