Fréttablaðið - 15.06.2015, Page 8
15. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Mars 2004 Júní 2011 Janúar 2014 Ágúst 2014 Nóvember 2014 Júní 2015 Ágúst 2015 Desember 2015
Rosetta er
skotið á loft.
Slökkt er á
Rosetta til
að spara
rafmagn.
Rosetta
endurræst.
Rosetta mætir
halastjörnunni
67P.
Philae lendir
á 67P.
Philae verður
rafmagnslaus.
Philae
vaknar til
lífsins.
67P verður
eins nálægt
sólu og
mögulegt er.
Áætluð lok
verkefnisins.
VÍSINDI Könnunarfarið Philae,
sem er fyrsta geimfarið til að
lenda á halastjörnu, hefur vakn-
að til lífsins og sent skilaboð til
jarðar.
Philae er lendingarhluti geim-
farsins Rosetta sem var skot-
ið á loft árið 2004. Geimfarið
hafði það markmið að lenda á
halastjörnunni 67P. Evrópska
geimferðastofnunin ESA hefur
umsjón með verkefninu.
Eftir langa ferð um vetrar-
brautina og meðal annars tvær
hringferðir um Mars lenti könn-
unarfarið Philae á halastjörn-
unni þann 12. nóvember í fyrra.
Philae er knúið með sólarraf-
hlöðum, en eftir 60 tíma veru á
halastjörnunni gáfust rafhlöð-
urnar upp þar sem farið var á
myrku hlið loftsteinsins.
Í gær vaknaði Philae til lífs-
ins þar sem halastjarnan hefur
færst nær sólu. Farið heilsaði
jarðarbúum á Twitter-síðu sinni
með skilaboðunum „Halló jörð!
Heyrir þú í mér?“
Verkefnastjóri Philae, Stephan
Ulamec, segir að farið sé við
kjöraðstæður og að allt gangi
vel. Nú sé beðið eftir að farið
hafi aftur samband en þegar
býr farið yfir miklum gögnum
um eðli halastjörnunnar.
Könnunarfarið hefur það að
markmiði að safna gögnum um
ferð halastjörnunnar, efnasam-
setningu hennar, hitastig og
fleira. Forgangsverkefni Philae
þessa stundina verður að bora
eftir efnasamböndum úr jörðu
og greina þau. Vísindamenn von-
ast til að rafmagnið sem Philae
hefur safnað að svo stöddu dugi
til þessa verkefnis.
Halastjarnan 67P, einnig þekkt
sem Churyumov–Gerasimenko,
er 4,3 kílómetra löng og 4,1 kíló-
metri á breiddina. Stjarnan, sem
er sex og hálft ár að ferðast um
sporbaug sinn um sólu, var upp-
götvuð árið 1969 af sovésku vís-
indamönnunum Klim Ivano-
vych Churyumov og Svetlana
Ivanovna Gerasimenko en þaðan
dregur stjarnan nafn sitt.
stefanrafn@frettabladid.is
Halló jörð, heyrir þú í mér?
Könnunarfarið Philae hefur vaknað til lífsins eftir nokkurra mánaða dvala á halastjörnunni 67P. Farið er það
fyrsta til að lenda á halastjörnu. Vonast er til að orka þess sé næg til að ljúka því verkefni sem því var ætlað.
Í DVALA Á HALASTJÖRNU Geimfarið Philae séð frá geimfarinu Rosetta.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
GEIMFÖRIN Á TWITTER
Halló @ESA_Rosetta! Ég
er vaknaður! Hve lengi
var ég sofandi?
#Lifeonacomet
Halló @Philae2014! Þú
hefur verið lengi sofandi.
Í næstum sjö mánuði!
Vá @ESA_Rosetta! Það
er langur tími … Tími til
að koma mér að verki!
#Lifeonacomet
@Philae2014 Verð að
skoða hvort þú sért í
góðu formi, heilbrigður
og nógu hlýr fyrst
@philae2014!
Slakaðu á núna :)
Ó, OK @ESA_Rosetta! Ég
er svolítið þreyttur hvort
sem er …
Tala við þig seinna!
#lifeonacomet
800
milljón kílómetrar er lengsta
vegalengdin sem Rosetta
hefur ferðast frá sólinni.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
D
-1
6
9
C
1
6
2
D
-1
5
6
0
1
6
2
D
-1
4
2
4
1
6
2
D
-1
2
E
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K