Fréttablaðið - 15.06.2015, Síða 7
MÁNUDAGUR 15. júní 2015 | FRÉTTIR | 7
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
Greining Íslandsbanka gefur út í þriðja sinn skýrslu með
greiningu á málefnum og fjármálum sveitarfélaga. Leitast
er við að gefa innsýn í rekstur sveitarfélaga en mörg
þeirra hafa þurft að ráðast í víðtækar aðhaldsaðgerðir og
hagræðingu í rekstri á síðustu árum.
Það er okkar von að þetta rit verði aðgengilegt og einfalt
yfirlit yfir rekstur sveitarfélaga á Íslandi.
Skýrslan er opin öllum og hægt er að nálgast hana
á vefnum okkar islandsbanki.is
Ný skýrsla um
íslensk sveitarfélög
Íslandsbanki hefur á að skipa sérfræðingum
sem einbeita sér að greiningu á málefnum
og fjármálum sveitarfélaga. Íslandsbanki
er viðskiptabanki fjölmargra sveitarfélaga víða
um land og hefur komið að mörgum verk-
efnum er snúa að sveitarfélögum og félögum
í þeirra eigu.
Sveitarfélög
FRAKKLAND Mikil ólga er í Frakk-
landi vegna úrskurðar Mannrétt-
indadómstóls Evrópu um að slökkva
á vélum sem halda Vincent Lambert,
lömuðum frönskum manni, á lífi.
Lambert lenti í mótorhjólaslysi
árið 2008 og hefur verið fullkom-
lega lamaður síðan þá. Hann bregst
við umhverfi sínu en læknar telja
hann hafa afar takmarkaða heila-
starfsemi.
Fjölskylda Lambert er ekki á
einu máli um hvernig eigi að huga
að umönnun hans. Kona Lamberts,
Rachel Lambert, og systkini hans
telja það mannúðlegast að taka hann
úr sambandi og leyfa honum að deyja
en foreldrar hans, strangtrúaðir
kaþólikkar, telja að hann þurfi betri
umönnun. Læknar hafa ráðlagt fjöl-
skyldunni að aftengja hann og lög í
Frakklandi leyfa líknardráp af þess-
um toga. Þá hefur fjöldi mótmælenda
og kaþólskra samtaka andmælt því að
Lambert verði tekinn úr sambandi.
Á þriðjudaginn birtu baráttu-
samtök gegn líknardrápi myndband
af Lambert þar sem hann virðist
bregðast við umhverfi sínu. Með
því vildu samtökin sýna fram á að
Lambert væri enn við meðvitund en
læknar hafa fordæmt myndbands-
birtinguna. - srs
Fjölskylda fransks manns klofin í afstöðu sinni til líknardráps:
Líknardráp vekur upp deilur
LAMBERT Maðurinn hefur verið lam-
aður frá árinu 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
AKUREYRI Íþróttaráð Akureyr-
ar hafnaði erindi Sundfélagsins
Óðins um að loka Akureyrarlaug
fyrir almenningi meðan á Ald-
ursflokkamóti Sundsambands
Íslands stendur.
Forsvarsmenn sundfélags-
ins eru mjög ósáttir við þessa
ákvörðun og telja að með henni sé
verið að mismuna íþróttagrein-
um. Formaður ráðsins, Ingibjörg
Isaksen, vék af fundi undir þess-
um lið og taldi sig vanhæfa þar
sem hún er forstöðumaður sund-
laugar í öðru sveitarfélagi. - sa
Sundfélagið Óðinn ósátt:
Vilja loka Akur-
eyrarsundlaug
142 tonn af ilmvötnum og snyrtivörum voru flutt
inn til landsins í apríl árið 2015
Á sama tíma voru einungis flutt
inn 48 tonn af bókum, blöðum og
tímaritum.
Tyrkland Recep Tayyip Erdogan,
forseti Tyrklands, útilokar ekki
að boðað verði til nýrra kosninga
til að hægt verði að mynda starfs-
hæfa ríkisstjórn.
Réttlætis- og þróunarflokkur
Erdogans (AKP) er sá fyrsti sem
fær umboð til að mynda ríkis-
stjórn en óvíst er hvort hann
muni ná samkomulagi við stjórn-
arandstöðuflokkana um myndun
nýrrar stjórnar.
Stjórnarskrá Tyrklands kveður
á um að mynda þarf starfhæfa
ríkisstjórn 45 dögum eftir kosn-
ingar.
AKP-flokkurinn fékk flest
atkvæða í þingkosningunum sem
fóru fram 7. júní síðastliðinn.
Áður var flokkurinn með hreinan
meirihluta á þinginu og gat því
starfað án stuðningsflokka en nú
fékk hann 41 prósent atkvæða.
Skoðanakannanir sýna að AKP-
flokkurinn hefði fengið fjögurra
prósenta aukningu í atkvæðum ef
kjósendur hefðu vitað að kosning-
arnar enduðu í stjórnarkreppu.
- srs
Stjórnarmyndun í Tyrklandi:
Útilokar ekki
aðrar kosningar
ERDOGAN Forsetinn hefur veitt AKP
umboð til stjórnarmyndunar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SVONA ERUM VIÐ
GEORGÍA Tólf hafa látist í miklum
flóðum í höfuðborg Georgíu,
Tíblisi. Flóðin ollu því að fjöldi
dýra slapp úr dýragarðinum í
Tíblisi en tígrisdýr, ljón, bjarndýr
og úlfar eru meðal dýra sem ráfa
nú um stræti Tíblisi.
Þrír þeirra sem létust fund-
ust látnir í dýragarðinum. Fólk er
hvatt til að halda sig innandyra
þangað til að öll dýrin hafa verið
handsömuð.
Sjónarvottar sáu meðal annars
björn sem hékk utan á loftræst-
ingu og maður í miðborginni fann
hýenu á svölunum sínum.
Mörg dýranna hafa verið skotin
til bana eða svæfð með deyfi-
byssum.
Mikil eyðilegging hefur átt sér
stað í borginni en sem dæmi má
nefna hafa líkkistur úr kirkju-
görðum farið á flot. - srs
Gífurleg flóð í Georgíu:
Ljón, tígrar og
birnir á vappi
ÓNÁTTÚRULEGT UMHVERFI Þessi
flóðhestur var á rölti um borgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
D
-4
3
0
C
1
6
2
D
-4
1
D
0
1
6
2
D
-4
0
9
4
1
6
2
D
-3
F
5
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K