Fréttablaðið - 11.09.2015, Page 10
✿ 4.000.000 Sýrlendinga eru flúnar úr landi
600.000
sýrlenskra flóttamanna
eru í Jórdaníu
1.900.000
sýrlenskra flótta-
manna eru í Tyrklandi
1.100.000
sýrlenskra flótta-
manna eru í Líbanon
6.000
hafa drukknað
í Miðjarðarhafi
á flótta frá árs-
byrjun 2014
50
hafa Íslendingar
samþykkt að
taka á móti
272.550
flóttamönnum
hefur verið
hleypt inn í Evr-
ópusambandið
Flóttamenn
annars staðar
í heiminum
Bretlan d Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
segist hafa hvatt bresk stjórnvöld til
þess að gera miklu meira fyrir flótta-
fólk, sem undanfarið hefur streymt
til Evrópu frá Sýrlandi, Afganistan,
Erítreu og fleiri löndum.
„Ég hef rætt við David Cameron
forsætisráðherra og skorað á hann
að taka afgerandi forystu á heims-
vísu og mannúðlega forystu vegna
þess að Bretland hefur líka haft
ávinning af innflytjendum og fólks-
flutningum,“ sagði Ban í viðtali við
bresku sjónvarpsstöðina ITV.
Bretar hafa verið meðal þeirra Evr-
ópuþjóða, sem einna tregastar hafa
verið við að taka við flóttafólki.
Á mánudaginn skýrði Cameron
þó frá því að á næstu árum muni
Bretar taka við allt að 20 þúsundum
af þeim sýrlensku flóttamönnum,
sem komnir eru til Evrópu.
Evrópusambandið hefur kynnt
áætlun um að aðildarríki þess muni
taka við 160 þúsund flóttamönnum,
en í gær sagði Sigmar Gabriel, vara-
kanslari Þýskalands, að þessi áætlun
væri aðeins dropi í hafið. Ef menn
vilji vera kurteisir, þá sé reyndar
hægt að segja þetta fyrsta skrefið.
Hann sagði að nú þegar hafi 450
þúsund flóttamenn komið til Þýska-
lands það sem af er árinu, en þýsk
stjórnvöld reikna með að taka við
allt að 800 þúsund flóttamönnum
nú í ár.
Gabriel sagði að í ágústmánuði
einum hafi 105 þúsund flóttamenn
komið til Þýskalands og 73 þúsund
á fyrstu átta dögum septembermán-
aðar.
Alls eru tugir þúsunda flótta-
manna á ferðinni frá Grikklandi og
Ítalíu norður eftir. Margir stefna til
Þýskalands og margir vilja komast
alla leið til Svíþjóðar, en Svíþjóð
og Þýskaland hafa verið opnari en
önnur Evrópuríki fyrir því að taka
við flóttamönnum.
Ungverjar hafa hins vegar mán-
uðum saman unnið að því að setja
upp gaddavírsgirðingu meðfram
landamærum Serbíu, og reikna nú
með því að ljúka því verki í næsta
mánuði. gudsteinn@frettabladid.is
Hjálparáætlun
sögð vera eins
og dropi í hafið
Varakanslari Þýskalands segir kvótahugmyndir
Evrópusambandsins engan veginn duga til þess að
leysa vanda flóttamanna. Ban Ki-moon hvetur Breta
til að gera miklu meira fyrir flóttamenn. Bretar eru
meðal þeirra þjóða Evrópu sem tregastar hafa verið
til að taka við flóttafólki.
Flóttafólk í bænum Idomeni á Grikklandi, rétt sunnan landamæra Makedóníu,
bíður þess í úrhelli að geta haldið áfram för sinni norður. NordicPhotos/AFP
ferðaþjónuSta Reynsla ferðamanna
af Reykjavík var afar góð í ár en 97
prósent kváðu hana frábæra eða
góða. Enginn hafði slæma reynslu
af borginni.
Þetta kemur fram í könnun RRF
sem gerð var fyrir Höfuðborgar-
stofu. Þetta er besta niðurstaðan
sem mælst hefur frá því RFF hóf
kannanir fyrir Höfuðborgarstofu
árið 2004.
Einnig kemur fram að konur voru
nokkru ánægðari með Reykjavík en
karlar, fólk yfir 55 ára enn ánægð-
ara en þeir yngri og ferðamenn frá
Norðurlöndunum, Bretlandi og
Norður-Ameríku voru ánægðari
en fólk frá öðrum svæðum.
Spurt var um afþreyingu fólks í
borginni. 78% fóru á veitingahús
og helmingur ferðamanna verslaði
og fór í dagsferðir frá Reykjavík.
Þriðjungur stundaði næturlífið,
söfn og sund.
Þátttakendur voru beðnir um að
meta gæði afþreyingar og fengu dags-
ferðir og sundlaugarnar hæstu ein-
kunn. Verslun fékk sístu einkunnina
af þeim átta liðum sem teknir voru
fram, eða 6,9 af 10 mögulegum. Af
þeim sem tóku afstöðu sögðust nær
allir, eða 98,3%, myndu mæla með
Reykjavík við aðra.
Einar Bárðarson, fráfarandi for-
stöðumaður Höfuðborgarstofu, segir
að niðurstöður könnunarinnar hafi
verið ótrúlega jákvæðar á síðasta ári
og því hafi hann ekki búist við að þær
yrðu enn betri í ár. Hann segir marga
eiga þátt í þessari góðu upplifun
ferðamanna.
„Ferðaþjónustan í hvaða formi
sem hún er, verslunin og borgar-
búar eiga sinn hlut í þessu. Þetta
er frábær viðurkenning fyrir alla
þá sem leggja sig fram og bjóða
erlendum gestum í borginni okkar
góðan dag,“ segir Einar. – ebg
Ferðamönnum þykir Reykjavík frábær
Reynsla ferðamanna
af Reykjavík*
Frábær: 62%
Góð: 34%
Sæmileg: 3%
Léleg: 0%
*Niðurstöður byggjast á 707 svörum
erlendra brottfararfarþega í Leifsstöð
frá janúar til apríl 2015.
Þetta er frábær
viðurkenning fyrir
alla þá sem leggja sig fram
og bjóða erlendum gestum í
borginni okkar
góðan dag.
Einar Bárðarson, frá-
farandi forstöðumaður
Höfuðborgarstofu
alþingi Þingflokkur Bjartrar fram-
tíðar hefur á nýjan leik lagt fram
frumvarp um að íslenska ríkið setji
sér eigendastefnu um Landsvirkjun.
Lagt er til að fjármálaráðherra setji
fram eigendastefnu ríkisins í formi
þingsályktunartillögu á fjögurra ára
fresti. Lög um opinber fjármál gera
ráð fyrir að sett verði eigendastefna
um fyrirtæki í eigu ríkisins.
„Það er gríðarlega mikilvægt. Ég
tel svo að við eigum að eiga Lands-
virkjun en við verðum að vera meira
inni í því hvað fyrirtækið er að gera,“
segir Björt Ólafsdóttir, fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarpsins.
Hún segir að við sem eigendur
gætum setið í súpunni ef við fylgj-
umst ekki nægilega vel með.
„Sem þjóð þurfum við að vera
meðvitaðri um hvað fyrirtækið
gerir og hvernig það er að fjárfesta.
Hingað til höfum við ekki verið
nægilega meðvituð um fyrirtækið.“
– sa
Leggja aftur fram frumvarp um
eigendastefnu fyrir Landsvirkjun
Landsvirkjun hefur síðustu ár skilað
miklum hagnaði. Mynd/Landsvirkjun
Sem þjóð þurfum
við að vera með-
vitaðri um hvað fyrirtækið
gerir og hvernig
það er að fjár-
festa.
Björt Ólafsdóttir,
þingmaður Bjartrar
framtíðar
1 1 . S e p t e m B e r 2 0 1 5 f Ö S t u d a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
1
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
0
F
-D
B
D
4
1
6
0
F
-D
A
9
8
1
6
0
F
-D
9
5
C
1
6
0
F
-D
8
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
5
C
M
Y
K