Fréttablaðið - 15.06.2015, Blaðsíða 2
15. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SVEITASTJÓRNARMÁL Gylfi Ingvars-
son, fulltrúi Samfylkingarinnar í
hafnarstjórn Hafnarfjarðar, fór
fram á óháða stjórnsýsluúttekt
á framferði meirihluta hafnar-
stjórnar og aðkomu Haralds Lín-
dal, bæjar stjóra Hafnarfjarðar,
í tengslum við fund sem fór fram
bæjarskrifstofu Hafnarfjarðar
laugardaginn 15. nóvember 2014 á
fundi nefndarinnar þann 11. júní.
Á bæjarskrifstofunni taldi
starfsmaður hafnarinnar sig vera
að ræða við Harald Líndal bæjar-
stjóra. Síðar hafi komið í ljós að um
hafi verið að ræða starfsmann R3
ráðgjafar að sögn Gylfa.
Már Sveinbjörnsson, hafnar-
stjóri Hafnarfjarðarhafnar, segir
að Unnur Lára Bryde, formaður
hafnarstjórnar og fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, hafi afhent starfs-
manninum bréf í byrjun febrúar
þar sem dregið var í efa að fund-
urinn hefði nokkru sinni átt sér
stað. Starfsmanninum hafi verið
gefinn kostur á að sanna að fundur-
inn hefði farið fram og annars yrði
hann áminntur. „Síðan var þetta
bréf dregið til baka viku seinna,“
segir Már.
Meirihluti hafnarstjórnar hafn-
aði tillögu Gylfa. Unnur Lára segir
að þegar hefði verið samþykkt í
bæjar stjórn að óháð stjórnsýsluút-
tekt færi fram á málefnum hafn-
arinnar síðastliðinn áratug og að
vonast væri til að hún kæmi út í
þessari viku.
Unnur vildi ekki tjá sig sérstak-
lega um þetta einstaka mál og bar
við trúnaði við starfsmanninn. -ih
Formaður hafnarstjórnar segir að von sé á úttekt á málefnum hafnarinnar síðustu tíu ár í vikunni:
Hafna beiðni um úttekt á hafnarmálinu
GYLFI INGVARSSON Fulltrúi Samfylk-
ingarinnar segir slæmt að meirihlutinn
sé dómari í eigin sök. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÖLDRUNARMÁL Stefnt er að því að
ljúka samningum sem leysa eiga
skuldavanda hjúkrunarheimilis-
ins Sunnuhlíðar í vikunni. „Það
eru að klárast ákveðnir samningar
við marga aðila til að koma dæm-
inu í höfn,“ segir Þóra Þórarins-
dóttir, formaður stjórnar sjálfs-
eignastofnunarinnar Sunnuhlíðar.
Vigdísarholt, félag í eigu ríkis-
ins, tók yfir rekstur hjúkrunar-
heimilisins á síðasta ári vegna
mikils skuldavanda Sunnuhlíðar.
Sunnuhlíð hefur hins vegar áfram
átt húsnæði hjúkrunarheimilisins
sem og átt og séð um rekstur íbúða
í nágrenni við heimilið.
Samkomulagið fellst í því að
ríkið mun eignast húsnæði hjúkr-
unarheimilisins við Kópavogs-
braut 1c gegn
því að taka yfir
h luta skulda
samtakanna,
sem námu hátt í
hálfum milljarði
samkvæmt árs-
reikningi ársins
2013. Sunnuhlíð
mun hins vegar
áfram eiga og
reka íbúðirnar.
Þá mun Kópavogsbær einnig
gefa eftir áfallin fasteignagjöld
á árunum 2009 til 2013 og fyrstu
þrjá mánuði ársins 2015, sem
nema 59 milljónum króna en með
áföllnum vöxtum samtals 81 millj-
ón króna. Tillaga þess efnis var
samþykkt af öllum ellefu bæjar-
fulltrúum í bæjarstjórn Kópavogs
þann 9. júní síðastliðinn með þeim
fyrirvara að kaup ríkisins á hús-
næði Sunnuhlíðar gengu eftir.
Á móti hyggst Kópavogsbær
draga saman útgjöld til fram-
kvæmda á þessu ári sem nemur
niðurfellingu fasteignagjalda svo
aðgerðin á ekki að hafa áhrif á
afkomu bæjarsjóðs.
„Það myndaðist strax þver-
pólitísk sátt um að Kópavogsbær
myndi komast að lausn málsins
með styrk sem nemur skuldinni,“
segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjar-
stjóri Kópavogs. Ármann segir að
brýnt hafi verið að tryggja rekstur
hjúkrunarheimilisins í bæjarfélag-
inu enda ætti það sér merka sögu.
ingvar@frettabladid.is
Vandi Sunnuhlíðar
leystur í vikunni
Stefnt er að því að ganga frá samkomulagi sem leysa á skuldavanda hjúkrunar-
heimilisins Sunnuhlíðar í vikunni. Ríkið mun eignast húsnæði hjúkrunarheimilisins
ásamt því að Kópavogsbær gefur eftir 81 milljónar króna fasteignagjöld auk vaxta.
SUNNUHLÍÐ Lausn á skuldavanda Sunnuhlíðar er í sjónmáli. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
TYRKLAND Örvilnun og skelfingarástand skapaðist á landamærum
Tyrklands og Sýrlands í gær þegar fjöldi flóttamanna reyndi að kom-
ast yfir landamæri Sýrlands til Tyrklands við tyrknesku borgina
Akçakale.
Kúrdaher og vígamenn Íslamska ríkisins berjast um landamæra-
borgina Tal Abyad Sýrlandsmegin landamæranna. Flóttamenn frá
nærliggjandi svæðum reyndu að þvinga sér yfir landamærin en
tyrkneski herinn hélt aftur af þeim með vatnsbyssum og skutu á þau
gúmmíkúlum.
Seinni part gærdagsins bárust þó fyrirmæli um að hleypa ætti
flóttamönnum til Tyrklands vegna neyðarástands. - srs
Tyrkir opnuðu landamærin fyrir sýrlenskum flóttamönnum:
Glundroði vegna stríðsástandsins
SKELFINGARÁSTAND Fjórar milljónir Sýrlendinga eru á flótta. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
NORÐURÞING Vegtengingar milli
Húsavíkurhafnar og iðnaðar-
svæðisins á Bakka munu reynast
ríkissjóði mun dýrari en ráð var
fyrir gert. Áætlanir gerðu ráð
fyrir 1,8 milljörðum króna í upp-
byggingu vegtenginga.
Meirihluti atvinnuveganefnd-
ar hefur lagt fram frumvarp um
að breyta lögum um uppbygg-
ingu á svæðinu til að geta mætt
þessum aukakostnaði. Mælst er
til þess að upphæðin falli brott
úr lögum svo hægt verði að
greiða framkvæmdina að fullu.
- sa
Framkvæmdir á Bakka:
Vegtengingar
fram úr áætlun
MENNTUN Í nýrri skýrslu Evr-
ópsku menntastofnunarinnar
kemur fram að ríki Evrópu-
sambandsins eru að færast nær
markmiðum sínum um að lækka
brottfall úr námi í tíu prósent.
Ísland er eitt þeirra ríkja sem
eiga aðild að mælingum um
brottfall í Evrópu en í skýrsl-
unni kemur fram að brottfall á
Íslandi er langt umfram meðaltal
Evrópusambandsins. Brottfall á
Íslandi nemur um 20 prósentum
ungmenna á aldrinum 18 til 24
ára en meðaltalið í Evrópusam-
bandinu er um 12 prósent. - srs
Brottfall úr námi minnkar:
Eru nær mark-
miðum sínum
VEÐUR
SJÁ SÍÐU 14
GRÆNLAND Þrír græn lenskir
stjórnmálamenn, þau Aleqa
Hammond, Kuupik Kleist og Steen
Lynge, hafa verið kærðir fyrir að
hafa misfarið með opinbert fé.
Fjórir íbúar á Grænlandi kærðu
þau til lögreglunnar og segja
stjórnmálamennina seka um
blekkingar, fjárdrátt og umboðs-
svik. Upphæðirnar nema sam-
tals rúmlega 270 þúsund dönsk-
um krónum, sem samsvarar fimm
og hálfri milljón íslenskra króna.
Grænlenska útvarpið KNR skýrir
frá þessu á fréttavef sínum.
Aleqa Hammond situr á græn-
lenska landsþinginu fyrir Siumut-
flokkinn og var formaður land-
stjórnarinnar í rúmlega ár frá
2013 til 2014. Hún sagði nokkuð
skyndilega af sér síðastliðið haust
eftir að fram komu ásakanir um
að hún hefði látið ríkissjóð greiða
flugferðir og hótelgistingu fyrir
sig.
Steen Lynge er þingmaður
Atassut- flokksins og er sakaður
um að hafa tvisvar sinnum tekið
fjölskyldu sína með í opinberar
ferðir. Kuupik Kleist sat á þingi
fyrir IA-flokkinn og var formaður
landstjórnar árin 2009 til 2013 og
er sagður enn eiga ógreidda skuld
sína við ríkissjóð.
- gb
Þrír grænlenskir stjórnmálamenn hafa verið kærðir fyrir spillingu og svik:
Sögð hafa misnotað opinbert fé
ALEQA HAMMOND Fyrrverandi formaður grænlensku landstjórnarinnar sagði af
sér síðastliðið haust vegna spillingarásakana. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Vaxandi suðaustan- og austanátt sunnan
til á landinu í dag og þykknar upp, 8-15
m/s syðst síðdegis og fer að rigna, en 10-
18 m/s um kvöldið, hvassast við ströndina.
Fremur hæg austlæg eða breytileg átt um
landið norðanvert og bjartviðri. Hiti 10
til 17 stig.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-C
6
D
C
1
6
2
B
-C
5
A
0
1
6
2
B
-C
4
6
4
1
6
2
B
-C
3
2
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K