Fréttablaðið - 15.06.2015, Blaðsíða 46
15. júní 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 22
MÁNUDAGSLAGIÐ
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Sumar
útsala
Rafdrifnir
sjónvarpssófar
ótrúlega þægilegir
25%
AFSLÁTTUR
KANSAS 2ja sæta sjónvarpsstófi
Stillanlegur sjónvarpssófi. Svart, brúnt og grátt leður á slitflötum. 150x90 H:100 cm.
Fullt verð: 249.900 kr.
Aðeins 187.425 kr.
KANSAS 3ja sæta sjónvarpsstófi
Stillanlegur sjónvarpssófi. Svart, brúnt og grátt leður á slitflötum. 197x90 H:100 cm.
Fullt verð: 299.900 kr.
Aðeins 224.925 kr.
Aðeins 134.925 kr.
BUFFALO
rafmagnslyftistóll
Stillanlegur hægindastóll.
Svart, brúnt og beigelitað
leður á slitflötum.
85x90 H:106 cm.
Fullt verð: 179.900 kr.
Þessi hallar til
baka, skemill
fram og lyftir
þér á fætur.
MEIRA Á
dorma.is
Holtagarðar | Akureyri | www
.dorma.is
Sumar
útsala
TVENNUTILBOÐ
dúnsæng + koddi
NATURE’S REST
heilsurúm
Aðeins 59.900 kr.
Nature’s Rest heilsudýna
með Classic botni.
Stærð: 140x200 cm.
Fullt verð: 92.900 kr.
33.000
krónur
AFSLÁTTUR
O&D dúnsæng
· 50% dúnn
· 50% smáfiður
+ Dúnkoddi
Fullt verð: 24.900 kr.
Aðeins 18.900 kr.
TVENNU
TILBOÐ
Þú finnur
Dormabæklinginn á dorma.is
Landsliðs- og handboltakapp arnir
Róbert Gunnarsson og Gunnar
Steinn Jónsson venda nú kvæði sínu
í kross og hafa hannað stutterma-
boli og peysur sem kennd eru við
BOB og eru unnin í samstarfi við
UNICEF á Íslandi.
„Við mætumst þarna, ég með
viðskiptavitið en Róbert sem lista-
maðurinn,“ segir Gunnar og hlær
og segir Baldur Kristjánsson ljós-
myndara einnig viðloðinn, en hann
sér um myndatökurnar.
Hefur Róbert verið iðinn við kol-
ann, þar sem hann hefur í mörg ár
þrykkt á boli. Ákváðu félagarnir að
leiða saman hesta sína og úr varð
þessi skemmtilega útkoma. „Við
vildum gera eitthvað saman, og
láta gott af okkur leiða samhliða,“
útskýrir Gunnar og heldur áfram:
„Við kaup á hverjum bol renn-
ur andvirði eins teppis til barna í
flóttamannabúðum, sem UNICEF
sér um að koma á leiðarenda, og
þannig fær kaupandinn raunveru-
legri tengsl við góðgerðarmálefnið
en ella,“ segir Gunnar.
Gunnar segir bolina afar vand-
aða og að þeir vonist til að fólk kaupi
flíkurnar vegna þess að þær séu
flottar og klæðilegar, en ekki ein-
ungis undir formerkjum góðgerðar-
mála, þó að auðvitað sé það ekki
slæmt. „Bolirnir koma í afar veg-
legum umbúðum og fylgir sagan um
BOB með, en við höfum búið til heil-
an heim í kringum þennan karakter
sem endur speglar lógóið okkar.“
Róbert og Gunnar eru atvinnu-
menn í handbolta og er Róbert
búsettur í Frakklandi en Gunnar
í Þýskalandi. „Við höfum verið að
vinna þetta mestmegnis í gegnum
tölvurnar og svo þegar við keppum
saman fyrir hönd landsliðsins, jú,
og ef við náum að hittast á Íslandi,“
útskýrir Gunnar þegar hann er
spurður út í hvernig allt ferlið hafi
farið fram, en boltinn fór að rúlla í
desember á síðasta ári.
En hvernig gengur að flétta
saman fatahönnun og krefjandi
handboltaferil? „Það er nefnilega
alltaf nóg að gera í boltanum og
því gott að geta hellt sér í eitthvað
annað, og aðeins gleymt sér þannig.
Ég held að það sé bara jákvætt
fyrir okkur,“ bendir Gunnar á og
skýtur að: „Og ekki snýst þetta um
að verða ríkir, heldur að fá að skapa
og láta gott af okkur leiða.“
Gunnar býr eins og áður segir í
Þýskalandi ásamt unnustu sinni,
Elísabetu Gunnars dóttur, tísku-
mógúl og bloggara á trendnet.is, og
dóttur þeirra. Gunnar segir Elísa-
betu hafa verið duglega við að elta
hann vegna boltans í mörg ár og að
nú sé komið að honum. „Hún hefur
elt mig um allt, nú eltist ég við það
sem hún kann manna best,“ segir
Gunnar, og viðurkennir að tískan
sé sameiginlegt áhugamál þeirra.
Bolirnir verða til sölu á síðunni
bobreykjavik.com og í versluninni
Húrra við Hverfisgötu.
gudrun@frettabladid.is
Handboltahetjur
hanna tískuboli BOB
„Þetta snýst ekki um að verða ríkir, heldur að fá að skapa og láta gott af okkur
leiða,“ segir Gunnar Steinn Jónsson, landsliðsmaður í handbolta og nú tískudrós.
MEÐ VEL STAÐSETT HJÖRTU Bolirnir fara í sölu á þriðjudag og verður slegið upp heljarinnar veislu í tilefni þessa á Húrra við
Hverfisgötu. Hver bolur skilar andvirði teppis fyrir barn í flóttamannabúðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Mánudagslagið verður að vera
svolítið upplífgandi. Mitt er Emmylou
með First Aid Kit.“
Hafdís Huld tónlistarkona.
„Ætli mér hafi ekki sárnað hvað
mest hvað erlendu fjölmiðl arnir
voru skeytingarlausir um að ég
var í hádegishléi þegar ég tók
þennan lúr, en ekki svona baga-
legur starfskraftur,“ segir Haukur
Viðar Alfreðsson, sem komst í
heimspressuna á dögunum þegar
samstarfsmenn hans á auglýs-
ingastofunni Brandenburg tóku af
honum mynd sem fór á ógnarhraða
um netmiðlana.
„Mér fannst mjög fyndið þegar
þetta fór á flug hérna innan-
lands en þegar ég sá þetta komið
á erlendu miðlana, eins og Daily
Mail, fékk ég áður óþekktan kvíða-
hnút í magann,“ útskýrir Haukur,
en vefur blaðsins er einn mest
sótti vefur í heimi. Þá hefur morg-
unþátturinn Good Morning Amer-
ica fjallað um málið.
Þótti Hauki athugasemdakerfin
ósvífnust í sinn garð. „Þarna var
fólk að tala um hvað ég væri latur
og að það yrði umsvifalaust rekið
úr sínum störfum ef það myndi
haga sér svona,“ útskýri Haukur,
en þannig er mál með vexti að eftir
erilsama nótt fyrir framan sjón-
varpsskjáinn lagði
hann sig í hádeginu
meðan samstarfs-
félagarnir brugðu
sér út fyrir í
hádegismat.
„Það er mikil
photoshop-
menning innan
fyrirtækis-
ins, svo þetta
kom mér kannski
ekki mikið á óvart,“
segir Haukur, en
þvertekur fyrir að
ætla sér að skipuleggja hefnd. „Ég
er ekki hefnigjarn, ég er líklega að
borga til baka fyrir hrekki fortíð-
arinnar.“ -ga
Sofandi Íslendingur ratar í heimspressuna
Haukur Viðar Alfreðsson gat hlegið að gríninu innanlands en þegar Daily Mail hringdi fékk hann hnútinn.
ÞREYTTUR
NBA-áhorf
kostaði Hauk
svefninn og
kom honum á
kortið samtímis.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
C
-6
9
C
C
1
6
2
C
-6
8
9
0
1
6
2
C
-6
7
5
4
1
6
2
C
-6
6
1
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K