Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Side 24

Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Side 24
UGLAN — íslenski kil j uklúbburinn UGLAN - fslenski kiljuklúbburinn hóf göngu sína í apríl 1986. Klúbburinn fékk þegar mjög góðar undirtektir og eru nú um fimm þúsund félagar í honum. íslenski kiljuklúbburinn er með öðru sniði en aðrir bókaklúbbar hérlendis því hann byggir á áskriftarfyrirkomulagi með líkum hætti og tímarit. Klúbbfélagar fá senda bókapakka á rúmlega tveggja mánaða fresti, og í hverjum pakka eru ýmist þrjár eða fjórar bækur - í þeim fyrsta voru þær þó reyndar fimm. Verð pakkans er fast, og hefur það verið 498 krónur til þessa. Eina skuldbinding klúbbfélaga er að þeir kaupi þrjá pakka í röð, en að öðru leyti geta menn sagt upp áskriftinni þegar þeir vilja og eru þá lausir allra mála. Á fyrsta árinu sendi klúbburinn áskrifendum sínum þessar fimmtán bækur: / fyrsta pakka: Karen Blixen: Jörð í Afrfku. P.D. James: Vitnideyrl. P.D. James: Vitnideyr2. Leo Tolstoj: Stríð og friður 1. Veggjakrot og annar vísdómur. Verð bókanna í íslenska kiljuklúbbnum er ótrúlega lágt. Hver bókapakki kostar mun minna en ein venjuleg innbundin bók. Meðalverð bókar í kiljuklúbbnum fyrsta árið var 133 krónur. Þetta framtak er mjög í anda upprunalegs hlutverks Máls og menningar - að koma vönduðum bókmenntum á framfæri við almenning á verði sem engum er ofviða. Við bjóðum til bókaveislu þessi jól um Mál og menning 24

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.