Morgunblaðið - 31.12.2014, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Dr. Unnur Birna Karlsdóttir, sagn-
fræðingur, hefur verið ráðin aka-
demískur sérfræðingur við starfs-
stöð Stofnunar rannsóknasetra
Háskóla Íslands á Egilsstöðum.
„Markmiðið er að rannsaka sögu
hreindýrsins á Íslandi og sess þess
í íslenskri náttúrusýn. Einkum
hvernig það hefur markað spor í
þjóðlíf á Austurlandi með sérstæð-
um hætti, enda ganga dýrin ekki
villt annars staðar á Íslandi,“ sagði
Unnur Birna um rannsóknarverk-
efnið. Hún hefur
störf við það í
apríl næstkom-
andi og er verk-
efnið hugsað til
tveggja ára.
Unnur Birna
kvaðst nú þegar
hafa fengið mynd
af sumu af því
sem rannsóknin
muni leiða í ljós
en sagði það ekki
vera í anda fræðilegra vinnubragða
að fjölyrða um niðurstöður fyrr en
að verkinu loknu.
„Það er von mín að þessi rann-
sókn á sögu sambúðar manna og
hreindýra á Íslandi í rúm 200 ár
auki þekkingu á þessum þætti í Ís-
landssögunni og dragi fram hvaða
lærdómur og tækifæri felast í
þeirri sögu sem nýta má með
margvíslegum hætti,“ sagði Unnur
Birna.
Sýning kveikti hugmyndina
Hún sagði að hugmyndin að
rannsókninni hafi kviknað í
tengslum við gerð sýningar um
hreindýrin á Austurlandi. Sýningin
verður opnuð í Minjasafni Austur-
lands á Egilsstöðum í sumarbyrjun
2015.
Unnur Birna hefur unnið að
undirbúningnum í tvö ár. „Sýningin
er unnin í samstarfi við Náttúru-
stofu Austurlands, enda starfa þar
okkar helstu sérfræðingar um
hreindýrin. Auk þess koma ótal
fleiri á Austurlandi að sýningar-
verkefninu, einstaklingar og stofn-
anir.“
Doktorsrit um samband
manns og náttúru
Unnur Birna lauk doktorsprófi í
sagnfræði frá Háskóla Íslands 2010
en áður hafði hún lokið MA- og
BA-prófi í sagnfræði og námi í
kennslu- og uppeldisfræði frá Há-
skóla Íslands, samkvæmt frétt frá
háskólanum. Doktorsritgerð henn-
ar heitir Þar sem fossarnir falla.
Náttúrusýn og nýting fallvatna á
Íslandi 1900-2008. Þar fjallar Unn-
ur Birna um samband manns og
náttúru út frá sjónarhóli og að-
ferðafræði umhverfissagnfræði.
Eftir Unni Birnu liggja fræði-
greinar og bókarkaflar auk skáld-
sögunnar Það kemur alltaf nýr
dagur. Hún hefur einnig flutt fjöl-
marga fyrirlestra um umhverfismál
og umhverfissagnfræði. Þá hefur
Unnur Birna komið að kennslu við
Háskóla Íslands og Háskólann á
Bifröst.
Unnur Birna hefur gegnt starfi
forstöðumanns Minjasafns Austur-
lands frá árinu 2012 en áður starf-
aði hún á Þjóðskjalasafni Íslands.
Þá hefur hún tekið virkan þátt í fé-
lagsstarfi sagnfræðinga og safna-
manna.
Starf akademísks sérfræðings
við Stofnun rannsóknasetra Há-
skóla Íslands á starfsstöð stofn-
unarinnar á Egilsstöðum var aug-
lýst sl. sumar og bárust sex
umsóknir. Að loknu dómnefndar-
og valnefndarferli var Unnur Birna
ráðin í starfið.
Sambúð manna og
hreindýra á Íslandi
Saga hreindýranna á Íslandi og sess þeirra í íslenskri nátt-
úrusýn Tveggja ára rannsóknarverkefni hefst í apríl nk.
Morgunblaðið/RAX
Hreindýr í Kringilsárrana Unnur Birna Karlsdóttir hyggst rannsaka sögu
sambúðar manna og hreindýra á Íslandi í rúm 200 ár. Hún vonast til að
rannsóknin auki þekkingu á þessum þætti í Íslandssögunni.
Unnur Birna
Karlsdóttir
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Alls bárust 86 umsóknir um starf
framkvæmdastjóra Strætó bs. sem
var auglýst í byrjun desember. Af
þeim drógu 15 umsóknirnar til baka.
„Þetta voru umtalsvert fleiri um-
sóknir en ég átti von á,“ sagði sagði
Bryndís Haraldsdóttir, stjórnar-
formaður Strætó bs. „Þetta sýnir að
fyrirtækið hefur jákvæða og góða
ímynd. Það eru greinilega margir
sem vilja komast í Strætó!“
Bryndís sagði að nú væri unnið úr
umsóknunum. Hún sagði að stjórn
Strætó bs. hefði samþykkt mats-
ramma en Capacent sæi um röðun
umsækjenda og fyrstu viðtöl. Stjórn-
in fær svo að sjá lista yfir röðun um-
sækjenda í fyrstu viku janúar en
kemur ekki að málinu fyrr en valinn
hefur verið þrengri hópur. Nöfn um-
sækjenda eru í stafrófsröð:
Nöfn umsækjenda
Aðalsteinn Jónsson, ráðgjafi, And-
res Konráðsson, framkvæmdastjóri,
Axel Rafn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri, Ásbjörn Kristinsson,
rekstrartæknifræðingur, Ásbjörn
Ólafsson, verkefnastjóri, Bjarni
Benediktsson, forstöðumaður, Björn
Jónsson, rekstrarráðgjafi, Björn S.
Lárusson, verkefnastjóri, Drífa Jóna
Sigfúsdóttir, MS mannauðsstjórnun,
Eiður Guðmundsson, verkefnis-
stjóri, Einar Kristjánsson, sviðs-
stjóri, Einar Örn Thorlacius, lög-
fræðingur, Elín Björg Ragnars-
dóttir, lögfræðingur, Elvar
Vilhjálmsson, gæða-, öryggis- og
umhverfisstjóri, Felix Gylfason,
markaðs- og sölustjóri, Garðar Lár-
usson, ráðgjafi, Garðar Svavar
Gíslason, viðskiptafræðingur, Gerð-
ur B. Pálmarsdóttir, gæða- og mann-
auðsstjóri, Guðjón Sigurbjartsson,
framkvæmdastjóri, Guðmundur
Helgi Sigfússon, slökkviliðsstjóri,
Guðmundur Þorkell Eyjólfsson,
þjónustustjóri, Gunnar Ingi Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri, Gylfi
Freyr Gröndal, kennari, Halldór
Árnason, ráðgjafi, Hallgrímur
Gunnþórsson, sérfræðingur, Hall-
grímur Ólafsson, viðskiptafræð-
ingur, Haukur Helgason, ráðgjafi,
Helga Jóhannesdóttir, viðskipta-
fræðingur, Helgi Þorkell Kristjáns-
son, aðstoðardeildarstjóri, Helgi
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri,
Hilmar Stefánsson, framkvæmda-
stjóri, Hlynur Loki Laufeyjarson,
rekstrarstjóri, Ingþór Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri, Ívar Ragnars-
son, deildarstjóri, Jóhannes Rúnars-
son, sviðsstjóri, Jón Arnar Sigur-
jónsson, rekstrarráðgjafi, Jón
Gunnar Borgþórsson, viðskipta-
fræðingur, Jón Halldór Jónasson,
upplýsingafulltrúi, Jón Hrói Finns-
son, stjórnsýslufræðingur, Jón
Svavarsson, ljósmyndari, Jónas G.
Einarsson, viðskiptafræðingur, Júlía
Rós Atladóttir, deildarstjóri, Júlíus
B. Benediktsson, rekstrarstjóri,
Karl Ottó Schiöth, viðskiptafræð-
ingur, Kristinn Dagur Gissurarson,
rekstrarstjóri, Lilja Guðríður Karls-
dóttir, samgönguverkfræðingur,
Magnús Árnason, framkvæmda-
stjóri, Magnús Helgi Jakobsson,
verkefnastjóri, Ólafur Ólafsson, við-
skiptafræðingur, Ólafur Þór Ólafs-
son, forstöðumaður, Óskar J. Sand-
holt, skrifstofustjóri, Óskar Örn
Jónsson, rekstrarverkfræðingur,
Páll Helmut Guðjónsson, strætóbíl-
stjóri, Pétur T. Gunnarsson, há-
skólanemi, Ragnar Marteinsson,
framkvæmdastjóri, Samúel Guð-
mundsson, MBA, Sandra Margrét
Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri
fjármála, Sesselja Traustadóttir,
verkefnastýra, Sigurður H. Engil-
bertsson, alþjóðamarkaðsfræðingur,
Sigurður Ingimar Ómarsson, mark-
aðsfræðingur, Sigurður Magnússon,
verkstæðisformaður, Stefán Har-
aldsson, tæknifræðingur, Styrmir
Bjartur Karlsson, ráðgjafi, Svavar
Halldórsson, framkvæmdastjóri,
Sverrir Arngrímsson, lektor, Viggó
E. Viðarsson, Þorbjörn Ólafsson,
sölustjóri, Þorsteinn Sigurðsson,
viðskiptafræðingur, Þorsteinn Þor-
steinsson, ráðgjafi, Þórður Guð-
björnsson, rekstrarhagfræðingur og
Þórir Ómar Grétarsson, verkfræð-
ingur.
Morgunblaðið/Þórður
Strætó bs. Nú er unnið úr 71 um-
sókn um starf framkvæmdastjóra.
Margir sóttu um
að stýra Strætó bs.
86 umsóknir bárust, 15 hættu við
Stefnt er að því að skilgreindum ald-
urshópi Íslendinga verði boðin
skipulögð leit að ristilkrabbameini,
það er sambærileg skimun og fyrir
krabbameinum í brjóstum og leg-
hálsi kvenna. Sú leit hefur skilað
miklu og er talið að skimun fyrir rist-
ilkrabbameini geri það ekki síður.
Leitarstarf þetta verður á vegum
Krabbameinsfélags Íslands en í gær
undirrituðu fulltrúar félagsins og
Okkar - líftrygginga samning um 11
millj. kr. stuðning við verkefnið.
Ristilkrabbamein er meðal al-
gengustu krabbameina sem greinast
hjá vestrænum þjóðum. Það er
þriðja algengasta dánarorsök
krabbameinssjúklinga á Íslandi. Ár-
lega greinast rúmlega 130 Íslending-
ar með þetta mein og 52 látast af
völdum þess, að jafnaði einn á viku.
Dánartíðnin fer þó lækkandi, því nú
er hægt að greina meinið á frumstigi.
Almennt er gert ráð fyrir að hóp-
leit ristilkrabbameins hefjist við 50
ára aldur. Annars mun hópur ráð-
gjafa móta áherslur Krabbameins-
félags Íslands í þessu verkefni og
leggja línur um framhaldið.
sbs@mbl.is
Leita skipulega að
ristilkrabbameini
Um 130 greinast
árlega Okkar styður
Morgunblaðið/Þórður
Stuðningur Ragnheiður Haralds-
dóttur hjá Krabbameinsfélaginu og
Valtýr Guðmundsson frá Okkar.