Fréttablaðið - 11.09.2015, Page 23

Fréttablaðið - 11.09.2015, Page 23
V in nu st o fa n Fa rv i / / 09 15 Við erum á 1. hæð í Kringlunni Í spor Rúnars Júl Rokktónleikar GCD verða haldnir í kvöld til heiðurs Rúnari Júlíussyni. Pálmi Gunnarsson fyllir skarð Rúnars og hlakkar mikið til. sÍða 2 Uppáhaldsherbergi Lólýar, Ólínu S. Þorvaldsdóttur, matarblogg-ara og markaðsfræðings, í hús- inu er eldhúsið enda hefur hún haft áhuga á matargerð síðan hún var lítil. „Ég hef alltaf verið mikið fyrir að fylgj- ast með öllu sem gerist í eldhúsinu og ég byrjaði mjög snemma að baka og elda. Áhuginn á matargerð kemur beint úr eldhúsinu heima hjá pabba og mömmu því þau voru alltaf að prófa eitthvað nýtt og spennandi. Það var ekki mikið um þennan týpíska heimilis- mat sem aðrir á mínum aldri eru vanir heldur hafa foreldrar mínir alltaf verið duglegir við að gera smá tilraunir í eld- húsinu.“ Lólý gefur lesendum hér yndislega einfalda uppskrift sem er auðvelt og fljótlegt að gera. En á sama tíma er hún afar bragðmikil og holl. „Mér finnst hún passa vel núna þegar haustið er að heilsa okkur því þá er svo gott að fá mat sem yljar. Það er líka gaman þegar uppskriftir eru ekki með löngum lista af innihaldi heldur eitthvað sem maður á bara í skápunum hjá sér. Upp- skriftin kemur beint frá Ítalíu en systir mín bjó þar á tímabili og hún kom með þessa uppskrift með sér heim og eldaði hana fyrir okkur fjölskylduna og síðan þá hefur þetta verið uppáhalds pastauppskriftin okkar og ég get líka sagt að þessi uppskrift er orðin uppá- halds á mörgum heimilum í kringum mig.“ MatUR seM ylJaR Beint fRá ÍtalÍU Bragðmikið og hollt ítalskt brokkólípasta á vel við á haustin. Þessa uppskrift frá Lólý er auðvelt og fljótlegt að gera. GÓMsÆtt Brokkólípastað hennar Lólýar er girnilegt. elsKaR að elDa Lólý finnst yndislegt að fá fólk í mat og er dugleg við að bjóða heim til sín. „Það er svo gaman að elda fyrir marga og gefur mér svo mikið að elda fyrir fólkið mitt.“ MYND/STEFÁN ÍtalsKt BRoKKÓlÍPasta 2 stórir hausar ferskt brokkólí 2 laukar 3 hvítlauksrif eða fleiri eftir smekk salt og pipar eftir smekk þurrkað chili (pepperoncino) 3 dl ólífuolía 500 g spaghettí Sjóðið brokkólíið upp úr söltu vatni þangað til það er soðið al dente. Á meðan er gott að skera laukinn og hvítlaukinn smátt og sjóða hann upp úr ólífuolíunni þang- að til hann er mjúkur, og glær, kryddið vel með salti og pipar og chili-pipar. Þegar brokkólíið er soðið þarf að sigta það upp úr vatninu og setja það í skál því síðan notum við sama vatnið til að sjóða spag- hettíið í en það þarf að bæta smá vatni við það. Þegar spaghettíið er soðið, hellið vatninu af, setjið spaghettíið í skál og hellið yfir það ólífuolíunni með lauknum. Blandið þessu vel saman og berið fram með góðu brauði og ekki má gleyma parm- esanostinum. Allt að 50% afsláttur um helgina Fleiri myndir á Facebook Túnikka áður 14.990 nú 7.990 kr. Túnikka áður 11.990 nú 7.990 kr. Túnikka áður 11.990 nú 7.990 kr. Peysa áður 14.990 nú 7.990 kr. 1 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 0 F -E 5 B 4 1 6 0 F -E 4 7 8 1 6 0 F -E 3 3 C 1 6 0 F -E 2 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.