Fréttablaðið - 11.09.2015, Blaðsíða 18
SKOÐUN
Útgreiddar
vaxtabætur
munu lækka
um hvorki
meira né
minna en
1.500 millj-
ónir.
N ý fjárlög sýna að fórnirnar sem við færðum á síðasta kjörtímabili eru að skila þeim árangri að ríkisreksturinn skilar myndar-
legum afgangi. Hann væri enn meiri ef ríkisstjórnin
hefði ekki sett afslátt af auðlindagjöldum í forgang.
En það er sárt að sjá að þeir sem færðu fórnirnar
fá ekki ávinninginn af viðsnúningnum. Skilaboðin
til barnafjölskyldna í fjárlagafrumvarpinu eru ein-
föld: Haldið áfram að flytja burt af landinu. Hækk-
andi laun valda því að grimmar tekjuskerðingar og
tekjuviðmið í barnabóta-, vaxtabóta-, fæðingaror-
lofs- og húsaleigubótakerfi skilja fleiri og fleiri fjöl-
skyldur á meðaltekjum eftir án nokkurs stuðnings
af hálfu hins opinbera. Útgreiddar vaxtabætur
munu lækka um hvorki meira né minna en 1.500
milljónir. Þessum stuðningskerfum var í upphafi
ætlað að jafna aðstöðu þorra fólks eins og tíðkast
annars staðar á Norðurlöndunum, en þau eru nú að
breytast í láglaunabætur. Nú hefði verið kjörið að
nýta svigrúm til að rýmka þessi skerðingarmörk í
stað þess að láta þau óhreyfð. Það þarf líka að bæta
í framlög til húsnæðismála.
Ný framlög til leiguíbúða leysa ekki húsnæðis-
vandann og það er athyglisvert að þau eru einungis
jafnhá og það sem ríkið sparar sér með því að ryðja
meðaltekjufólki út úr vaxtabótakerfinu. Framlögin
eru því í raun tilflutningur á peningum en ekki
aukning til húsnæðismála.
Við í Samfylkingunni höfum lagt fram frumvarp
til að tryggja að aldraðir og örorkulífeyrisþegar
njóti umsaminna lágmarkslauna upp á 300.000
krónur. Það er ekki sæmandi að ætla öldruðum og
þeim sem geta ekki unnið fyrir sér að lifa á lægri
framfærslu en almennt er viðurkennt að sé lág-
marksviðmið.
Það er gott að fella niður tolla á fötum og skóm,
en óskiljanlegt að ríkisstjórnin rembist áfram við
að halda matarverði háu með ofurtollum á matvæli.
Best hefði verið að nýta allt svigrúm til skattalækk-
ana til að lækka tryggingagjaldið: Styðja þannig við
nýsköpun og þekkingu og auðvelda fyrirtækjunum
að hækka laun.
Glötuð tækifæri í fjárlögum
Árni Páll
Árnason
formaður Sam-
fylkingarinnar
www.netto.is Kræsingar & kostakjör Frábær tilboð!
kartöflur í lausu
frá frakklandi
59
kr/kg
Frábært verð!
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Þeim hefur
fjölgað mikið
sem þiggja
fjárhagsað-
stoð sem og
bætur úr al-
mannatrygg-
ingakerfinu.
Það hlýtur að
vera áhyggju-
efni og tilefni
til breytinga.
Formaður velferðarráðs Reykjavíkur, Björk Vilhelmsdóttir, segir aumingjavæðingu í gangi hjá borginni. Þetta eru stór orð komandi frá manneskju sem hefur helgað sig velferðar-málum á sínum pólitíska ferli sem spannar yfir áratug í borgarpólitíkinni.
Í föstudagsviðtalinu í Fréttablaðinu í dag segir Björk
meðal annars: „Þú færð meira með því að eiga svolítið
bágt, meiri athygli og meiri bætur.“ Hún skefur ekkert
utan af því og heldur áfram: „Að sjálfsögðu á samfélagið
að veita fólki fjárhagsaðstoð sem ekki getur veitt sér neina
björg sjálft. En að hafa fólk sem er vinnufært á fjárhagsað-
stoð á sama tíma og okkur sárvantar strætóbílstjóra, fólk í
heimaþjónustu, fólk á frístundaheimilin og allt þetta. Það
er bara algjörlega galið.“ Björk segir starfsfólk þjónustu-
miðstöðva og Samband sveitarfélaga vilja breytingar. Það
sé velferðarsvið sem standi því fyrir þrifum í borginni.
Flokkssystir Bjarkar, þingmaðurinn Oddný G. Harðar-
dóttir, gagnrýndi fjármálaráðherra í umræðum um fjár-
lagafrumvarpið fyrir að bætur Tryggingastofnunar haldist
ekki í hendur við lágmarkslaun. Bjarni sagðist ósammála
því að bætur eigi að vera jafn háar launum; mikilvægt sé
að réttir hvatar séu í kerfinu þannig að fólk sjái ávinning í
því að fara aftur út á vinnumarkað. Bjarni bætti við að ör
þróun bótaþega síðustu tvo áratugina væri alvarlegt mál.
Oddný sagði viðhorf ráðherrans sorgleg. Fólk kjósi ekki að
vera á bótum. „Öryrkjar eiga margir hverjir ekkert val. Og
það er skylda samfélagsins að standa þannig að málum að
þeir sem hafa meira á milli handanna gefi eftir getu.“
Öll hafa þau að einhverju leyti rétt fyrir sér. Margir
öryrkjar og þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélaga
eiga ekkert val. En það vegur þungt þegar burðarás jafn-
aðarmanna í velferðarmálum segir málaflokkinn veik-
leikavæddan og að kerfið búi til vandamál. Ef staðreyndin
er sú að fólkið á gólfinu sem vinnur beint með fólkinu sem
þiggur opinbera aðstoð er að verða vitni að þessari þróun
sem Björk og Bjarni eru sammála um er ljóst að breytinga
er þörf og orð Oddnýjar marklaus.
Þeim hefur fjölgað mikið sem þiggja fjárhagsaðstoð
sem og bætur úr almannatryggingakerfinu. Það hlýtur að
vera áhyggjuefni og tilefni til breytinga. Kerfið einblínir
um of á veikleika fólks og síður á styrkleika þess. Pétur
heitinn Blöndal barðist enda hart fyrir því að starfsgeta
fólks yrði metin frekar en örorka þeirra.
En það er einnig brýnt að í kerfinu sé innbyggður hvati
fyrir fólk til þess að koma sér úr þeim aðstæðum sem
koma í veg fyrir að það bjargi sér sjálft. Séu dæmi þess
að bótakerfið sé fátækragildra næstu kynslóða verður að
taka á því um leið. Fjárhagslegi hvatinn er sterkur, enda
er undarlegt að það borgi jafn vel að vera á bótum og að
vinna störf sem gefa lægstu launin.
Fyrsta skrefið er að setja skilyrði fyrir því að fólk geti átt
rétt á þessari aðstoð hins opinbera. Það er augljóst mál að
þeir sem eru sannarlega vinnufærir en neita því að leggja
sig fram geta ekki átt sama rétt og aðrir í þeim efnum.
Lögum sem koma í veg fyrir slík skilyrði þarf að breyta.
Strax.
Hjálpum þeim til
að hjálpa sér sjálf
Frá degi til dags
Halldór
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Banka ekki upp á hjá hagstofunni
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
lýsti þeirri skoðun sinni í Bítinu á
Bylgjunni í gær að Schengen-sam-
starfið væri í hættu og að aðgerðir í
flóttamannamálum væru að leysast
upp í vitleysu. Réttilega bendir
hann á að regluverk ESB geri flótta-
fólki erfitt fyrir við að komast til
Evrópu til dæmis með flugi. Hann
virðist gramur út í Schengen-sam-
starfið og hefur áhyggjur af því að
hætt sé að skrá fólk inn í sameigin-
leg landamæri Evrópu. Sigmundur
virðist þó ekki taka það með í
reikninginn að fólkið sem um ræðir
er að flýja ein blóðugustu stríðs-
átök 21. aldarinnar og mikil ör-
vænting ræður ríkjum við að koma
sér til meginlands Evrópu. Að
banka upp á hjá hagstofum á hjara
Evrópu er óttaslegnu flóttafólki ef-
laust ekki ofarlega í huga.
enn ein skýrslan
Þing er komið til starfa eftir sumar-
frí og keppast þingmenn við að
koma sínum hjartansmálum á dag-
skrá. Nokkrir úr röðum stjórnar-
flokkanna óskuðu eftir skýrslu um
hagræn áhrif kvikmyndagerðar.
Það er vel að stjórnmálamenn sýni
kvikmyndagerð á Íslandi áhuga
enda vaxandi iðnaður. Þó vekur
það athygli að þetta er í annað sinn
á innan við ári þar sem Alþingi
óskar eftir skýrslu af þessum toga.
Væri ekki til dæmis gjöfulla að
verja tíma og fjármagni í aukin
framlög til kvikmyndasjóðs frekar
en að rita enn eina skýrsluna?
stefanrafn@frettabladid.is
1 1 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 F Ö s t U D A G U r
1
1
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
0
F
-A
F
6
4
1
6
0
F
-A
E
2
8
1
6
0
F
-A
C
E
C
1
6
0
F
-A
B
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
5
C
M
Y
K