Fréttablaðið - 11.09.2015, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 11.09.2015, Blaðsíða 46
Fótbolti „Ég er bara enn að jafna mig og átta mig á að þetta er í alvörunni að gerast. Við tökum á móti Íslandsbik- arnum á laugardaginn,“ segir Fanndís Friðriksdóttir, fyrirliði nýkrýndra Íslandsmeistara Breiðabliks, í viðtali við Fréttablaðið. Fanndís og liðsfélagar hennar í Blikaliðinu, sigruðu Þór/KA í 17. umferð deildarinnar, 2-1, síðastliðið mánudagskvöld eftir að lenda undir. Tvö mörk í seinni hálfleik, þar af sigur- mark frá Fanndísi, innsigluðu sigurinn í leiknum og deildinni. „Við vorum ömurlegar í fyrri hálf- leik. Svo náðum við að stilla þetta saman í þeim síðari og klára þetta með stæl. Það var heldur ekkert annað hægt fyrst Kópacabana [stuðnings- mannasveit Blika, innsk. blm] var mætt. Það var ekki hægt að senda þá heim fúla fyrst þeir voru komnir alla þessa leið,“ segir Fanndís, en kitlaði það ekki egó framherjans að skora markið sem gulltryggði titilinn? „Ég var allavega gríðarlega ánægð með það,“ segir hún. Töframaðurinn Sigurjón Breiðablik er sigursælasta kvennalið Íslandssögunnar, en Íslandsmeistara- titillinn sem þær unnu á mánudags- kvöldið er sá 16. í röðinni hjá liðinu. Aftur á móti hafa Blikar þurft að fylgj- ast með drottnun Vals og Stjörnunnar undanfarin ár, en biðin eftir titlinum er búin að vera áratugur. Af hverju núna hjá Blikum? „Þetta byrjaði allt með því að við fengum nýjan þjálfara. Þorsteinn Hall- dórsson kom inn með sínar áherslur. Hann var svolítið harður allt frá byrjun og fastur á sínu. Við byrjuðum strax að taka vel á því og æfðum alla daga nema sunnudag. Það var ekkert gefið eftir. Það voru settar reglur sem allir fóru eftir,“ segir Fanndís. Karlalið Breiðabliks komst yfir þann hjalla að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil fyrir fimm árum. Þá fór liðið til manns sem heitir Sigur- jón sem þjappaði hópnum saman. Ráð hans reyndust einnig gulls ígildi fyrir stelpurnar. „Hann vinnur við að koma fólki og hópum saman, hvort sem um er að ræða íþróttalið eða fyrirtæki. Hann veit ekkert um fótbolta þannig lagað séð, en hann er sérfræðingur í þessu. Það var bara þarft að setjast niður og ræða málin. Með honum bjuggum við til vinnureglur sem allir fóru eftir,“ segir Fanndís, en hún segir þetta hafa gert mikið fyrir hópinn. Blika- liðið hefur lengi verið gott en aldrei náð fyrir alvöru að kreista allt út úr hópnum. „Við æfðum af krafti og vorum alltaf með það sem hann fór yfir með okkur í hausnum. Það voru allir leik- mennirnir tilbúnir í þetta og allir sátu alsælir á þessum fundi. Við vorum með gríðarlega góðan mannskap í ár og við ætluðum okkur að vinna. Mannskapurinn hefur alltaf verið góður en kannski vantaði aðeins upp á hugarfarið áður. Við hefðum alveg getað orðið meistarar í fyrra með aðeins betra hugarfari og meiri trú því við erum virkilega góðar í fótbolta.“ Múrað fyrir markið Breiðablik er besta liðið í Pepsi-deild kvenna. Um það verður ekki deilt. Það er búið að skora mest, með Fanndísi fremsta í flokki (19 mörk í 17 leikjum, markahæst), og fá á sig fæst mörkin. Varnarlína Blika og markvörðurinn, Sonný Lára Þráinsdóttir, hafa eðli- lega fengið mikið lof enda Breiðablik aðeins búið að fá á sig fjögur mörk í 17 leikjum. Já, fjögur mörk. Blikar fengu á sig tvö mörk í fyrstu þremur leikjum liðsins og héldu svo hreinu í tólf leikjum í röð. „Við pældum ekkert í þessu fyrir versl- unarmannahelgi en svo vorum við bara: „Ha? Við erum ekki búnar að fá á okkur mark síðan í maí.“ Við áttum svo bara ekki orð þegar Selfoss skoraði á okkur um daginn. Það var einfald- lega pínulítið skrítið að sjá boltann í netinu hjá okkur,“ segir Fanndís, en hver er lykillinn að þessu? „Sonný Lára er náttúrlega stór og virkilega öflugur markvörður. Svo erum við bara búnar að verjast mjög vel frá fremsta manni. Það er afskap- lega þægilegt að vera með svona sterkan varnarleik og þurfa bara að skora eitt mark. Við unnum Stjörn- una í stórleikjum sumarsins tvisvar sinnum, 1-0, og Selfoss einu sinni, 1-0. Þetta voru gríðarlega mikilvægir sigrar og töldu alveg jafn mikið og tveir samanlagt 12-0 sigrar gegn Val.“ Blikar fengu himnasendingu frá Val fyrir tímabilið þegar reynslubolt- arnir Málfríður Erna Sigurðardóttir og landsliðsbakvörðurinn Hallbera G. Gísladóttir gengu í raðir liðsins. Þær hafa hjálpað til við að múra fyrir markið. Málfríður kemur með mikla ró inn í vörnina en Hallbera sinnir einnig mikilvægum störfum í klef- anum. „Hún er mjög góð vinkona mín. Hún kann að vinna, sem er mikil- vægt. Hún er búin að vera atvinnu- maður og er landsliðsmaður. Hún er reynslubolti en líka bara svo hrikalega skemmtileg í hóp. Hallbera kann að segja sögur. Hún er algjör sprelligosi,“ segir Fanndís. Duglegri en ég hef áður verið Það er fátt sem kemur í veg fyrir að Fanndís verði markadrottning tíma- bilsins. Hún vann sinn fyrsta skó í fyrra þegar hún varð þriðja markahæst í Pepsi-deildinni, en gullið er eðlilega eitthvað sem heillar miklu meira. „Það verður nú ekki leiðinlegt að skipta bronsinu út fyrir gullið og hafa það í glugganum.” Fanndís hefur lengi verið með betri leikmönnum deildarinnar, en hvers vegna er hún svona langbest núna, allavega af sóknarmönnum deildar- innar? „Ég er búin að þroskast mikið sem leikmaður og kannski orðin dug- legri en ég hef verið. Ég lagði á mig gríðarlega vinnu í vetur og var hress í líkamsræktarstöðinni Hress í allan vetur,“ segir hún, en andlegi þátturinn er líka betri. „Þetta er hugarfarið. Ég ætlaði mér einfaldlega að verða Íslandsmeistari. Það var upphaflega stór ástæða þess að ég kom heim í fyrra. Að verða Íslands- meistari var eitthvað sem ég hafði ekki upplifað áður, allavega ekki sem byrj- unarliðsmaður. Ég spilaði aðeins fyrir tíu árum þegar Blikar urðu meistarar síðast. Ég var búin að bíða eftir þessum titli lengi,“ segir Fanndís, en hún var ekki nema fimmtán ára gömul þegar Blikar urðu síðast meistarar. „Eruð þið ekki með heitan pott?“ Fanndís fór í atvinnumennsku til Nor- egs árið 2013 og spilaði með Kolbotn og Arna-Björnar áður en hún sneri aftur heim fyrir síðasta tímabil. Það skal enginn halda að síminn sé ekki löngu byrjaður að hringja hjá besta sóknarmanni besta liðs Pepsi-deildar- innar. En vill hún fara aftur út? „Auðvitað væri ég til í það. Ég ákvað ekkert að fara aldrei aftur út þegar ég kom heim. Það verður samt að vera eitthvað almennilegt. Það er ekkert gaman að fara út bara til að fara út. Maður verður að stefna að einhverjum titlum. Þannig hugsa ég. Þegar svona vel gengur þá eru alveg til umboðsmenn sem eru tilbúnir að aðstoða mann. Síminn er alveg búinn að hringja. Blikar munu ekkert standa í vegi fyrir mér að fara út, en ég bara skoða það sem kemur upp,“ segir Fanndís. Framherjinn fljóti naut verunnar í Noregi að vissu leyti en varð fyrir smá áfalli þegar hún áttaði sig á að Norð- menn voru ekki komnir alveg jafn langt og hún hélt. „Það var gaman að vera atvinnumaður og hugsa ekki um neitt annað en fótbolta. Ég hafði gott af því og þroskaðist mikið, en það vantaði helling upp á aðstöðuna,“ segir Fanndís og heldur áfram: „Norðmenn eru skrefinu á eftir Svíum hvað varðar að vera með erlenda atvinnumenn í liðinu. Svo er aðstaðan hjá Breiðabliki til dæmis margfalt betri en þarna úti. Það er ekki hægt að bera þetta saman. Ég kom úr þessu frábæra umhverfi hér og var voða prímadonna. Ég sagði bara: „Ha? Er æfing úti í 18 gráðu frosti og eruð þið ekki með heitan pott?“ segir hún og hlær. „Svo voru bara þrjár sturtur sem allt liðið deildi og ég spurði bara: „Eruð þið ekki að grínast í mér?“ Langur ferill en mikið eftir Í dag er Fanndís tvöfaldur Íslands- meistari og búin að spila 60 landsleiki. Hún er búin að spila ellefu tímabil í meistaraflokki þess utan en er samt bara 25 ára gömul. Þetta er orðinn ansi langur og góður ferill þó mikið sé eftir. „Ég var að hugsa um þetta um dag- inn. Ég er búin að spila alveg rosalega mikið. Ég held að þetta sé komið yfir 200 leiki fyrir Breiðablik og svo allir þessir landsleikir. Það er auðvitað bara gaman,“ segir Fanndís. Leikur hennar byggist mikið upp á hraða og sprengikrafti, en hvernig viðheldur hún sprengjunni svona vel með alla þessa kílómetra á mælinum? „Ég er bara með íþróttagen. Mamma er skíðakona og pabbi gamall fótboltamaður. Ég er heppin að hafa þetta í blóðinu. Ég þurfti ekki að hafa mikið fyrir þessu þegar ég var ung. Ég var alltaf mjög virk og hafði gaman af því að fara í eltingaleik í kirkjugarðin- um í Vestmannaeyjum, þar sem ég ólst upp, og að klifra. Þetta er bara í mér og svo viðheldur maður kraftinum með stífum æfingum. Svo er þetta líka spurning um áhuga. Maður verður að hafa brennandi áhuga á þessu til að vilja fórna öllu fyrir fótboltann,“ segir Fanndís Friðriksdóttir. tomas@365.is Með sprengjuna í blóðinu Fanndís Friðriksdóttir varð Íslandsmeistari með Breiðabliki eftir tíu ára bið. Hún á gullskóinn vísan og segist vera þroskaðri leikmaður nú en áður. Í viðtali við Fréttablaðið fer hún yfir tímabilið hjá sér og liðinu og segir frá töframanninum sem á sinn þátt í titlinum. Fanndís Friðriksdóttir skilaði Íslandsmeistaratitlinum aftur heim í Kópavoginn eftir tíu ára bið. Fréttablaðið/Stefán Við pældum ekkert í þessu fyrir verslunar- mannahelgi en svo vorum við bara: „Ha? Við erum ekki búnar að fá á okkur mark síðan í maí.“ 1 1 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 F Ö s t U D A G U r26 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 1 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 0 F -B E 3 4 1 6 0 F -B C F 8 1 6 0 F -B B B C 1 6 0 F -B A 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.