Fréttablaðið - 15.06.2015, Qupperneq 4
15. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SPURNING DAGSINS
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
Salou
Frá kr. 69.900
m/morgunmat
Netverð á mann frá kr. 69.900 m.v. 2-4 í íbúð/stúdíó/herbergi
m/morgunmat. Netverð á mann frá kr. 84.900 m.v. 2-4 í íbúð/
stúdíó/herbergi m/hálfu fæði.
19. júní í 7 nætur
STÖKKTU
FJÁRMÁL Nærri helmingur sjálfs-
eignarstofnana og staðfestra
sjóða hefur ekki skilað ársreikn-
ingi fyrir árið 2013 eins og lög
gera ráð fyrir. Ríkisendurskoðun
gerir alvarlegar athugasemdir
við þennan trassaskap í skýrslu
sem stofnunin gaf út í vikunni.
Í árslok 2013 voru 704 sjóðir
og stofnanir á skrá hjá hinu opin-
bera og voru nýjar skráningar 21
á því ári. Þann 1. júní síðastlið-
inn höfðu 433 sjóðir eða stofn-
anir skilað ársreikningi fyrir
rekstrarárið 2013, sem segir
okkur að 271 sjálfseignarstofnun
hefur ekki skilað ársreikningi.
Niðurstöðutölur rekstrar-
og efnahagsreikninga þeirra
samtals var sem hér segir í
milljónum króna: Í árslok 2013
voru 704 sjóðir og stofnanir á
skrá. Á árinu 2013 var staðfest
21 ný skipulagsskrá.
„Það er gömul saga og ný að
ársreikningar staðfestra sjóða
og stofnana skila sér oft seint
og illa þrátt fyrir mikinn eftir-
rekstur af hálfu Ríkisendur-
skoðunar,“ segir Sveinn Ara-
son ríkisendurskoðandi. „Segja
má að það sem einkennir hinn
dæmigerða sjóð eða stofnun sé
að starfsemi þeirra er lítil að
umfangi saman borið við félög og
sjóði sem stunda atvinnurekstur.
Helstu verkefni þeirra hafa frá
fornu fari falist í því að stuðla
að eða styrkja margvísleg vel-
ferðar- og menningarmál, ýmist
á landsvísu eða í héruðum tengd-
um stofnendum þeirra.“
Sveinn bendir á að líkleg orsök
þess að forsvarsmenn sjóða
trassi það að skila ársreikn-
ingum sé þekkingarleysi þeirra
um skyldur sjálfseignarstofnana.
„Helstu ástæður þess að árs-
reikningar þeirra berast ekki á
réttum tíma eru sjálfsagt mis-
munandi, svo sem ókunnugleiki
forsvarsmanna um skyldur sínar
á þessu sviði, hirðuleysi for-
svarsmanna í þessum efnum og
að fyrrverandi forsvarsmenn séu
látnir og ókunnugt er um þá sem
við keflinu kunna að hafa tekið,“
segir Sveinn.
Ríkisendurskoðun segir það
skipta miklu máli að fá úrræði til
að krefja sjóði um skil ársreikn-
inga og að engin tæki og tól séu til
í dag til að toga ársreikninga úr
sjálfseignarstofnunum. Yfirvöld
skortir virk lögbundin úrræði til
þess að knýja fram skil, svo sem
heimildir til að beita dag- eða
vikusektum. „Reynslan hefur því
miður sýnt að ítrekaðar hvatn-
ingar Ríkisendurskoðunar vegna
vanskila eða hótunarbréf hafa
ekki skilað tilætluðum árangri.“
sveinn@frettabladid.is
Sjálfseignarsjóðir
trassa ársreikninga
Ríkisendurskoðun hefur gefið út skýrslu um sjálfseignarstofnanir og sjóði. Þar
kemur fram að 271 ársreikning vantar frá árinu 2013. Ríkisendurskoðandi segist
þurfa vopn í baráttunni því hótunarbréf til sjóðanna virki ekki nægilega vel.
RÍKISENDURSKOÐANDI Að mati ríkisendurskoðunar þarf stofnunin vopn í
baráttunni til að draga ársreikninga út úr sjálfseignarstofnunum sem árvisst trassa
skil þeirra samkvæmt lögum.
UTANRÍKISMÁL Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra átti
fund með Timo Soini, utanríkis-
ráðherra Finnlands, á miðviku-
daginn.
Ráðherrarnir ræddu málefni
norðurslóða, samskipti ríkjanna og
öryggis- og varnarmál í Evrópu
út frá breyttum aðstæðum í heim-
inum. Þá ræddu ráðherrarnir
áætlun um að auka gagnkvæm við-
skipti á milli ríkjanna.
Einnig funduðu Gunnar Bragi og
Soini um stefnu ríkjanna tveggja
í Evrópumálum. Gerði Gunnar
Bragi grein fyrir því að íslenska
ríkisstjórnin hefði stöðvað aðildar-
viðræður við Evrópusambandið
og tekið Ísland af lista umsóknar-
ríkja. Timo Soini er formaður
Sannra Finna og á móti aðild Finn-
lands að Evrópusambandinu. Þrátt
fyrir andstöðu Soini við Evrópu-
sambandið mun Finnland seint
draga sig úr Evrópusambandinu
þar sem samstarfsflokkar Sannra
Finna eru hlynntir aðild Finnlands
að Evrópusambandinu.
Auk þess að hitta Soini fundaði
Gunnar Bragi með Antero Vartia,
sem tók sæti á finnska þinginu
fyrr í ár fyrir Græningjaflokk-
inn. - srs
Ræddu Evrópustefnu ríkisstjórnanna á fundi utanríkisráðherra í Finnlandi:
Gunnar Bragi og Soini funda
TVEIR RÁÐHERRAR Bæði Gunnar Bragi og Soini eru á móti aðild að Evrópusam-
bandinu. MYND/UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
Það er gömul saga og
ný að ársreikningar
staðfestra sjóða og
stofnana skila sér oft seint
og illa.
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi.
Kött Grá Pjé, ertu farinn í
hundana?
„Nei, en ég er farinn í klikkað kött.“
Rapparinn Kött Grá Pjé rappar í nýjasta
myndbandi hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur
og keyrir þar um á blæjubíl með þremur
stæðilegum sankti bernharðshundum.
HAGSTOFAN Árshækkun launa frá
fyrsta ársfjórðungi 2014 til fyrsta
ársfjórðungs 2015 var 5,9 prósent
að meðaltali. Hækkunin var 4,6
prósent á almennum vinnumark-
aði og 9,4 prósent hjá opinberum
starfsmönnum. Þar af hækkuðu
laun ríkis starfsmanna um 7,4 pró-
sent og laun starfsmanna sveitarfé-
laga um 11,6 prósent. Þetta kemur
fram á vef Hagstofu Íslands.
Frá fyrri ársfjórðungi var hækk-
un reglulegra launa á almennum
vinnumarkaði á bilinu 0,5 prósent
til 1,6 prósenta eftir starfsstéttum.
Laun tækna og sérmenntaðs starfs-
fólks hækkuðu mest en laun iðn aðar-
manna minnst milli ársfjórðunga.
Í vísitölu launa á fyrsta ársfjórð-
ungi gætir áhrifa bæði nýrra og
eldri kjarasamninga ríkis og sveitar-
félaga við nokkur stéttarfélög.
Ekki gætir lengur áhrifa ein-
greiðslu sem kveðið var á um í
kjarasamningum fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs og stéttar-
félaga opinberra starfsmanna sem
voru undirritaðir á vormánuðum
2011. Kom sú eingreiðsla til útborg-
unar í janúar 2014 og hafði áhrif
til 0,1 prósents hækkunar vísitölu
launa á ársgrundvelli. - ngy
Laun ríkisstarfsmanna hækkuðu um 7,4 prósent frá fyrsta ársfjórðungi 2014:
Laun ríkisstarfsmanna hafa hækkað
AÐ STÖRFUM Laun iðnaðarmanna
hækkuðu minnst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð út um hádegisbil í gær,
er göngumaður slasaðist á fæti.
Var maðurinn á göngu ásamt
félögum um Þverártindsegg í
sunnanverðum Vatnajökli þegar
hann slasaðist.
Barst tilkynningin frá Björg-
unarfélagi Hornafjarðar en
aðstæður til björgunar voru
erfiðar, þar sem maðurinn var
staddur í átta hundruð metra hæð
og í umtalsverðum bratta.
Ferðafélagar mannsins höfðu
samband við björgunarsveitina
og bjuggu um manninn í neyðar-
skýli á meðan beðið var björgun-
ar. -ga
Þyrlan kölluð á vettvang:
Slasaðist á fæti
á Vatnajökli
BRETLAND Breska leyniþjón ustan
hefur undanfarna daga þurft
að færa starfsmenn sína í starfi
vegna gagna sem Edward Snow-
den tók með sér frá Bandaríkjun-
um og lak á netið.
Telja Bretar Kínverja og Rússa
hafa komist í gegnum dulkóðun
gagnanna. Snowden hefur fram
til þessa sagt að engin stjórnvöld
kæmust nokkurn tíma í umrædd
skjöl, en þau hlaupa á milljónum
talsins.
Þegar hafa vestrænar leyni-
þjónustur þurft að draga útsend-
ara sína úr nokkrum löndum
vegna skjalanna, en í skjölunum
má finna upplýsingar um að-
gerðir og aðferðir. -ga
Skjöl Snowdens líklega opin:
Óttast um ör-
yggi útsendara
ALÞINGI Frumvarp allsherjar-
og menntamálanefndar alþingis
um eflingu tónlistarnáms verður
rætt á þingfundi á morgun.
Í frumvarpi nefndarinnar er
lagt til að framlengja samning
milli ríkis og Sambands íslenskra
sveitarfélaga um fjárstreymi úr
jöfnunarsjóði sveitarfélaga til
handa sveitarfélögum landsins
til að standa straum af tónlistar-
kennslu og taka á brýnum vanda
í fjármögnun tónlistarnáms á
landinu. Frumvarpið kemur seint
fram og því þarf að kalla eftir
afbrigðum til að geta tekið málið
á dagskrá. - sa
Menntamálanefnd þingsins:
Vilja stórefla
tónlistarnám
TÓNLISTARNÁM Alþingisnefnd vill
beita jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að
efla tónlistarnám.
SAMGÖNGUR Enn er bið eftir því
að hálendisvegir landsins verði
opnir almenningi. Mikill snjór
er víða á hálendinu sunnanverðu
sem gæti haldið vegunum lokuð-
um í nokkrar vikur í viðbót.
Samkvæmt Vegagerðinni eru
snjóalög í meðallagi á hálendinu
norðanverðu og gætu því vegir
opnast þar innan tíðar. Vegagerð-
in vinnur að því að ryðja sumar
leiðir til að flýta fyrir bráðnun á
vegunum. Einnig hefur leysinga-
vatn þau áhrif að blautir vegir
gætu eyðilagst fljótt ef umferð
um þá yrði opnuð. - sa
Mikill snjór enn á fjöllum:
Hálendisvegir
flestir lokaðir
LANDMANNALAUGAR Ekki viðrar
svona vel á þá sem leggja leið sína á
hálendið í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN Engar frekari upp-
lýsingar hafa borist vegna stroku-
fanganna David Sweat og Richard
Matt sem flúðu hámarksöryggis-
fangelsi nokkurt í New York. Eru
liðnir níu dagar síðan þeir brutust
út með rafmagnsverkfærum og
skriðu svo í gegnum rör og út í
holræsakerfið. Höfðu þeir komið
brúðum fyrir í rúmum sínum sem
blekktu fangaverði.
Íbúar á svæðinu eru óttaslegnir
vegna þessa og telja fangana lík-
lega til að vera í nágrenninu. -ga
Strokufangar enn ófundnir:
Níu dagar frá
stroki fanganna
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
C
-9
1
4
C
1
6
2
C
-9
0
1
0
1
6
2
C
-8
E
D
4
1
6
2
C
-8
D
9
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K