Fréttablaðið - 11.09.2015, Page 8
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
70
84
5
Frá kr.
56.900
Á Krít skiptast á stórkostlegt fjalllendi með snævi-
þöktum fjallstoppum, dásamleg strandlengjan
og tær sjórinn sem ávallt heillar sólþyrstan ferða-
langinn. Loftslagið er einstaklega milt á þessari
dýrðlegu eyju, hér skín sól flesta daga ársins en
léttur andvarinn af hafi temprar loftslagið.
Frábært verð
Frá kr. 109.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 109.900 m.v. 2 + 2 í
fjölsk.herbergi.
Netverð á mann frá
kr. 139.900 m.v. 2 í herbergi.
14. september í 10 nætur
Krít
Frábært verð
Frá kr. 56.900
Netverð á mann frá
kr. 56.900 m.v. 4+2 í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 79.900 m.v. 2 í íbúð.
Frábært verð
Frá kr. 64.900
Netverð á mann frá
kr. 64.900 m.v. 2-4 í íbúð/
herbergi/stúdíó.
Frá kr. 119.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 119.900 m.v. 2-4 í íbúð/
herbergi/stúdíó.
SIRIOS VILLAGE
PELLA STEVE I
STÖKKTU
2FYRIR1
2FYRIR1
STÖKKTU
Frábært verð
Frá kr. 74.900
Netverð á mann frá
kr. 74.900 m.v. 2+2 í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 85.900 m.v. 2 í íbúð.
OMEGA APARTMENTS
2FYRIR1
ALLRA SÍÐUSTU SÆTIN
LOKAÚTKALL
Vinnueftirlit ríkisins hefur allt
frá hruni endurtekið beint því til
Stjórnar ráðsins að gera átak í vinnu-
vernd þeirra fjölmörgu sem starfa hjá
hinu opinbera. Vinnuslys opinberra
starfsmanna, bæði í opinberri stjórn-
sýslu og þjónustu, eru hvað stærstu
tölurnar í allri slysatölfræði eftir-
litsins. Þolinmæði forsvarsmanna
eftirlitsins virðist þrotin vegna þess
hversu fálega er tekið í erindi þeirra.
Enn og aftur
„Ég vil ekki ganga svo langt að þeir
hafi skellt alveg skollaeyrum við
þeim ábendingum sem við höfum
komið á framfæri. En það er alveg
ljóst að þeir þurfa að taka á sínum
málum og vinna að því hörðum
höndum að fækka slysum,“ segir Eyj-
ólfur Sæmundsson forstjóri spurður
um málið, en í nýrri ársskýrslu
Vinnueftirlitsins segir: „Opinber
stjórnsýsla, þ.m.t. lögregla en einnig
aðrir innan þess geira, tilkynna hins
vegar um langflest slys og óhöpp.
Staðreynd sem enn og aftur þarf að
beinast til Stjórnarráðsins og ekki síst
innanríkisráðuneytis um að krefjast
þess að þeir axli ábyrgð á að bæta
vinnuumhverfi sinna starfsmanna
og þeirra sem heyra undir opinbera
stjórnsýslu.“
Kristinn Tómasson, yfirlæknir
VER, sem þarna heldur á penna,
segir að strax við hrun og árin á eftir
hafi því verið beint til stjórnvalda að
huga að vinnuvernd – enda þegar
allt er skoðað ættu stjórnvöld að
ganga á undan með góðu fordæmi.
Það sé hins vegar fjarri því að vera
raunin.
Hann segir að stærsti hópurinn
sem um ræðir sé lögreglan – en einn-
ig slökkvilið sveitarfélaganna svo og
margir aðrir í fjölþættum störfum
á vegum hins opinbera. Vandi lög-
reglunnar er varðar vinnuvernd sé
mikill og viðvarandi undirmönnun
rót þess vanda. Það sama eigi við um
opinbera þjónustu; þar sé vinnu-
vernd áhyggjuefni en undir hana falla
heilbrigðisstarfsmenn svo dæmi sé
tekið um stétt þar sem vinnuslys eru
algeng. Undirmönnun kemur þar líka
mikið við sögu.
„Það er margt sem kallar á það að
hið opinbera gangi fram með skipu-
legum hætti við að bæta vinnu-
verndarstarf hjá sér. Það hefur það
ekki haft í forgrunni með nægilega
skýrum hætti, því við sjáum þess
ekki stað að vinnuverndarstarf sé á
háum stalli og það vantar skilning
á því að þetta er einn mælikvarði á
góða þjónustu að vinnuumhverfið sé
slysa- og hættulaust fyrir starfsmenn
og þá einnig öruggara fyrir þá sem
þiggja þjónustuna,“ segir Kristinn
og bætir við að þá sé kostnaðurinn
ótalinn.
Erlendar rannsóknir sýna að
vinnuslys og atvinnutengdir sjúk-
dómar kosta vestræn samfélög eins
og okkar 3 til 4% af landsframleiðslu,
sem samsvarar 50 til 70 milljörðum
hjá okkur Íslendingum.
Truflandi tala
Kristinn segir að tölfræði yfir vinnu-
slys hjá þeim sem starfa við opinbera
stjórnsýslu sé „truflandi tala“. Til-
kynnt slys eru 409 alls árið 2014 og
fleiri en í öðrum flokkum atvinnu-
starfsemi. Byggingageirinn kroppar
í einn fjórða af þessari tölu. Beinbrot
eru einn mælikvarði á alvarlegustu
vinnuslysin og þar er það sama uppi
á teningnum. Á árinu var tilkynnt
um alls 1.742 vinnuslys.
„Auðvitað er ríkið stærsti vinnu-
veitandinn en á sama hátt skal
minnt á það að mannréttindi felast í
því að koma heill heim. Oft er skorið
niður í bein á þeim bæ en þá gleyma
menn því að ein árangursríkasta
leiðin til að ná hagræðingu er að
hafa vinnuverndarmál í lagi. Það er
nefnilega óhemjudýrt að missa frá
sér starfsmenn í vinnuslysum svo
ekki sé talað um þrautir þeirra sem
lenda í þessum slysum,“ segir Krist-
inn og segir að sér finnist „hrikalega
Undirmönnun lögregluembættanna í landinu er ein aðalskýringin á því af hverju opinber stjórnsýsla leiðir slysatölfræði
Vinnueftirlitsins. Fréttablaðið/Pjetur
Opinber stjórnsýsla,
þ.m.t. lögregla en
einnig aðrir innan þess geira,
tilkynna hins vegar um
langflest slys og óhöpp. Stað-
reynd sem enn og aftur þarf
að beinast til Stjórnarráðsins
og ekki síst innanríkisráðu-
neytis um að krefjast þess að
þeir axli ábyrgð á að bæta
vinnuumhverfi sinna starfs-
manna og þeirra sem heyra
undir opinbera
stjórnsýslu.
Kristinn Tómasson,
yfirlæknir
Vinnueftirlitsins
Ég vil ekki ganga svo langt að
þeir hafi skellt alveg skolla-
eyrum við þeim ábend-
ingum sem við höfum komið
á framfæri. En það er alveg
ljóst að þeir þurfa að taka
á sínum málum og vinna
að því hörðum
höndum að fækka
slysum.
Eyjólfur Sæmundsson
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Hið opinbera dregur
lappirnar í vinnuvernd
Vinnueftirlitið hnýtir í Stjórnarráðið í nýrri ársskýrslu og hvetur eindregið til þess
að vinnuvernd verði gert hærra undir höfði. Erindi hafa verið send allt frá hruni.
Innanríkisráðherra er sérstaklega nefndur vegna undirmönnunar lögreglu og
vinnuslysa í opinberri stjórnsýslu. Góð vinnuvernd er sögð leið til sparnaðar.
illa“ farið með fé hins opinbera að
hafa þessi mál ekki í lagi.
„Við verðum að brjóta okkur út úr
því mynstri að hugsa um vinnuvernd
eftir að starfsmaðurinn hefur slasað
sig, og opinberar stofnanir og fyrir-
tæki verða að setja þessi mál á odd-
inn.“ Kristinn bætir við að ábyrgðin
liggi hjá yfirmönnum viðkomandi
stofnana og fyrirtækja hins opinbera
en það breyti ekki því að skilaboðin
þurfi að koma úr efsta stóli ráðu-
neytanna og frá ráðherra.
1 1 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 F Ö s t U D A G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
1
1
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
0
F
-E
0
C
4
1
6
0
F
-D
F
8
8
1
6
0
F
-D
E
4
C
1
6
0
F
-D
D
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
5
C
M
Y
K