Fréttablaðið - 11.09.2015, Page 46
Fótbolti „Ég er bara enn að jafna mig
og átta mig á að þetta er í alvörunni að
gerast. Við tökum á móti Íslandsbik-
arnum á laugardaginn,“ segir Fanndís
Friðriksdóttir, fyrirliði nýkrýndra
Íslandsmeistara Breiðabliks, í viðtali
við Fréttablaðið.
Fanndís og liðsfélagar hennar í
Blikaliðinu, sigruðu Þór/KA í 17.
umferð deildarinnar, 2-1, síðastliðið
mánudagskvöld eftir að lenda undir.
Tvö mörk í seinni hálfleik, þar af sigur-
mark frá Fanndísi, innsigluðu sigurinn
í leiknum og deildinni.
„Við vorum ömurlegar í fyrri hálf-
leik. Svo náðum við að stilla þetta
saman í þeim síðari og klára þetta
með stæl. Það var heldur ekkert annað
hægt fyrst Kópacabana [stuðnings-
mannasveit Blika, innsk. blm] var
mætt. Það var ekki hægt að senda þá
heim fúla fyrst þeir voru komnir alla
þessa leið,“ segir Fanndís, en kitlaði
það ekki egó framherjans að skora
markið sem gulltryggði titilinn? „Ég
var allavega gríðarlega ánægð með
það,“ segir hún.
Töframaðurinn Sigurjón
Breiðablik er sigursælasta kvennalið
Íslandssögunnar, en Íslandsmeistara-
titillinn sem þær unnu á mánudags-
kvöldið er sá 16. í röðinni hjá liðinu.
Aftur á móti hafa Blikar þurft að fylgj-
ast með drottnun Vals og Stjörnunnar
undanfarin ár, en biðin eftir titlinum
er búin að vera áratugur. Af hverju
núna hjá Blikum?
„Þetta byrjaði allt með því að við
fengum nýjan þjálfara. Þorsteinn Hall-
dórsson kom inn með sínar áherslur.
Hann var svolítið harður allt frá
byrjun og fastur á sínu. Við byrjuðum
strax að taka vel á því og æfðum alla
daga nema sunnudag. Það var ekkert
gefið eftir. Það voru settar reglur sem
allir fóru eftir,“ segir Fanndís.
Karlalið Breiðabliks komst yfir
þann hjalla að vinna sinn fyrsta
Íslandsmeistaratitil fyrir fimm árum.
Þá fór liðið til manns sem heitir Sigur-
jón sem þjappaði hópnum saman.
Ráð hans reyndust einnig gulls ígildi
fyrir stelpurnar.
„Hann vinnur við að koma fólki og
hópum saman, hvort sem um er að
ræða íþróttalið eða fyrirtæki. Hann
veit ekkert um fótbolta þannig lagað
séð, en hann er sérfræðingur í þessu.
Það var bara þarft að setjast niður og
ræða málin. Með honum bjuggum við
til vinnureglur sem allir fóru eftir,“
segir Fanndís, en hún segir þetta
hafa gert mikið fyrir hópinn. Blika-
liðið hefur lengi verið gott en aldrei
náð fyrir alvöru að kreista allt út úr
hópnum.
„Við æfðum af krafti og vorum
alltaf með það sem hann fór yfir með
okkur í hausnum. Það voru allir leik-
mennirnir tilbúnir í þetta og allir sátu
alsælir á þessum fundi. Við vorum
með gríðarlega góðan mannskap í
ár og við ætluðum okkur að vinna.
Mannskapurinn hefur alltaf verið
góður en kannski vantaði aðeins upp
á hugarfarið áður. Við hefðum alveg
getað orðið meistarar í fyrra með
aðeins betra hugarfari og meiri trú því
við erum virkilega góðar í fótbolta.“
Múrað fyrir markið
Breiðablik er besta liðið í Pepsi-deild
kvenna. Um það verður ekki deilt. Það
er búið að skora mest, með Fanndísi
fremsta í flokki (19 mörk í 17 leikjum,
markahæst), og fá á sig fæst mörkin.
Varnarlína Blika og markvörðurinn,
Sonný Lára Þráinsdóttir, hafa eðli-
lega fengið mikið lof enda Breiðablik
aðeins búið að fá á sig fjögur mörk í 17
leikjum. Já, fjögur mörk.
Blikar fengu á sig tvö mörk í fyrstu
þremur leikjum liðsins og héldu
svo hreinu í tólf leikjum í röð. „Við
pældum ekkert í þessu fyrir versl-
unarmannahelgi en svo vorum við
bara: „Ha? Við erum ekki búnar að fá
á okkur mark síðan í maí.“ Við áttum
svo bara ekki orð þegar Selfoss skoraði
á okkur um daginn. Það var einfald-
lega pínulítið skrítið að sjá boltann í
netinu hjá okkur,“ segir Fanndís, en
hver er lykillinn að þessu?
„Sonný Lára er náttúrlega stór og
virkilega öflugur markvörður. Svo
erum við bara búnar að verjast mjög
vel frá fremsta manni. Það er afskap-
lega þægilegt að vera með svona
sterkan varnarleik og þurfa bara að
skora eitt mark. Við unnum Stjörn-
una í stórleikjum sumarsins tvisvar
sinnum, 1-0, og Selfoss einu sinni,
1-0. Þetta voru gríðarlega mikilvægir
sigrar og töldu alveg jafn mikið og
tveir samanlagt 12-0 sigrar gegn Val.“
Blikar fengu himnasendingu frá
Val fyrir tímabilið þegar reynslubolt-
arnir Málfríður Erna Sigurðardóttir
og landsliðsbakvörðurinn Hallbera
G. Gísladóttir gengu í raðir liðsins.
Þær hafa hjálpað til við að múra fyrir
markið. Málfríður kemur með mikla
ró inn í vörnina en Hallbera sinnir
einnig mikilvægum störfum í klef-
anum.
„Hún er mjög góð vinkona mín.
Hún kann að vinna, sem er mikil-
vægt. Hún er búin að vera atvinnu-
maður og er landsliðsmaður. Hún er
reynslubolti en líka bara svo hrikalega
skemmtileg í hóp. Hallbera kann að
segja sögur. Hún er algjör sprelligosi,“
segir Fanndís.
Duglegri en ég hef áður verið
Það er fátt sem kemur í veg fyrir að
Fanndís verði markadrottning tíma-
bilsins. Hún vann sinn fyrsta skó í fyrra
þegar hún varð þriðja markahæst í
Pepsi-deildinni, en gullið er eðlilega
eitthvað sem heillar miklu meira. „Það
verður nú ekki leiðinlegt að skipta
bronsinu út fyrir gullið og hafa það í
glugganum.”
Fanndís hefur lengi verið með betri
leikmönnum deildarinnar, en hvers
vegna er hún svona langbest núna,
allavega af sóknarmönnum deildar-
innar? „Ég er búin að þroskast mikið
sem leikmaður og kannski orðin dug-
legri en ég hef verið. Ég lagði á mig
gríðarlega vinnu í vetur og var hress
í líkamsræktarstöðinni Hress í allan
vetur,“ segir hún, en andlegi þátturinn
er líka betri.
„Þetta er hugarfarið. Ég ætlaði mér
einfaldlega að verða Íslandsmeistari.
Það var upphaflega stór ástæða þess að
ég kom heim í fyrra. Að verða Íslands-
meistari var eitthvað sem ég hafði ekki
upplifað áður, allavega ekki sem byrj-
unarliðsmaður. Ég spilaði aðeins fyrir
tíu árum þegar Blikar urðu meistarar
síðast. Ég var búin að bíða eftir þessum
titli lengi,“ segir Fanndís, en hún var
ekki nema fimmtán ára gömul þegar
Blikar urðu síðast meistarar.
„Eruð þið ekki með heitan pott?“
Fanndís fór í atvinnumennsku til Nor-
egs árið 2013 og spilaði með Kolbotn
og Arna-Björnar áður en hún sneri
aftur heim fyrir síðasta tímabil. Það
skal enginn halda að síminn sé ekki
löngu byrjaður að hringja hjá besta
sóknarmanni besta liðs Pepsi-deildar-
innar. En vill hún fara aftur út?
„Auðvitað væri ég til í það. Ég
ákvað ekkert að fara aldrei aftur út
þegar ég kom heim. Það verður samt
að vera eitthvað almennilegt. Það er
ekkert gaman að fara út bara til að
fara út. Maður verður að stefna að
einhverjum titlum. Þannig hugsa ég.
Þegar svona vel gengur þá eru alveg
til umboðsmenn sem eru tilbúnir að
aðstoða mann. Síminn er alveg búinn
að hringja. Blikar munu ekkert standa
í vegi fyrir mér að fara út, en ég bara
skoða það sem kemur upp,“ segir
Fanndís.
Framherjinn fljóti naut verunnar í
Noregi að vissu leyti en varð fyrir smá
áfalli þegar hún áttaði sig á að Norð-
menn voru ekki komnir alveg jafn
langt og hún hélt. „Það var gaman
að vera atvinnumaður og hugsa ekki
um neitt annað en fótbolta. Ég hafði
gott af því og þroskaðist mikið, en
það vantaði helling upp á aðstöðuna,“
segir Fanndís og heldur áfram:
„Norðmenn eru skrefinu á eftir
Svíum hvað varðar að vera með
erlenda atvinnumenn í liðinu. Svo
er aðstaðan hjá Breiðabliki til dæmis
margfalt betri en þarna úti. Það er ekki
hægt að bera þetta saman. Ég kom úr
þessu frábæra umhverfi hér og var
voða prímadonna. Ég sagði bara: „Ha?
Er æfing úti í 18 gráðu frosti og eruð
þið ekki með heitan pott?“ segir hún
og hlær. „Svo voru bara þrjár sturtur
sem allt liðið deildi og ég spurði bara:
„Eruð þið ekki að grínast í mér?“
Langur ferill en mikið eftir
Í dag er Fanndís tvöfaldur Íslands-
meistari og búin að spila 60 landsleiki.
Hún er búin að spila ellefu tímabil í
meistaraflokki þess utan en er samt
bara 25 ára gömul. Þetta er orðinn ansi
langur og góður ferill þó mikið sé eftir.
„Ég var að hugsa um þetta um dag-
inn. Ég er búin að spila alveg rosalega
mikið. Ég held að þetta sé komið yfir
200 leiki fyrir Breiðablik og svo allir
þessir landsleikir. Það er auðvitað
bara gaman,“ segir Fanndís.
Leikur hennar byggist mikið upp
á hraða og sprengikrafti, en hvernig
viðheldur hún sprengjunni svona vel
með alla þessa kílómetra á mælinum?
„Ég er bara með íþróttagen.
Mamma er skíðakona og pabbi gamall
fótboltamaður. Ég er heppin að hafa
þetta í blóðinu. Ég þurfti ekki að hafa
mikið fyrir þessu þegar ég var ung. Ég
var alltaf mjög virk og hafði gaman af
því að fara í eltingaleik í kirkjugarðin-
um í Vestmannaeyjum, þar sem ég ólst
upp, og að klifra. Þetta er bara í mér
og svo viðheldur maður kraftinum
með stífum æfingum. Svo er þetta líka
spurning um áhuga. Maður verður að
hafa brennandi áhuga á þessu til að
vilja fórna öllu fyrir fótboltann,“ segir
Fanndís Friðriksdóttir. tomas@365.is
Með sprengjuna í blóðinu
Fanndís Friðriksdóttir varð Íslandsmeistari með Breiðabliki eftir tíu ára bið. Hún á gullskóinn vísan og segist vera þroskaðri leikmaður
nú en áður. Í viðtali við Fréttablaðið fer hún yfir tímabilið hjá sér og liðinu og segir frá töframanninum sem á sinn þátt í titlinum.
Fanndís Friðriksdóttir skilaði Íslandsmeistaratitlinum aftur heim í Kópavoginn eftir tíu ára bið. Fréttablaðið/Stefán
Við pældum ekkert í
þessu fyrir verslunar-
mannahelgi en svo vorum
við bara: „Ha? Við erum ekki
búnar að fá á okkur mark
síðan í maí.“
1 1 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 F Ö s t U D A G U r26 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
1
1
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
0
F
-B
E
3
4
1
6
0
F
-B
C
F
8
1
6
0
F
-B
B
B
C
1
6
0
F
-B
A
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
5
C
M
Y
K