Morgunblaðið - 31.12.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Starfsfólk Íbúðalánasjóðs
óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum
gleðilegs árs og farsældar á nýju ári.
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
4
79
4
www.ils.is
Borgartúni 21, 105 Reykjavík
sími 569 6900, fax 569 6800
Malín Brand
malin@mbl.is
Allar sex deildirheilbrigðisvísindasviðskoma að ráðstefnunnisem hefst fimmta janúar
á Háskólatorgi. Deildirnar sem um
ræðir eru læknadeild, hjúkrunar-
fræðideild, sálfræðideild, tann-
læknadeild, lyfjafræðideild og mat-
væla- og nærigarfræðideild.
„Ráðstefnan er haldin annað hvert
ár þegar vormisserið er að hefjast.
Aðaláherslan núna er á að stuðla
að samræðu á milli vísindamanna í
mismunandi greinum heilbrigðis-
vísinda til að stuðla að auknu þver-
fræðilegu samstarfi og auka skiln-
ing manna og nálgast viðfangsefnin
á marga mismunandi vegu,“ segir
Inga Þórsdóttir, prófessor og for-
seti heilbrigðisvísindasviðs Há-
skóla Íslands. Sumir nálgist það
frá sjónarhorni grunnvísindanna til
að skýra það sem liggi að baki
góðri heilsu eða kvillum á meðan
aðrir nálgist viðfangsefnin út frá
Innlit í vísindasam-
félag Háskóla Íslands
Sautjánda ráðstefna Háskóla Íslands um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum
verður haldin á Háskólatorgi í næstu viku. Hún er öllum opin en sá háttur hefur
ekki verið hafður á áður og ljóst að almenningur hefur mikinn áhuga á þeim
rannsóknum sem fara fram innan vísindasamfélags skólans. 165 fyrirlestrar
verða fluttir og fjalla þeir um ólík efni, allt frá grunnvísindum til hagnýtra lausna
í hjúkrun og læknisfræðilegri meðferð.
Morgunblaðið/Golli
Ánægð Inga Þórsdóttir, prófessor og forseti heilbrigðisvísindasviðs, fagnar
áhuga nemenda, kennara og almennings á ráðstefnunni sem er opin öllum.
Það hljómar ef til vill furðulega að
koma eggi fyrir í flösku án þess að
brjóta eggið og líka án þess að brjóta
flöskuna. Það er nú samt hægt. Á
skemmtilegri vefsíðu um efnafræði,
www.chemistry.about.com, er að
finna stórsniðugar aðferðir til að
leika hin ýmsu brögð með hjálp efna-
fræðinnar. Ungir vísindamenn geta
skemmt sér og lært um leið með því
að gera tilraunirnar sem eru á síð-
unni. Þó er betra að fara að öllu með
gát og hafa einhvern fullorðinn með
sér í liði við flóknari tilraunirnar. Ef
rýnt er í tilraunina með eggið og
flöskuna þá felst lærdómur hennar í
því að með því að hafa áhrif á hita-
stigið inni í flöskunni má nota loftið
til þess að ýta eggi ofan í hana. Það
er best að segja ekki meira til að
spilla ekki ánægju frróðleiksfúsra.
Svo má auðvitað búa til heitan ís!
Og breyta vatni í vín. Nú á gamlárs-
dag eru margir sem „kveikja í pen-
ingum“ eins og sumir segja um flug-
eldaæði landsmanna. Á síðunni er
einmitt tilraun sem felst í því að
kveikja í peningaseðli. Það er gert
með tiltölulega einfaldri efnafræði en
þó er ekki gengið svo langt að eyði-
leggja peningaseðilinn því hér er um
eins konar efnafræðitöfrabrögð að
ræða. Það er því um að gera að læra
nokkur góð brögð á gamlársdag.
Góða skemmtun!
Vefsíðan www.chemistry.about.com
Morgunblaðið/RAX
Mögulegt Það er hægt að koma eggi ofan í flösku án þess að brjóta nokkuð.
Hvernig má koma eggi í flösku?
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.